Hvalfjörður er líka okkar fjörður Jóhanna Hreinsdóttir, Jón Þorgeir Sigurðsson, Sigurþór Ingi Sigurðsson, Þóra Jónsdóttir og Þórarinn Jónsson skrifa 18. janúar 2026 14:01 Enn einu sinni þurfa íbúar Kjósarhrepps að verjast uppbyggingu á mengandi iðnaði í Hvalfirði og að þessu sinni er það gríðarstórt „landeldi“ á laxi sem við nánari athugun er ekki það jákvæða landeldi sem virðist við fyrstu sýn. Samkvæmt umhverfismatsskýrslu sem Aurora Fiskeldi ehf. lét verkfræðistofuna Eflu vinna fyrir sig er áætlað að þarna verði framleidd 28.000 tonn á ári. Til að setja þetta í stærðarsamhengi þá var heildarframleiðsla á laxi í landeldi á Íslandi 3.569 tonn árið 2024. En þarna er ekki öll sagan sögð því við nánari skoðun þá stendur til að þessi stöð verði uppeldisstöð fyrir sjókvíaeldi í hinum ýmsu fjörðum Íslands. Þannig að til stendur að dæla laxi úr fyrirhugaðri landeldisstöð í brunnbáta og flytja í sjókvíar. Að kalla þetta landeldi er því ekki alveg rétt. En af hverju skiptir þetta Kjósarhrepp máli? Jú, Hvalfjörðurinn er líka okkar fjörður og nálægðin við okkar samfélag er mun meiri en margir gera sér grein fyrir. Til að setja það í samhengi þá er fjarlægðin frá fyrirhuguðu „landeldi“ yfir fjörðinn einungis 2,8 km á meðan að fjarlægð frá „landeldinu” og upp á þjóðveg 1, Hvalfjarðarsveitarmegin, er 3,8 km. Það vekur því athygli að í umhverfismatsskýrslunni er tekið fram að þar sem sjónmengun sé nokkuð neikvæð þá standi til að setja mön umhverfis athafnasvæðið á þrjá vegu en ekki gera ráðstafanir til að draga úr sjónmengum frá hafi og því er útlit fyrir að Kjósarhreppi sé ætlað að una þeirri sjónmengun. Einnig kemur fram í skýrslunni að sjónræn mengun bygginga muni falla í skugga af risabyggingum vegna fyrirhugaðrar rafeldsneytisframleiðslu á næstu lóð en vert er að taka fram að sú framkvæmd er ennþá í skipulagsferli og alveg óvíst hvort einhvern tímann verður af þeirri framkvæmd. Úrgangur frá svona stórri stöð er gríðarlegur og áætlað er að hann verði um 150.000 persónueiningar sem jafngildir öllum úrgangi frá Reykjavíkurborg. En munurinn er að þarna er losunin á einum iðnaðarpunkti langt inni í firði en ekki dreifður á stóru svæði eins og hjá borginni, við opið haf. Samkvæmt skýrslunni er hins vegar gert ráð fyrir að nýta allt að 75% úrgangs til framleiðslu lífgass annars vegar og hins vegar til framleiðslu íblöndunarefnis í áburð. Hvorug leiðin er fullþróuð og ekki er fyrirséð hvenær það verður né hvort lagalegur grundvöllur verði til staðar. Eins hefur verið bent á að þau 25% úrgangs sem sitja eftir og dælt verður í Hvalfjörðinn munu innihalda mikið magn af lyfjaleyfum og hreinsiefnum sem ekki er hægt að skilja frá og munu því fara óhindrað í fjörðinn. Eins og komið hefur fram hér þá er þetta „landeldi“ ekki eina verkefnið sem er í skipulagsferli á Grundartanga því einnig stendur til að byggja þar rafeldsneytisverksmiðju sem ef af verður mun standa við hliðina á „landeldinu“. Stærð þeirrar verksmiðju kemur til með að verða gríðarleg, raforkuþörf meiri en öll sú orka sem framleidd er hjá Kárahnjúkavirkjun og frárennslið sem mun fara í Hvalfjörð verður meira en meðalrennsli í Elliðaánum, 10 gráðu heitt. Grundartangasvæðið er í eigu Faxaflóahafna. Faxaflóahafnir eiga um 600 hektara lands inn í Hvalfjarðarsveit. Þar er stefnt að grímulausri stóriðjuuppbyggingu með öllum þeim áhrifum á umhverfið sem því fylgja. Þetta er einstök staða að svo stórt fyrirtæki sem Faxaflóahafnir eru eigi land inni í öðru sveitarfélagi en það tilheyrir og geti í krafti stærðar sinnar og fjármagns hlaðið þangað öllu því sem Reykjavíkurborg vill ekki hafa innan sinna landamerkja. Mjög hentugt þar sem þessi stóriðjuuppbygging hefur ekki bein áhrif á kjósendur í Reykjavík. Ekki er annað að sjá en að Faxaflóahafnir fari í raun með skipulagsvaldið á þessu svæði, svo ljúflega renna allar skipulagstillögur í gegnum sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar. Aðra sögu er hins vegar að segja um bændur í nágrenni Grundartanga sem hafa þurft að fella dýr eða flýja land sitt og ekki síður íbúa í Kjósarhreppi, sem hafa lítið um það að segja sem ákveðið er í Hvalfjarðarsveit. Í stefnu Faxaflóahafna segir: „Við öxlum ábyrgð gagnvart náttúrunni, umhverfinu og samfélaginu í öllum okkar störfum. Hvötum er beitt og innviðir þróaðir með það að markmiði að draga úr losun við hafnarbakka og innan hafnarsvæða.” Þegar litið er til fyrirætlana Faxaflóahafna er ekki að sjá að stefna þessi sé höfð að leiðarljósi nema þetta eigi bara við um hafnir í Reykjavík. Hvalfjörðurinn er einstaklega fallegur fjörður með fjölbreytta náttúru og dýralíf og strandlengjan fyrir framan fyrirhugað „landeldi“ er á náttúruminjaskrá (C hluti). Hvalfjörður er mikilvægt náttúru- og útivistarsvæði og er ferðaþjónusta þar í örum vexti. Samanlögð áhrif frekari stóriðjuuppbyggingar fara að okkar mati gegn markmiðum um sjálfbæra þróun og fjölbreytta nýtingu svæðisins. Í Kjósarhreppi eru meginatvinnuvegir matvælaframleiðsla í formi landbúnaðar og ferðamennska sem er ört vaxandi. Ferðaþjónusta og landbúnaður byggja í ríkum mæli á ósnortinni náttúru, hreinu umhverfi og jákvæðri ímynd. Þessum atvinnugreinum báðum stendur veruleg ógn af mengandi iðnaði á Grundartanga. Sveitarstjórn Kjósarhrepps hvetur Hvalfjarðarsveit til að standa með umhverfi og náttúru í Hvalfirðinum og láta ekki önnur sveitarfélög nota Hvalfjörðinn fyrir þau mengandi verkefni sem þau sjálf vilja ekki hafa í sínum garði. Sveitarstjórn KjósarhreppsJóhanna HreinsdóttirJón Þorgeir SigurðssonSigurþór Ingi SigurðssonÞóra JónsdóttirÞórarinn Jónsson Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kjósarhreppur Umhverfismál Hvalfjarðarsveit Landeldi Fiskeldi Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun