Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Kolbeinn Tumi Daðason og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa 28. janúar 2026 11:57 Íslensk erfðagreining er með höfuðstöðvar sínar í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Íslensk erfðagreining hefur sagt upp 45 manns í dag vegna skipulagsbreytinga hjá fyrirtækinu. Uppsagnirnar ná samkvæmt heimildum Vísis til margra deilda og reynslumikils starfsfólks sem starfar í höfuðstöðvunum í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Eftir breytingarnar starfa 150 manns hjá fyrirtækinu. Ekki hefur náðst í Unni Þorsteinsdóttur, meðframkvæmdastjóra Íslenskrar erfðagreiningar, fyrir hádegi í dag. Starfsmaður í símsvörun hjá fyrirtækinu sagði ekki líkur á að ná tali af forstjóranum eða mannauðsstjóra í dag vegna fundarhalda. Í tilkynningu frá félaginu segir að 45 hafi verið sagt upp störfum en um 150 manns munu halda áfram að starfa hjá félaginu. „Móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, Amgen Inc., hefur tekið ákvörðun um áherslubreytingar og endurskipulagningu á rannsóknarsviði Amgen á heimsvísu sem mun hafa áhrif á tiltekin störf, þar á meðal hjá Íslenskri erfðagreiningu,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Unni Þorsteinsdóttur að fyrirtækið muni áfram gegna lykilhlutverki í rannsóknarstarfsemi Amgen. „Í dag er hugur okkar þó fyrst og fremst hjá þeim góðu samstarfsfélögum sem þessar breytingar snerta. Við þökkum þeim öllum fyrir mikilvægt og metnaðarfullt starf sem hefur átt þátt í að gera Íslenska erfðagreiningu að leiðandi fyrirtæki í erfðarannsóknum á heimsvísu,“ er haft eftir henni. Tæpt ár síðan Kári var látinn fara Sú stóra breyting varð hjá Íslenskri erfðagreiningu í maí í fyrra að Kári Stefánsson, stofnandi og forstjóri, var rekinn frá fyrirtækinu. Tilkynnt var að Dr. Unnur Þorsteinsdóttir og Patrick Sulem tækju við stjórn fyrirtækisins og myndu leiða í sameiningu starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar á Íslandi. „Fyrirtækið tók stefnumótandi ákvörðun um að skipta um forystu hjá deCODE genetics til að samræma betur við alþjóðlega rannsóknar- og þróunarstarfsemi okkar. Þessi ákvörðun endurspeglar skuldbindingu okkar til að viðhalda alþjóðlegri forystu deCODE í erfðarannsóknum og tryggja áframhaldandi þróun þess til að mæta vísindalegum áskorunum. Við erum þakklát fyrir framlag Dr. Stefánssonar og fullviss um að sú undirstaða sem hann byggði muni gera kleift að halda áfram nýsköpun og hafa jákvæð áhrif fyrir sjúklinga,“ sagði í yfirlýsingu frá Decode við það tilefni. Lyfja- og líftæknirisinn Amgen keypti Íslenska erfðagreiningu árið 2012. Kári sagði í viðtali við Vísi í maí að hann hefði reynst Amgen erfiður ljár í þúfu. Reginmunur hefði verið á áherslum fyrirtækis eins og Íslenskrar erfðagreiningar og lyfjaframleiðandans bandaríska. Vísir greindi frá því í morgun að fimmtán starfsmönnum hefði verið sagt upp hjá Alvotech í dag, nágrönnum Íslenskrar erfðagreiningar í Vatnsmýrinni, vegna skipulagsbreytinga. Tilkynning Íslenskrar erfðagreiningar í heild sinni: Breytingar hjá Íslenskri erfðagreiningu Móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, Amgen Inc., hefur tekið ákvörðun um áherslubreytingar og endurskipulagningu á rannsóknarsviði Amgen á heimsvísu sem mun hafa áhrif á tiltekin störf, þar á meðal hjá Íslenskri erfðagreiningu. Áherslubreytingarnar miða að því að beina kröftum félagsins enn frekar í verkefni sem hraða vísindalegum framförum og þróun byltingakenndra lyfja í baráttunni við erfiða sjúkdóma. Þessar breytingar hafa í för með sér að Íslensk erfðagreining þarf að fækka sem nemur 45 störfum í starfstöðvum sínum í Vatnsmýri og var þeim starfsmönnum sem um ræðir tilkynnt um starfslok í dag. Um 150 manns munu starfa áfram hjá félaginu og mun starfsemi þess áfram snúa að mikilvægum erfðafræðilegum rannsóknum, jafnframt því að varðveita og nýta rannsóknargögn félagsins enda hafa rannsóknir sem á þeim byggja lagt mikið af mörkum í að greina erfðafræðilega áhættuþætti algengra sjúkdóma. Unnur Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Amgen: „Íslensk erfðagreining mun áfram gegna lykilhlutverki í rannsóknarstarfsemi Amgen sem kjarnaeining á sviði erfðarannsókna. Í dag er hugur okkar þó fyrst og fremst hjá þeim góðu samstarfsfélögum sem þessar breytingarnar snerta. Við þökkum þeim öllum fyrir mikilvægt og metnaðarfullt starf sem hefur átt þátt í að gera Íslenska erfðagreiningu að leiðandi fyrirtæki í erfðarannsóknum á heimsvísu. Við munum halda áfram á þeirri vegferð og stunda rannsóknir sem nýtast í þróun lyfja sem bæta lífsgæði sjúklinga og í baráttunni við banvæna sjúkdóma“, segir Unnur Þorsteinsdóttir, meðframkvæmdastjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Íslensk erfðagreining er í eigu Amgen Inc. sem skráð er í NASDAQ kauphöllinni í Bandaríkjunum. Fréttin hefur verið uppfærð. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur skilaboð á ritstjorn@visir.is Íslensk erfðagreining Vinnumarkaður Reykjavík Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira
Ekki hefur náðst í Unni Þorsteinsdóttur, meðframkvæmdastjóra Íslenskrar erfðagreiningar, fyrir hádegi í dag. Starfsmaður í símsvörun hjá fyrirtækinu sagði ekki líkur á að ná tali af forstjóranum eða mannauðsstjóra í dag vegna fundarhalda. Í tilkynningu frá félaginu segir að 45 hafi verið sagt upp störfum en um 150 manns munu halda áfram að starfa hjá félaginu. „Móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, Amgen Inc., hefur tekið ákvörðun um áherslubreytingar og endurskipulagningu á rannsóknarsviði Amgen á heimsvísu sem mun hafa áhrif á tiltekin störf, þar á meðal hjá Íslenskri erfðagreiningu,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Unni Þorsteinsdóttur að fyrirtækið muni áfram gegna lykilhlutverki í rannsóknarstarfsemi Amgen. „Í dag er hugur okkar þó fyrst og fremst hjá þeim góðu samstarfsfélögum sem þessar breytingar snerta. Við þökkum þeim öllum fyrir mikilvægt og metnaðarfullt starf sem hefur átt þátt í að gera Íslenska erfðagreiningu að leiðandi fyrirtæki í erfðarannsóknum á heimsvísu,“ er haft eftir henni. Tæpt ár síðan Kári var látinn fara Sú stóra breyting varð hjá Íslenskri erfðagreiningu í maí í fyrra að Kári Stefánsson, stofnandi og forstjóri, var rekinn frá fyrirtækinu. Tilkynnt var að Dr. Unnur Þorsteinsdóttir og Patrick Sulem tækju við stjórn fyrirtækisins og myndu leiða í sameiningu starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar á Íslandi. „Fyrirtækið tók stefnumótandi ákvörðun um að skipta um forystu hjá deCODE genetics til að samræma betur við alþjóðlega rannsóknar- og þróunarstarfsemi okkar. Þessi ákvörðun endurspeglar skuldbindingu okkar til að viðhalda alþjóðlegri forystu deCODE í erfðarannsóknum og tryggja áframhaldandi þróun þess til að mæta vísindalegum áskorunum. Við erum þakklát fyrir framlag Dr. Stefánssonar og fullviss um að sú undirstaða sem hann byggði muni gera kleift að halda áfram nýsköpun og hafa jákvæð áhrif fyrir sjúklinga,“ sagði í yfirlýsingu frá Decode við það tilefni. Lyfja- og líftæknirisinn Amgen keypti Íslenska erfðagreiningu árið 2012. Kári sagði í viðtali við Vísi í maí að hann hefði reynst Amgen erfiður ljár í þúfu. Reginmunur hefði verið á áherslum fyrirtækis eins og Íslenskrar erfðagreiningar og lyfjaframleiðandans bandaríska. Vísir greindi frá því í morgun að fimmtán starfsmönnum hefði verið sagt upp hjá Alvotech í dag, nágrönnum Íslenskrar erfðagreiningar í Vatnsmýrinni, vegna skipulagsbreytinga. Tilkynning Íslenskrar erfðagreiningar í heild sinni: Breytingar hjá Íslenskri erfðagreiningu Móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, Amgen Inc., hefur tekið ákvörðun um áherslubreytingar og endurskipulagningu á rannsóknarsviði Amgen á heimsvísu sem mun hafa áhrif á tiltekin störf, þar á meðal hjá Íslenskri erfðagreiningu. Áherslubreytingarnar miða að því að beina kröftum félagsins enn frekar í verkefni sem hraða vísindalegum framförum og þróun byltingakenndra lyfja í baráttunni við erfiða sjúkdóma. Þessar breytingar hafa í för með sér að Íslensk erfðagreining þarf að fækka sem nemur 45 störfum í starfstöðvum sínum í Vatnsmýri og var þeim starfsmönnum sem um ræðir tilkynnt um starfslok í dag. Um 150 manns munu starfa áfram hjá félaginu og mun starfsemi þess áfram snúa að mikilvægum erfðafræðilegum rannsóknum, jafnframt því að varðveita og nýta rannsóknargögn félagsins enda hafa rannsóknir sem á þeim byggja lagt mikið af mörkum í að greina erfðafræðilega áhættuþætti algengra sjúkdóma. Unnur Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Amgen: „Íslensk erfðagreining mun áfram gegna lykilhlutverki í rannsóknarstarfsemi Amgen sem kjarnaeining á sviði erfðarannsókna. Í dag er hugur okkar þó fyrst og fremst hjá þeim góðu samstarfsfélögum sem þessar breytingarnar snerta. Við þökkum þeim öllum fyrir mikilvægt og metnaðarfullt starf sem hefur átt þátt í að gera Íslenska erfðagreiningu að leiðandi fyrirtæki í erfðarannsóknum á heimsvísu. Við munum halda áfram á þeirri vegferð og stunda rannsóknir sem nýtast í þróun lyfja sem bæta lífsgæði sjúklinga og í baráttunni við banvæna sjúkdóma“, segir Unnur Þorsteinsdóttir, meðframkvæmdastjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Íslensk erfðagreining er í eigu Amgen Inc. sem skráð er í NASDAQ kauphöllinni í Bandaríkjunum. Fréttin hefur verið uppfærð. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur skilaboð á ritstjorn@visir.is
Tilkynning Íslenskrar erfðagreiningar í heild sinni: Breytingar hjá Íslenskri erfðagreiningu Móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, Amgen Inc., hefur tekið ákvörðun um áherslubreytingar og endurskipulagningu á rannsóknarsviði Amgen á heimsvísu sem mun hafa áhrif á tiltekin störf, þar á meðal hjá Íslenskri erfðagreiningu. Áherslubreytingarnar miða að því að beina kröftum félagsins enn frekar í verkefni sem hraða vísindalegum framförum og þróun byltingakenndra lyfja í baráttunni við erfiða sjúkdóma. Þessar breytingar hafa í för með sér að Íslensk erfðagreining þarf að fækka sem nemur 45 störfum í starfstöðvum sínum í Vatnsmýri og var þeim starfsmönnum sem um ræðir tilkynnt um starfslok í dag. Um 150 manns munu starfa áfram hjá félaginu og mun starfsemi þess áfram snúa að mikilvægum erfðafræðilegum rannsóknum, jafnframt því að varðveita og nýta rannsóknargögn félagsins enda hafa rannsóknir sem á þeim byggja lagt mikið af mörkum í að greina erfðafræðilega áhættuþætti algengra sjúkdóma. Unnur Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Amgen: „Íslensk erfðagreining mun áfram gegna lykilhlutverki í rannsóknarstarfsemi Amgen sem kjarnaeining á sviði erfðarannsókna. Í dag er hugur okkar þó fyrst og fremst hjá þeim góðu samstarfsfélögum sem þessar breytingarnar snerta. Við þökkum þeim öllum fyrir mikilvægt og metnaðarfullt starf sem hefur átt þátt í að gera Íslenska erfðagreiningu að leiðandi fyrirtæki í erfðarannsóknum á heimsvísu. Við munum halda áfram á þeirri vegferð og stunda rannsóknir sem nýtast í þróun lyfja sem bæta lífsgæði sjúklinga og í baráttunni við banvæna sjúkdóma“, segir Unnur Þorsteinsdóttir, meðframkvæmdastjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Íslensk erfðagreining er í eigu Amgen Inc. sem skráð er í NASDAQ kauphöllinni í Bandaríkjunum.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur skilaboð á ritstjorn@visir.is
Íslensk erfðagreining Vinnumarkaður Reykjavík Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira