Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Atli Ísleifsson skrifar 25. desember 2025 13:47 Í tilboðinu fólst flutningur á þremur brettum af búslóð, að fjárhæð 180 þúsund krónur hvert, og einum ferðavagni að fjárhæð 250 þúsund krónur. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. GETTY Manni sem starfar í flutningsþjónustu hefur verið gert að afhenda viðskiptavini, konu, hluta búslóðar hennar gegn greiðslu eftirstöðva upphafslegs samnings þeirra í millum, alls 290 þúsund króna. Maðurinn hafði haldið búslóðinni gíslingu og gefið út reikning sem var þrefalt hærri en upphaflega hafði verið samið um munnlega.
Þetta kemur fram í nýjum úrskurði kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Konan kvartaði til nefndarinnar og rakti þar atvik málsins. Hún hafði leitað til fyrirtækis sem auglýsti þjónustu við búslóðaflutninga. Viðskiptavinurinn átti í nokkrum samskiptum við starfsmann fyrirtækisins varðandi verð fyrir þjónustuna en að endingu hafi maðurinn gert viðskiptavininum munnlegt tilboð að fjárhæð 790 þúsund krónur. Í tilboðinu fólst flutningur á þremur brettum af búslóð að fjárhæð 180 þúsund krónur hvert, og einum ferðavagni að fjárhæð 250 þúsund krónur, frá heimili konunnar og á annan stað í öðru landi, ásamt sköttum, tollum og öðrum gjöldum. Í úrskurðinum er ekki nánar tekið fram hvert átti að flytja búslóðina. Konan sagði það hafa verið hennar skilningur að hún væri að semja við fyrirtækið en síðar hafi hins vegar komið í ljós að starfsmaðurinn væri persónulega að veita hina umsömdu þjónustu. Kom tvívegis á heimili konunnar Maðurinn kom tvívegis á heimili konunnar, viðskiptavinarins, til að sækja þá hluti sem flytja átti, dagana 23. september og 11. október 2024. Þá upplýsti flutningamaðurinn að búslóðin og ferðavagninn yrðu send til í tveimur ferðum þar sem það væri hagstæðara fyrir viðskiptavininn vegna innflutningsgjalda. Flutningamaðurinn óskaði síðar í október eftir að konan myndi millifæra inn á bankareikning hans hálfa milljón króna vegna þjónustunnar, sem hún og gerði. Í byrjun desember 2024 var hluti búslóðarinnar afhentur og tíu dögum síðar ferðavagninn. Konan óskaði þá eftir upplýsingum hvenær síðasta brettið yrði afhent en svörin höfðu verið óljós og hafi sá hluti búslóðarinnar enn ekki verið afhentur. Maðurinn kom tvívegis á heimili konunnar, viðskiptavinarins, til að sækja þá hluti sem flytja átti, dagana 23. september og 11. október 2024. Myndin er úr safni.Getty Í lok mars 2025 gaf flutningamaðurinn út reikning á hendur konunni fyrir eftirstöðvum flutningskostnaðar að fjárhæð 1.645.200 krónur. Heildarkostnaður við þjónustuna var því skyndilega orðinn 2.145.200 krónur, næstum þrefalt hærri en um hafði verið samið. Brást ekki við Fyrir nefndinni sagði konan að flutningamaðurinn hafi neitað að afhenda restina af búslóðinni nema gegn greiðslu reikningsins að upphæð 1.645.200 krónur. Konan vísaði jafnframt til þess að samskipti við flutningamanninn hafi verið afar erfið og hann haft í ýmsum hótunum í hennar garð. Konan leitaði að lokum til kærunefndarinnar og krafðist þess að flutningamaðurinn myndi efna munnlegt samkomulag með afhendingu á hluta búslóðar hennar gegn greiðslu að fjárhæð 290 þúsund króna – það er eftirstöðva hins munnlega samkomulags. Flutningamaðurinn – það er varnaraðilinn í málinu – veitti hvorki andsvör né skilaði gögnum við meðferð málsins og byggði nefndin því niðurstöðu sína á gögnum og svörum frá konunni, það er sóknaraðila. Það var niðurstaða nefndarinnar að flutningamanninum bæri að afhenda konunni restina af búslóðinni gegn greiðslu eftirstöðva umsamins verðs, það er 290 þúsund króna.
Úrskurðar- og kærunefndir Neytendur Tengdar fréttir Bannað að snorkla þar sem leiðsögumaður taldi þau ósynd Ferðaþjónustufyrirtæki hefur verið gert að endurgreiða tveimur ferðamönnum andvirði seldrar snorklferðar eftir að leiðsögumaðurinn meinaði þeim þátttöku á þeim grundvelli að hann teldi þá ósynda. 20. nóvember 2025 08:38 Gat ekki skoðað mygluherbergið vegna „sofandi barns“ Fasteignasala þarf að greiða kaupanda fasteignar andvirði viðgerða vegna myglu í herbergi eignarinnar – samtals 1,1 milljón króna – þar sem kaupandanum var ekki gefið færi á að skoða almennilega eitt herbergjanna. Þá hafi kaupandanum ekki verið veittar fullnægjandi upplýsingar um ástand fasteignarinnar. 20. nóvember 2025 14:05 Tilboð á uppþvottavél reyndist of gott til að vera satt Nýleg kaup konu á uppþvottavél frá Rafha á tíu þúsund krónur reyndust of góð til að vera sönn. Konan krafðist þess að raftækjabúðinni yrði gert að standa við söluna sem byggðist á tæknilegum mistökum í sölukerfinu. 29. október 2025 13:05 Mest lesið Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti erlent „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ Atvinnulíf Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Viðskipti erlent Hildur fer frá Hörpu til KPMG Viðskipti innlent Hagkerfið allt í hættu Viðskipti innlent Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Viðskipti innlent Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Neytendur Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira
Bannað að snorkla þar sem leiðsögumaður taldi þau ósynd Ferðaþjónustufyrirtæki hefur verið gert að endurgreiða tveimur ferðamönnum andvirði seldrar snorklferðar eftir að leiðsögumaðurinn meinaði þeim þátttöku á þeim grundvelli að hann teldi þá ósynda. 20. nóvember 2025 08:38
Gat ekki skoðað mygluherbergið vegna „sofandi barns“ Fasteignasala þarf að greiða kaupanda fasteignar andvirði viðgerða vegna myglu í herbergi eignarinnar – samtals 1,1 milljón króna – þar sem kaupandanum var ekki gefið færi á að skoða almennilega eitt herbergjanna. Þá hafi kaupandanum ekki verið veittar fullnægjandi upplýsingar um ástand fasteignarinnar. 20. nóvember 2025 14:05
Tilboð á uppþvottavél reyndist of gott til að vera satt Nýleg kaup konu á uppþvottavél frá Rafha á tíu þúsund krónur reyndust of góð til að vera sönn. Konan krafðist þess að raftækjabúðinni yrði gert að standa við söluna sem byggðist á tæknilegum mistökum í sölukerfinu. 29. október 2025 13:05
Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent
Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Viðskipti innlent