Heimamenn í ham og El Kaabi skoraði aftur með hjólhestaspyrnu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2025 20:58 Ayoub El Kaabi fagnar marki sínu í kvöld en hann er kominn með þrjú mörk í keppninni. Getty/Torbjorn Tande Marokkó brunaði inn í sextán liða úrslitin á Afríkumótinu í fótbolta eftir stórsigur í lokaleik riðilsins í kvöld.
Marokkó vann 3-0 sigur á Sambíu eftir að hafa skorað tvisvar á fyrsta hálftíma leiksins. Malí tryggði sér líka sæti í útsláttarkeppninni en Sambíumenn eru úr leik. Kómoreyjar eiga ekki heldur lengur von um að komast áfram sem eitt af liðunum með besta árangurinn í þriðja sæti. Malí og Kómoreyjar gerðu markalaust jafntefli í hinum leiknum en það þýðir að Malí gerði jafntefli í öllum leikjunum sínum og Kómoreyjar eiga enn eftir að skora á mótinu. Tvö stig og markatalan 0-2 sér til þess að þeir verða aldrei meðal liðanna með bestan árangur í þriðja sæti. Heimamenn í Marokkó kláruðu dæmið sannfærandi og hristu af sér allar gagnrýnisraddir eftir jafntefli við Malí í leiknum á undan. Real Madrid-strákurinn Brahim Diaz hélt áfram að skora en hann hefur skorað í öllum þremur leikjum Marokkó á mótinu. Maður kvöldsins var aftur á móti Ayoub El Kaabi sem skoraði tvívegis. Fyrra markið skoraði hann með skalla á 9. mínútu en það síðara með hjólhestaspyrnu á 50. mínútu. El Kaabi skoraði einnig með hjólhestaspyrnu í fyrsta leiknum á mótinu. El Kaabi hélt reyndar að markið hefði verið dæmt af vegna rangstöðu en myndbandsdómarar leiðréttu þann dóm og markið var því dæmt gilt. Þeir El Kaabi og Diaz hafa því báðir skorað þrjú mörk í fyrstu þremur leikjunum.
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Sjá meira