Tók kast eftir óvænt tap og spaðinn fékk að finna fyrir því Sindri Sverrisson skrifar 27. janúar 2026 11:36 Coco Gauff leyndi ekki vonbrigðum sínum í Ástralíu í dag. Getty/Fred Lee Hin bandaríska Coco Gauff, þriðja efsta kona heimslistans í tennis, missti stjórn á skapi sínu og lét spaðann finna fyrir því eftir að hún féll óvænt úr leik á Opna ástralska mótinu í dag.
Gauff var á leið inn til búningsklefa eftir tapið þegar hún stoppaði og bombaði tennisspaða sínum ítrekað í gólfið, eins og sjá má hér að neðan. Coco Gauff releases her frustrations after a disappointing defeat in the Australian Open quarter-finals 💥 pic.twitter.com/4Ur9jlxR0P— TNT Sports (@tntsports) January 27, 2026 Ástæðan fyrir reiði Gauff var sú að hún tapaði, í aðeins 59 mínútna leik, gegn hinni úkraínsku Elinu Svitolina í 8-liða úrslitum mótsins. Gauff hefur unnið tvö risamót á ferlinum, Opna bandaríska árið 2023 og Opna franska í fyrra, en hefur best náð í undanúrslit á Opna ástralska mótinu Hún mátti sín lítils gegn Svitolina í dag og tapaði í tveimur settum, 6-1 og 6-2. Hún gekk þögul af velli en myndavélarnar eltu þessa tvítugu stjörnu nógu lengi til að sjá þegar hún fékk útrás fyrir vonbrigði sín. „Þessi frammistaða Coco er mjög mikil vonbrigði. Hún tók þau réttilega út á spaðanum í lokin,“ sagði Jamie Murray í útsendingu TNT Sports. Hin 31 árs gamla Svitolina var að sjálfsögðu í skýjunum með að komast í undanúrslitin. Hún var eitt sinn í þriðja sæti heimslistans en tók sér hlé frá tennis þegar hún eignaðist dóttur sína Skai árið 2022. Eftir endurkomuna hefur Svitolina meðal annars komist í undanúrslit á Wimbledon 2023 og í 8-liða úrslit Opna franska mótsins tvisvar. Sigurinn á Gauff skilar henni aftur í hóp tíu efstu á heimslistanum. „Þetta hefur alla þýðingu fyrir mig,“ sagði Svitolina. „Ég reyni að leggja allt í sölurnar og ég er hæstánægð með frammistöðuna hér í Ástralíu. Þetta hefur verið góð ferð heilt yfir og ég er mjög ánægð með að komast í undanúrslitin,“ sagði hún.
Tennis Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Sjá meira