Veit Inga hvað hún syngur? Íris Róbertsdóttir skrifar 17. janúar 2026 07:30 Byrjum á að slá þessu föstu: Það er enginn málaflokkur þýðingarmeiri í íslensku samfélagi en uppvöxtur, þroski og menntun barnanna okkar. Það er alveg sama hvað okkur tekst vel til á öðrum sviðum – ef okkur mistekst þarna er allt annað unnið fyrir gýg . Í mikilvægi fyrir þjóðina og framtíð hennar trompar þessi málflokkur allt annað; hvort sem það heitir verðbólga, stýrivextir, fiskveiðistjórnun, orkumál, ríkisfjármál, samgöngumál, húsnæðismál, Evrópumál eða hvað annað sem nöfnum tjáir að nefna. Er ekki búið að tala nóg og lýsa yfir nógu miklum áhyggjum? Við erum í einstakri stöðu hér á Íslandi til að gera vel í þessum efnum. Ef fjögur ár í leikskóla eru talin með eru börnin okkar í fjórtán ár í „skyldu“ námi. Samt sem áður er okkur ekki að takast að skila þeim betur undirbúnum út í lífið til frekara náms en svo að stór hluti þeirra getur ekki lesið sér til gagns að loknum grunnskóla. Í hvað fóru þessi 14 ár? Af hverju hefur okkur mistekist svona hrapalega? Af hverju drögumst við stöðugt aftur úr öðrum þjóðum í þessum efnum? Við erum búin að vera of lengi aðgerðalaus Nýr ráðherra er að spyrja þessara sömu spurninga og viðurkennir að við sem samfélag erum í vanda með menntakerfið okkar. Það þýðir ekki að allt sé ómögulegt, þar er mjög margt gott í íslensku skólakerfi en við getum samt gert svo miklu betur. Það er kominn tími á að við hættum að skammast og kenna öllum nema okkur sjálfum um stöðuna sem upp er komin. Menntakerfið með sínum kostum og göllum er mannannaverk. Börnin okkar eru ekki að hljóta þá menntun sem við viljum og þurfum á að halda sem samfélag. Það er staðreynd sem þarf að breyta. Vestmannaeyjabær er skólasamfélag Við höfum stigið skref hér í Eyjum til að gera betur fyrir nemendur og er þróunarverkefnið Kveikjum neistann flaggskipið okkar. Skólafólkið okkar er að gera frábæra hluti nemendur, foreldrar, bókasafnið og samfélagið allt tekur þátt. Kveikjum neistann er heildstæð breyting á skóladeginum og skipulagi hans - og þetta virkar. Við erum að vanda okkur og höfum alla tíð fylgst vel með og mælt væntingar og ánægju foreldra, kennara og barnanna. Þar erum við að sjá jákvæðar og ítrekað góðar niðurstöður. Verkefnið hefur kallað eftir því frá byrjun að fá meiri stuðningi við mælingar og ég myndi fagna því að fá meiri og betri stuðning frá menntakerfinu í þeim efnum. Það er mikilvægt að gera vel ef fleiri skólar og sveitarfélög vilja feta þessa leið. Við getum verði ósammála um hvernig og hvað er sagt, með hvað hætti það er gert en er það í raun aðalmálið? Takk Inga fyrir að setja menntun rækilega á dagskrá. Þetta eru stóru málin. Höfundur er bæjarstjóri Vestmannaeyja Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íris Róbertsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skóla- og menntamál Vestmannaeyjar Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar