Fyrrverandi þingmaður vill oddvitasæti á Akureyri Árni Sæberg skrifar 15. janúar 2026 11:23 Berglind Ósk vill leiða lista Sjálfstæðismanna á Akureyri. Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, hefur gefið kost á sér í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. „
Ég tek það hlutverk alvarlega og ég geri það af heilum hug. Málefni fjölskyldunnar eru mér ofarlega í huga. Sveitarfélagið þarf að styðja við fjölskyldur á öllum æviskeiðum - börn, fjölskyldur og eldri borgara, með öflugri þjónustu, góðum skólum og umhverfi sem styður bæði virkt atvinnulíf og góð lífsskilyrði alla ævi,“ segir hún í framboðstilkynningu. Sterkt atvinnulíf sé forsenda velferðar. Akureyri eigi að vera sveitarfélag þar sem fólk hefur tækifæri til að vinna, skapa og byggja upp. Hún vilji leggja áherslu á sterkt og fjölbreytt atvinnulíf, góð skilyrði fyrir fyrirtæki og frumkvöðla og samvinnu við atvinnulífið um áframhaldandi uppbyggingu. „Fjármál sveitarfélagsins tengja þetta allt saman. Rekstur Akureyrarbæjar hefur verið á góðri leið undanfarin ár, en það má alltaf gera betur. Ég tel mikilvægt að halda áfram á ábyrgri braut, nýta fjármuni skynsamlega og forgangsraða þannig að fjárfestingar í fjölskyldum og atvinnu skili raunverulegum árangri til framtíðar. Sem lögfræðingur og fyrrum þingmaður hef ég reynslu af ákvarðanatöku, lagasetningu og ábyrgri stjórnsýslu. Ég veit að góð forysta byggir á trausti, fagmennsku og skýrri sýn en líka á hlýju, samvinnu og því að hafa gaman af því að vinna saman að sameiginlegum markmiðum.“ Hún vilji leiða öflugan lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og vinna með góðu fólki að sterku, framsýnu og fjölskylduvænu bæjarfélagi.
Akureyri Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira