Slóst við boltastráka sem vildu stela handklæðinu Sindri Sverrisson skrifar 19. janúar 2026 11:02 Þrátt fyrir að vera varamarkvörður þá stóð Yehvann Diouf í ströngu í úrslitaleik Afríkumótsins í gær, eins og sjá má. En hann passaði handklæðið fyrir sinn mann! Samsett/Skjáskot/Getty Yehvann Diouf, varamarkvörður Senegals, barðist með kjafti og klóm um handklæði, við boltastrákana á úrslitaleiknum við Marokkó í Afríkukeppninni í fótbolta í gærkvöld.
Atburðarásin í leiknum sjálfum og eftir hann var alveg nógu lygileg en við hana bætist handklæðaslagurinn mikli utan vallar. Marokkó var á heimavelli á mótinu og gestgjafarnir stunduðu það að koma í veg fyrir að markmenn mótherjana væru með handklæði til taks hjá sínu marki, til að þurrka bleytu af sér og hönskunum. Þannig mátti sjá boltastráka og jafnvel aðra starfsmenn á vellinum taka handklæðin í burtu. Það reyndist þeim hins vegar ómögulegt í úrslitaleiknum í gær því fyrrnefndur Diouf passaði vel upp á handklæðið fyrir félaga sinn Édouard Mendy, sem reyndist svo hetja Senegals þegar hann varði vítaspyrnu Brahim Díaz undir lok venjulegs leiktíma. View this post on Instagram A post shared by Nitro Football (@nitrofooty) Það er engin nýlunda að gestgjafar stríði mótherjum sínum með því að fjarlægja handklæði, eins og Svisslendingar gerðu til að mynda á EM í sumar þegar þeir tóku handklæði sem Sveindís Jane Jónsdóttir ætlaði að nýta til að þurrka af boltanum fyrir löng innköst. Hins vegar er það óvenjulegt hve ósvífnir Marokkómenn voru í þessum efnum, alveg svo að Diouf þurfti hreinlega að slást við boltastrákana til að halda í handklæðið. Segja má að réttlætið hafi sigrað að lokum því Diouf, Mendy og félagar í senegalska liðinu fögnuðu að lokum sigri í framlengdum leik, eftir mikið fíaskó í lok venjulegs leiktíma þar sem Senegalar strunsuðu af velli eftir tvo skelfilega dóma. Sadio Mané sá þó til þess að þeir sneru aftur út á völlinn og á endanum gátu þeir allir fagnað sigri. Marokkóar voru hins vegar afar svekktir og lætin héldu áfram á blaðamannafundi Senegala eftir leik, þar sem þjálfarinn Pape Thiaw endaði á að rjúka út.
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Sjá meira