Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. desember 2025 21:45 Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var með 37 framlagsstig gegn ÍR. vísir/diego Þórir Guðmundur Þorbjarnarson spilaði stórvel þegar KR lagði ÍR að velli, 102-96, í Bónus deild karla í kvöld. Hann var sáttur með sigurinn eftir erfitt gengi KR-inga upp á síðkastið. „
Þetta var gríðarlega mikilvægt. Eftir erfitt gengi var mikilvægt að ná þessum sigri og við vildum þetta virkilega mikið,“ sagði Þórir við Vísi eftir leik. Eftir jafnan 1. leikhluta tók KR völdin í 2. leikhluta og leiddi með þrettán stigum í hálfleik, 52-39. „Við héldum þeim í færri stigum. Vörnin var góð og small saman. Við náðum góðum fráköstum, keyrðum í bakið á þeim og náðum góðri forystu. Við misstum hana svolítið niður í seinni hálfleik en ég virkilega ánægður að hafa ekki stressast upp og haldið áfram,“ sagði Þórir. ÍR-ingar sóttu heldur betur að KR-ingum í seinni hálfleik og minnkuðu muninn í þrjú stig. En þá skoraði Aleksa Jugovic þrjár þriggja stiga körfur á skömmum tíma og Þórir tók svo við keflinu. „Það var mjög dýrmætt fyrir okkur að standast þetta áhlaup. Þeir fóru í einhverja svæðisvörn, við hikuðum aðeins og hleyptum þeim inn í leikinn en þessir þristar hjá Aleksa voru virkilega mikilvægir. Við komum okkur aftur inn í þetta og náðum góðum stoppum,“ sagði Þórir. Hann skoraði 23 stig, tók sjö fráköst, gaf fjórtán stoðsendingar og var framlagshæstur á vellinum. En var þetta besti leikur Þóris í vetur? „Örugglega. Við náðum að vinna og það er það eina sem skiptir máli. Við vorum búnir að tapa nokkrum leikjum í röð og þurftum á þessu að halda. ÍR er með flott lið og við erum að berjast á svipuðum stað í töflunni. Hver einasti leikur í þessari deild er bardagi, maður þarf að mæta tilbúinn og við sýndum í dag að við erum með gott lið,“ svaraði Þórir.
Bónus-deild karla KR Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Sjá meira