Lykilár í framkvæmdum runnið upp 23. janúar 2026 08:00 Útboðsáætlun Landsvirkjunar 2026 endurspeglar mikla breidd verkefna. Á Vaðöldusvæði, þar sem fyrsta vindorkuver landsins rís, verða m.a. boðin út verk tengd þjónustubyggingum, landmótun og frágangi. Við Hvammsvirkjun er fyrirhugað að bjóða út jarðvinnu, byggingarvirki, aflspenna, háspennustrengi, lokubúnað, fallpípur og stöðvarbúnað, auk eftirlitsverka. Við Sigöldustöð og á Þeistareykjum snúa útboðin meðal annars að rekstri vinnubúða, byggingarframkvæmdum, jarðvegsframkvæmdum, gufuveitum, vél- og rafbúnaði og eftirliti. Allt skapar þetta fjölmörg tækifæri fyrir innlenda og erlenda verktaka með sérhæfða þekkingu. Stór virkjunarverkefni af stað Eitt mesta framkvæmdatímabil í sögu Landsvirkjunar er nú runnið upp. Helstu nýframkvæmdir orkufyrirtækis þjóðarinnar á árinu tengjast stórum virkjunarverkefnum. Þar ber hæst Vaðölduver (120 MW) og Hvammsvirkjun (95 MW), auk stækkunar Sigöldustöðvar (65 MW). Þá er einnig áformuð uppsetning toppþrýstingsvélar við Þeistareyki (25 MW). Þessi verkefni munu samanlagt skila umtalsverðri aukningu í raforkuframleiðslu og styrkja orkukerfið til framtíðar. Á þessu ári bjóðum við út bæði nýframkvæmdir og stór endurbótaverkefni víða um land. Markmiðið er að tryggja áframhaldandi áreiðanleika orkukerfisins, auka afkastagetu og styðja við orkuskipti og loftslagsmarkmið Íslands. 70 milljarða útboð Áætluð útboð í ár vegna verklegra framkvæmda nema um 70 milljörðum króna. Um 70% þeirrar upphæðar fara í verkefni tengd jarðvinnu og byggingum og um 22% í vélbúnað. Auk nýframkvæmda leggur Landsvirkjun ríka áherslu á endurbætur og endurnýjun núverandi mannvirkja. Áætlað er að verja um 6 milljörðum króna í endurbótaverkefni á árinu 2026. Endurbótaverkefni á Þjórsársvæðinu kalla á rúman helming þeirrar upphæðar en annars dreifast þau víða, meðal annars í Soginu, við Búrfell, Sultartanga, Hrauneyjarfoss, Sigöldu og Laxárstöðvar. Þar má nefna endurnýjun stjórnkerfa, hverfilshjóla, lokubúnaðar og stöðvarveitna, auk viðgerða á stálmannvirkjum. Umsvifin munu setja svip sinn á atvinnulíf og efnahagsmál í ár og á komandi árum. Sjálfbærni í forgrunni Yfir 90% útboðsverkanna tengjast leyfisskyldum framkvæmdum, sem undirstrikar mikilvægi vandaðs undirbúnings, samráðs og faglegra vinnubragða. Samhliða þessu vinnum við hjá Landsvirkjun markvisst að því að draga úr kolefnisspori framkvæmda. Með þessum umfangsmiklu útboðsáformum sendir Landsvirkjun skýr skilaboð til markaðarins: fram undan eru fjölbreytt og krefjandi verkefni sem kalla á sérþekkingu, gæði og nýsköpun. Verktakar eru hvattir til að kynna sér útboðsáætlanir nánar á vef fyrirtækisins og taka virkan þátt í uppbyggingu framtíðarorkukerfis Íslands. Til viðbótar við þessi útboðsáform munu ýmis minni verk falla til á þessu framkvæmdatímabili. Markmið okkar er að stuðla að jákvæðum samfélagsábata af starfsemi fyrirtækisins og viljum við því gjarnan komast í samband við minni fyrirtæki, einyrkja eða einstaklinga í nærsamfélaginu. Nánari upplýsingar er að finna á landsvirkjun.is/verktakar. Höfundur er framkvæmdastjóri framkvæmda hjá Landsvirkjun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Landsvirkjun Vindorkuver við Vaðöldu Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar