Innlent

Ríf­lega tuttugu út­köll vegna elds­voða

Agnar Már Másson skrifar
Aðstoðarvarðstjóri segir slökkvilið hafa náð að slökkva eldinn nokkuð fljótt.
Aðstoðarvarðstjóri segir slökkvilið hafa náð að slökkva eldinn nokkuð fljótt. Vísir/Anton Brink

Slökkviliðið var boðað út rúmlega tuttugu sinnum á höfuðborgarsvæðinu til að slökkva elda sem kviknað höfðu vegna flugelda. Í flestum tilfellum var eldsvoðinn smávægilegur.

Gunnar Vilhjálmsson, aðstoðarvarðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir frá þessu í samtali við Vísi. Hann segir að flest útköll hafi verið vegna gróðurelda af völdum flugelda.

Slökkviliðsmenn hafi auk þess staðið í kringum hundrað sjúkraflutningum í nótt, aðallega að heimahúsum, en engin alvarleg flugeldaslys hafi orðið á fólki.

Auk þess var slökkviliðið boðað út eftir að tilkynnt var um að manneskja hefði farið í sjóinn og var sjúkraflutningabíll með bát í eftirdragi ræstur út.

Ekki þótti þó tilefni til þess að sjósetja bátinn þar sem manneskjan komst heil á húfi úr sjónum, að sögn Gunnars, sem tekur fram að slík útköll séu ekki óalgeng.

Fréttin hefur verið uppfærð með nákvæmari upplýsingum um fjölda útkalla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×