Sögulegur færeyskur stórsigur á EM Aron Guðmundsson skrifar 18. janúar 2026 18:36 Oli Mittun fór fyrir færeyska landsliðinu í leik dagsins Vísir/EPA Færeyjar unnu sinn fyrsta sigur á stórmóti í handbolta í kvöld þegar að liðið valtaði yfir Svartfjallaland í D-riðli EM. Lokatölur 24-37 og von Færeyja um sæti í milliriðlum lifir.
Eftir að hafa náð í jafntefli í fyrstu umferð riðlakeppninnar gegn Sviss á dramatískan hátt var mikil stemning hjá færeysku þjóðinni fyrir leik dagsins og sömuleiðis var stemningin hjá færeyska landsliðinu mjög góð. Það sást strax frá upphafi leiks og segja má að fyrri hálfleikurinn gegn Svartfellingum í dag hafi verið eign Færeyinga frá A til Ö og að honum loknum leiddu Færeyjar með nítján mörkum gegn tólf. Hakun West Av Teigum og Oli Mittun fóru hamförum í fyrri hálfleiknum fyrir færeyska landsliðið. Hakun skoraði sex mörk í honum á meðan að Oli skoraði fimm og lagði upp fimm mörk sömuleiðis. Færeyingar hömruðu járnið á meðan að það var heitt og yfirburðir liðsins í leiknum jukust bara eftir því sem leið á seinni hálfleikinn og svo fór að Færeyjar unnu þrettán marka stórsigur, 37-24. Fyrsti sigurleikur liðsins á stórmóti staðreynd. Færeyjar eru með þrjú stig eftir fyrstu tvo leiki sína á toppi D-riðils en Slóvenía og Sviss mætast seinna í kvöld. Færeyjar mæta Slóvenum í síðustu umferð riðlakeppninnar og geta þar tryggt sér sæti í milliriðlum.
EM karla í handbolta 2026 Færeyjar Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Segir félagið í skítnum Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Sjá meira