Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. janúar 2026 09:23 Karolína Helga vill verða oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði. Karolína Helga Símonardóttir varaþingmaður Viðreisnar hefur ákveðið að gefa kost á sér til að leiða lista flokksins í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningum í vor og því boðað framboð gegn sitjandi oddvita, Jóni Inga Hákonarsyni.
Þetta kemur fram í tilkynningu. „Eftir að hafa verið viðloðandi bæjarmálin í Hafnarfirði í meira en áratug þá hef ég ákveðið að ég vil leiða lista Viðreisnar í Hafnarfirði í næstu sveitarstjórnarkosningum. Hef því boðið mig fram í prófkjör flokksins sem fer fram 17. janúar næstkomandi,“ skrifar Karolína Helga. Viðreisn hefur undanfarin ár verið í minnihluta í bæjarstjórn í bænum, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn skipa meirihluta. Hún segir þetta segja margt um sig, hún læri, hlusti og ígrundi áður en hún stökkvi af stað. Hún segist leggja mikið upp úr mennskunni, samtali og að taka ákvarðanir á ábyrgan og gagnsæjan hátt með almannahagsmuni að leiðarljósi. „Hafnarfjörður er ekki bara stjórnsýslueining, hann er samfélag. Sjávarþorp með sterka sjálfsmynd, þar sem fólk heilsast á götu, spjallar saman í heitapottinum og stendur saman þegar á reynir. Þessa sérstöðu eigum við að vernda, en líka byggja ofan á með skýrri sýn og ábyrgri forystu.“ Hún segist bjóða sig fram vegna þess að hún trúi því að Hafnarfjörður eigi meira inni. Með gagnsæi, ábyrgum fjármálum og samstarfi þvert á flokka sé hægt að bæta þjónustu, einfalda kerfin og tryggja sjálfbæran rekstur til framtíðar.
Viðreisn Hafnarfjörður Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar Sjá meira