Rúmlega tveir af hverjum þremur Mýrdælingum erlendir Kjartan Kjartansson skrifar 15. janúar 2026 11:00 Vík í Mýrdal er ein ef ferðaþjónustumiðstöðvum Suðurlands en útlendingar manna stóran hluta ferðaþjónustustarfa. Rúmlega tveir af hverjum þremur íbúum í sveitarfélaginu eru með erlent ríkisfang. Vísir/Vilhelm Mýrdalshreppur er með hæst hlutfall erlendra ríkisborgara af öllum sveitarfélögum landsins en 67,4 prósent íbúa þar er með erlent ríkisfang. Hlutfallið er lægst á Skagaströnd þar sem innan við sex prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar.
Sveitarfélög á sunnanverðu landinu þar sem straumur ferðamanna er hvað stríðastur skipa sér í efstu sæti á lista þeirra sem eru með hlutfallslega flesta íbúa með erlent ríkisfang samkvæmt tölum Þjóðskrár. Þær miða við stöðuna 1. desember. Erlendir ríkisborgarar eru yfir fjörutíu prósent af starfsmönnum ferðaþjónustu samkvæmt tölum Samtaka ferðaþjónustunnar. Á eftir Mýrdalshreppi, þar sem 760 manns eru erlendir ríkisborgarar, kemur Skaftárhreppur þar sem 46,2 prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar. Í Bláskógabyggð er hlutfallið rúmlega 39 prósent. Yfir þriðjungur íbúa í Rangárþingi eystra, Eyja- og Miklaholtshreppi, Hornafirði, Súðavíkurhreppi, Reykjanesbæ, Ásahreppi og Hrunamannahreppi eru erlendir ríkisborgarar. Af sveitarfélögunum með hlutfallslega flesta erlenda íbúa er Reykjanesbær er með flesta íbúa með erlent ríkisfang, 8.665 talsins eða 35,2 prósent íbúanna. Á hinum enda rófsins eru ýmis smærri sveitarfélög. Hlutfallið er lægst á Skagaströnd þar sem 5,8 prósent íbúa eru erlendir ríkisborgarar, alls 27 manns. Hörgársveit, Eyjafjarðarsveit, Kjósarhreppur og Skorradalshreppur eru með á bilinu 6,4 til 8,2 prósent. Hæsta hlutfallið á Suðurnesjum Hlutfall erlendra ríkisborgara af íbúa landsins í heild er rúmlega fimmtungur. Þegar litið er til landshluta er hæst hlutfall erlendra ríkisborgara búsettur á Suðurnesjum þar sem hlutfallið er 29,7 prósent. Á Vestfjörðum er hlutfallið tæpur fjórðungur. Lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er á Norðurlandi eystra þar sem það er 11,5 prósent.
Mýrdalshreppur Innflytjendamál Mannfjöldi Ferðaþjónusta Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira