Viðskipti innlent

Sam­herji gæti tvö­faldast

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja.
Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja. Vísir/Vilhelm

Samherji gæti tvöfaldast að stærð nái áform í landeldi fram að ganga að sögn forstjóra félagsins. Félagið hyggist ráðast í þrjátíu milljarða króna fjárfestingu í greininni á næstu misserum með innlendum og erlendum fjárfestum.

Dótturfélag Samherja, Samherji fiskeldi, rekur sex fiskeldisstöðvar fyrir bleikju og lax hér á landi. Þar á meðal er landeldisstöð í Öxarfirði, tvær stöðvar fyrir bleikju á Suðurnesjum og bleikjuvinnsla í Sandgerði.

Þá er verið að byggja nýja landeldisstöð, Eldisgarð, fyrir lax á Reykjanesi sem er stærsta fjárfestingarverkefni í sögu Samherja. Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja segir að gert sér ráð fyrir gríðarlegum fjárfestingum þar á næstu misserum.

„Þar fer fram ótrúlega spennandi uppbygging. Það er gríðarlega stórt verkefni sem við eigum þar fyrir höndum. Þetta er þrjátíu milljarða fjárfesting á næstu 18 mánuðum,“ segir Baldvin.

Hann segir að hlutafjáraukningu sé lokið þar sem Samherji lagði til fimmtán milljarða króna á móti utanaðkomandi fjárfestum.

„Svo auðvitað fyrir okkur í Samherja var mikill áfangi að ljúka við stóra hlutafjáraukningu í tengslum við landeldisáformin. Við fengum til liðs við okkur sterka fjárfesta, erlenda og innlenda,“ segir hann.

„Ef það verkefni verður að veruleika erum við að tala um fyrirtæki sem verður næstum tvöfalt að umfangi miðað við Samherja í dag. Þannig að þetta er mikil fjárfesting og mjög spennandi ef vel tekst til.“

Eldisgarður sem er staðsettur í auðlindagarði HS Orku við Reykjanesvirkjun. verður byggður í þremur áföngum. Stefnt er á að vígja fyrsta áfanga vorið 2027. Samkvæmt ársskýrslu Samherja mun fullbúin stöð geta framleitt 36.000 tonn árlega af óslægðum laxi. Til samanburðar voru framleidd um 49 þúsund tonn af laxi á öllu landinu á síðasta ári.

„Það eru margir sem sjá möguleika í þessu sem er spennandi og ef vel tekst til þá er þetta orðið nánast að nýrri burðarás í útflutningstekjum fyrir Íslendinga.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×