Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. janúar 2026 08:36 Helgi Áss er varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og stórmeistari í skák. Hann hyggst ganga úr Sjálfstæðisflokknum í dag og fara yfir í Miðflokkinn. Vísir/Vilhelm Helgi Áss Grétarsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt skilið við flokkinn og gengið til liðs við Miðflokkinn. Frá þessu greindi Helgi í samtali við þáttastjórnendur Bítisins á Bylgunni í morgun. „
Fyrir því eru margvíslegar ástæður,“ svarar Helgi spurður að því hvers vegna hann hafi ákveðið að skipta um flokk. Helgi segir eina þeirra borgarlínuverkefnið og þá einnig að afstaða borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokkins í því máli og fleirum hafi hreinlega ekki verið nógu skýr. Hann hefði ekki verið sammála því að styðja við samgöngusáttmálann svokallaða. Hann segir einnig pólitíska rétthugsun hafa ríkt innan borgarkerfisins og að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki saklaus hvað þetta varðar. „Ég hef stutt margt það sem að formaður Miðflokksins hefur sagt í fjölmiðlum um ýmsa hluti, meðal annars þegar hefur verið að gagnrýna pólitíska rétthugsun og að pólitíkin, hún eigi að snúast um efnisatriði mála.“ Tíma og orku eytt í hluti sem skipta ekki máli Helgi segir alltof mikið um það í borgarstjórn að verið sé að eyða tíma og orku í eitthvað sem skipti ekki máli. Nefndi hann sem dæmi að Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefði sagt að það virtist vera fyrsta forgangsmál borgarinnar í kjarasamningsviðræðum að tala um „starfsfólk“ í stað „starfsmanna“. Þá segir hann ákveðinn ágreining hafa verið uppi milli sín og oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni. Skynsamlegasta niðurstaðan Helgi sagðist telja óeðlilegt hversu lengi Guðlaugur Þór Þórðarson beið með að lýsa því yfir hvort hann ætlaði í framboð eða ekki. Þetta hefði komið í veg fyrir að aðrir stigu fram. „Mér finnst þetta mjög erfitt. En á hinn bóginn finnst mér þetta skynsamlegasta niðurstaðan,“ sagði Helgi. Hann hefði fundið mikinn samhljóm með Miðflokknum í borginni, til að mynda gegn pólitískri rétthugsun. Sjálfstæðisflokkurinn hefði ratað af leið. Helgi Áss sagðist ekki eiga von á því að verða oddviti Miðflokksins í borginni. Þá sagðist hann vel treysta sér til að vinna með Sjálfstæðisflokknum.
Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Bítið Borgarstjórn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira