Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Eiður Þór Árnason skrifar 1. janúar 2026 17:16 Sindri og Albert á góðum degi. aðsend Albert Haagensen, umhverfis- og byggingarverkfræðingur hjá Kaldalóni, er látinn, 48 ára að aldri. Hann lést eftir skammvinna baráttu við krabbamein og lætur eftir sig eiginmann sinn Sindra Sindrason og dóttur þeirra Emilíu Katrínu.
Sindri, fréttaþulur og dagskrárgerðarmaður hjá Sýn, greinir frá þessu en hann hefur verið í leyfi frá störfum til að geta stutt Albert betur í veikindunum sem báru brátt að. „Besti vinur minn og kletturinn í lífi okkar Emiliu Katrínar er fallinn frá aðeins 48 ára eftir stutta en harða baráttu við heilakrabbamein. Duglegri og heiðarlegri prinsippmanni hef ég ekki kynnst og þó svo árin okkar saman hafi aðeins verið 27 hugga ég mig við hversu góð þau voru og viðburðarík,“ segir hann í færslu á samfélagsmiðlum. „Elsku besti Berti okkar (pabbó) hvíldu í friði. Við elskum þig, söknum þín og ég hlakka til að hitta þig aftur “ Greindur óvænt með fjórða stigs heilaæxli Sindri sagði frá því í september að fyrst hafi borið á veikindunum í ferðalagi þeirra á Ítalíu í júlí síðasta sumar. Við Garda-vatnið átti Albert í erfiðleikum með að rata að hóteli þeirra, hóteli sem þeir höfðu tvívegis áður dvalið á. Þá runnu tvær grímur á Sindra sem hringdi strax á lækni. Sindri sagði lækninn hafa sent Albert rakleiðis á sjúkrahús þar sem hann var tekinn í skoðun. Niðurstaða þeirra var sú að Albert væri með fjórða stigs heilaæxli. Eftir sex daga dvöl á sjúkrahúsi var ákveðið að fljúga Alberti heim til Íslands í fylgd læknis og hann fluttur á Landspítalann. Sindri sagði það ljós í myrkrinu hve vel heilbrigðiskerfið hafi reynst fjölskyldunni á þessum erfiðu tímum. „Það er sama á hvaða deild maður fer, alltaf tekur á móti manni fólk með bros á vör. Gjörgæslan, B6, K10 eða hvaða deild sem er. Alls staðar líður manni eins og maður sé sá eini sem skipti máli.“ Fjölskyldan við sólsetur á fallegri strönd.aðsend Fjölskyldan væri umkringd góðu fólki á þessum erfiðu tímum. „Það skiptir máli að eiga góða að í svona aðstæðum. Það munar öllu að eiga svo góða fjölskyldu, góða vini og ekki síst góða vinnuveitendur sem við getum báðir þakkað fyrir,“ sagði Sindri í samtali við fréttastofu í september.
Andlát Tengdar fréttir Í leyfi frá skjánum til að styðja eiginmanninn í veikindum Sindri Sindrason sjónvarpsmaður og þulur hefur lítið sést á skjánum undanfarnar vikur svo eftir hefur verið tekið. Ástæðan fyrir fjarveru Sindra eru óvænt veikindi í fjölskyldunni. 19. september 2025 16:50 Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Sjá meira
Í leyfi frá skjánum til að styðja eiginmanninn í veikindum Sindri Sindrason sjónvarpsmaður og þulur hefur lítið sést á skjánum undanfarnar vikur svo eftir hefur verið tekið. Ástæðan fyrir fjarveru Sindra eru óvænt veikindi í fjölskyldunni. 19. september 2025 16:50