Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 20. janúar 2026 18:31 Óhugnanlegar lýsingar koma fram í nýbirtum úrskurði Landsréttar í Edition-málinu frá því í sumar. Vísir Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á andláti franskra feðgina á Edition-hótelinu í júní er lokið. Konan sem grunuð er um að hafa orðið eiginmanni sínum og dóttur að bana játaði á vettvangi að hafa drepið þau, og sagðist hafa ætlað að svipta sig lífi í leiðinni, en neitar sök í dag.
Þetta kemur fram í nýbirtum úrskurði Landsréttar síðan í sumar, sem snerist um hvort konan, sem einnig er franskur ríkisborgari, ætti að sæta geðrannsókn. Ríkisútvarpið greinir frá því að rannsókn á málinu, sem stóð yfir í 219 daga, sé lokið og það komið á borð héraðssaksóknara. Konan neiti sök. Miðillinn greinir sömuleiðis frá birtingu úrskurðarins. Sagðist vilja hlífa dótturinni vegna dauðvona eiginmannsins Landsréttur úrskurðaði að konan skyldi sæta geðrannsókn en í honum eru málsatvik, sem áður hafa ekki komið fram, ítarlega rakin. Varað er við þeim lýsingum sem koma fram hér að neðan. Þann 14. júní barst lögreglu tilkynning frá starfsfólki Edition-hótelsins sem óskaði eftir aðstoð vegna þess að kona hefði fallið í sturtu á herbergi hótelsins. Síðar bárust upplýsingar um að konan væri með stungusár á bringu eftir hníf auk þess að vera vopnuð hnífi. Meðvitundarlaus maður lægi á gólfinu í hótelherberginu og búið væri að breiða yfir hann lak. Þegar lögreglumenn komu á vettvang sat kona á gólfinu, með sjáanlegt sár á bringunni, og sagði við lögreglu að hún hefði drepið tvær manneskjur. Á gólfinu lá karlmaður, eiginmaður hennar, sem var orðinn kaldur viðkomu en búið var að breiða lak yfir líkama hans. Hann reyndist vera með tvo stunguáverka á kvið. Í rúminu lá föl kona, dóttir konunnar, sem leit út fyrir að vera látin. Hún var með tvo stunguáverka við brjóst. Töluvert af blóði var á gólfinu og blóðugum handklæðum og fatnaði í herberginu og inni á baðherberginu. Þá fannst hnífur á sturtugólfinu. Á leið af vettvangi og á bráðamóttöku tjáði konan lögreglu að líkin væru af eiginmanni hennar og dóttur. Þá sagði hún við hjúkrunarfræðing, þannig að lögreglumaður heyrði til, að eiginmaður hennar væri dauðvona og hún hafi ekki viljað að dóttir þeirra, sem var á þrítugsaldri, yrði ein eftir lifandi. Þá sagðist hún hafa ætlað að drepa sjálfa sig með því að stinga sig í hjartað. Lætur vita af sér tvisvar í viku Greint var frá því í sumar að fjölskyldan hafi sent ættingjum sínum þrjár erfðaskrár meðan á Íslandsdvöl þeirra stóð. Eignir upp á rúman milljarð króna eiga að hafa verið taldar þar upp. Fram kemur í úrskurðinum, sem kveðinn var upp þann 4. júlí, að rannsókn lögreglu sé umfangsmikil og flókin. Konan sé grunuð um að hafa veist með ofbeldi að eiginmanni sínum og dóttur með þeim afleiðingum að þau létust. Í úrskurðinum kemur fram að ýmislegt í gögnum málsins bendi til þess að konan hafi verið haldin andlegum veikindum þegar atvikið varð. Þá hafi hún borið við minnisleysi um málsatvik. Sem fyrr segir var fallist á kröfu um geðrannsókn. Konan sat í gæsluvarðhaldi til og með 4. september en hefur síðan þá sætt farbanni. Í umfjöllun Rúv kemur fram að það sé í höndum héraðssaksóknara að ákveða næstu skref. Konan mæti á tiltekna lögreglustöð tvisvar sinnum í viku til að láta vita af sér.
Manndráp á Reykjavík Edition Lögreglumál Reykjavík Hótel á Íslandi Tengdar fréttir Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Tveir erlendir ferðamenn fundust látnir á Edition-hóteli í miðborg Reykjavíkur í morgun. Þriðji ferðamaðurinn var færður undir læknishendur. 14. júní 2025 12:32 „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Rannsókn lögreglunnar á andláti tveggja ferðamanna á hótelinu Reykjavík Edition miðar ágætlega, en konan sem grunuð er um manndráp hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 27. ágúst. 18. ágúst 2025 11:00 Skýrsla tekin af frönsku konunni og búið að ræða við vitni Búið er að taka skýrslu af frönsku konunni sem grunuð er um að hafa orðið eiginmanni sínum og dóttur að bana á hótelherbergi á Edition í Reykjavík í gær. Rætt hefur verið við vitni og rannsókn miðar þokkalega áfram. 15. júní 2025 18:47 Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Innlent Sigldu af stað með mótmælandann um borð Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ Innlent Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Innlent Fleiri fréttir Bjartsýn um að ljúka þingstörfum á morgun Kominn úr tunnunni og upp í lögreglubíl Segir óheimilt hafi verið að sigla af stað með mótmælandann um borð „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Hólmsteinn skriðinn úr tunnunni Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Mótmælendur ekki kærðir eftir truflun á þingfundi Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Myndaveisla: Þjóðhátíðardagur Íslendinga haldinn hátíðlegur Sjá meira
Tveir ferðamenn fundust látnir á Edition Tveir erlendir ferðamenn fundust látnir á Edition-hóteli í miðborg Reykjavíkur í morgun. Þriðji ferðamaðurinn var færður undir læknishendur. 14. júní 2025 12:32
„Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Rannsókn lögreglunnar á andláti tveggja ferðamanna á hótelinu Reykjavík Edition miðar ágætlega, en konan sem grunuð er um manndráp hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 27. ágúst. 18. ágúst 2025 11:00
Skýrsla tekin af frönsku konunni og búið að ræða við vitni Búið er að taka skýrslu af frönsku konunni sem grunuð er um að hafa orðið eiginmanni sínum og dóttur að bana á hótelherbergi á Edition í Reykjavík í gær. Rætt hefur verið við vitni og rannsókn miðar þokkalega áfram. 15. júní 2025 18:47