Stuðningsmenn Færeyinga gista í ferju í Oslóarhöfn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2026 09:31 Færeyingar hafa fjölmennt á stórmót landsliðanna sinna en þeir hafa komist á EM eða HM í bæði karla- og kvennaflokki. Getty/Marco Steinbrenner Færeyingar verða áberandi á Evrópumótinu í handbolta og þeir fá líka góðan stuðning í stúkunni. Riðill færeyska landsliðsins fer fram í Noregi og þangað munu Færeyingar fjölmenna.
Færeyingar eru í D-riðli sem er spilaður í Bærum í útjaðri Osló. Þeir eru útsjónarsamir þegar kemur að ferðatillögu og gistingu.Í haust pöntuðu Færeyingar nefnilega sérstaka ferju sem mun flytja um þúsund stuðningsmenn frá Þórshöfn til Óslóar. Ferjan mun liggja við bryggju við rætur Akershús-virkisins meðan riðlakeppnin stendur yfir. „Komdu með stuðningsmannaskipinu Norrænu til Óslóar og studdu færeyska landsliðið á EM 2026. Á meðan við erum í Ósló verða veitingastaðir og barir opnir eins og venjulega,“ skrifaði þjóðarútgerðin Smyril Line.Þátttakan meðal færeyskra handboltaaðdáenda hefur verið mikil. Ferðamálastjórinn Henny á Líknargøtu segir í samtali við NTB að ferðin sé uppseld og um þúsund farþegar muni ferðast með ferjunni Norrænu. Alls búa um 55.000 manns á eyjunum og þúsund farþegar þýðir því að um einn af hverjum fimmtíu Færeyingum er á leið til norsku höfuðborgarinnar.Færeyskir stuðningsmenn munu síðan nota ferjuna sem gististað meðan á mótinu stendur.Færeyska landsliðið er í riðli með Slóveníu, Svartfjallalandi og Sviss. Komist þeir færeysku áfram lenda þeir í milliriðli með Íslandi en sá fer fram í Malmö í Svíþjóð. Það má búast við því að ferjan sigli þangað næst komist færeyska landsliðið áfram eins og margir búast við.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Ólympíuhöll brennur í Ríó Sport Notar kylfu úr þrívíddarprentara á Masters-mótinu Golf Hafþór ætlar að slá tvö heimsmet í sömu vikunni Sport „Heppnir að tapa aðeins 2-0“ Fótbolti Sagt upp störfum hjá Aftureldingu Handbolti Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Enski boltinn Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Enski boltinn „Á meðan það er tími á klukkunni þá er alltaf möguleiki til að vinna“ Sport Fór holu í höggi á fjölskyldumótinu Golf Spænsku stórliðin verða ekki með í stemningunni Fótbolti Fleiri fréttir Sagt upp störfum hjá Aftureldingu Stjarnan með sterka yfirlýsingu í fyrsta leik Titilvörnin hefst vel hjá Óðni Janus fagnaði jafntefli og mætir Magdeburg næst Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 35-30 | Valtað yfir stelpurnar okkar í Þórshöfn „Allt of margir leikmenn sem þurfa að stíga upp“ „Þetta er margfræg klisja“ „Tel mig vera rosalegan stemningskarl“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-21 | Hafnarfjörður er hvítur í bili Íslendingaliðið áfram eftir frábæran sigur Stórleikur Kristjáns dugði skammt Uppgjörið: Valur - KA 39-21 | Algjör slátrun á Hlíðarenda „Þeir refsa fyrir öll mistök og þeir refsuðu vel í dag“ Viggó fer til Flensburg Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Gísli með sjö stoðsendingar þegar Magdeburg endurheimti sjö stiga forskot Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Díana Dögg innsiglaði deildarmeistaratitil í toppslag Stjarnan og Hörður berjast um sæti í Olís deildinni Viktor með flottan leik og Börsungar halda áfram að valta yfir deildina Lið Donna byrjar úrslitakeppnina vel Bjarki í úrslitaeinvígið í Ungverjalandi Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Orri öflugur en staða Sporting viðkvæm Elín Klara markahæst og undanúrslit blasa við Naumt forskot hjá Janusi og félögum Uppgjörið: Haukar - Afturelding 32-24 | Hafnfirðingarnir sendu Aftureldingu í sumarfrí Óttaðist endalokin fyrir þrettán árum Fram skildi ÍR eftir og mætir Val í undanúrslitum Sjá meira