Fékk þjálfarann til að dansa við sig í miðjum leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. janúar 2026 09:03 Trinity Rodman og landsliðsþjálfarinn Emma Hayes dansa saman eftir markið hjá Trinity. Getty/Shaun Clark Trinity Rodman fékk fyrirliðabandið hjá bandaríska kvennalandsliðinu í fótbolta og hélt upp á það með því að skora í fyrstu tveimur leikjunum eftir endurkomuna í landsliðið. Hún fagnaði líka marki með því að fá landsliðsþjálfarann til að dansa við sig í miðjum leik.
Rodman innsiglaði öruggan 5-0 stórsigur á Síle með sínu marki en í leiknum skoruðu þær Croix Bethune, Jameese Joseph og Emily Sams sín fyrstu landsliðsmörk. Bandaríska kvennalandsliðið í fótbolta hefur nú unnið sex leiki í röð og það var því létt yfir öllum í liðinu. Rodaman fagnaði markinu sínu með því að hlaupa þvert yfir völlinn og til landsliðsþjálfarans Emmu Hayes. Þar dönsuðu þær saman. View this post on Instagram A post shared by Sports Illustrated FC (@sportsillustratedfc) „Hún sagði: „Þú gerir þetta í kvöld,““ sagði Emma Hayes við TNT Sports eftir leikinn þegar Rodman hvatti þjálfarann til að fagna með sér ef hún myndi skora. „Ég var að deyja“ „Ég hugsaði með mér, veistu hvað? Leikurinn er þægilegur. Trin mun ekki skora í kvöld. Það er þétt í teignum og um leið og hún lék inn á við, ef þú hefðir séð, ef þú hefðir beint myndavélinni að mér rétt áður, þá var ég með höfuðið í höndunum. Ég var að deyja. Ég var að deyja. En heyrðu, þessir leikmenn halda mér ungri. Ég er ekki að kvarta,“ sagði Hayes og hló. Áður en Rodman kom inn á völlinn á 64. mínútu var bandaríska liðið 4-0 yfir þökk sé mörkum frá Bethune, Joseph, Sams og Emmu Sears. Eftir 6-0 sigurinn á Paragvæ um helgina stillti Hayes upp nýju byrjunarliði sem hafði að meðaltali leikið 5,2 landsleiki, fæsta landsleiki í byrjunarliði síðan 2001. View this post on Instagram A post shared by Bleacher Report Football (@brfootball) „Ég er stolt af þeim, það er ég. Ég segi þetta alltaf, ég er ekki að horfa á andstæðinginn. Ég er að horfa á okkur. Ég er að horfa á hverja og eina þeirra framkvæma þau hlutverk sem við biðjum þær um að gegna,“ sagði Hayes. „Ég sagði við þær fyrir leikinn, sumar ykkar munu keppa um sæti fyrir 2027, sumar '28, sumar '31 en þetta er dýrmæt reynsla sem ég vona að við getum bætt við þróunarferil ykkar sem leikmanna,“ sagði Hayes. Hefur fært „gleði“ inn í hópinn Varðandi hina 23 ára gömlu Rodman, sem nýlega var fyrirliði landsliðsins gegn Paragvæ, var Hayes full af lofi fyrir leikmanninn sem hefur fært „gleði“ inn í hópinn og til stuðningsmanna. „Ég hef lært á ferli mínum að maður getur haft margt í gangi í einu. Ég get verið kröfuhörð, ég get haft háar kröfur, en ég get líka brosað og skemmt mér vel,“ sagði Hayes. Líka frábær manneskja „Ég held að maður verði að vita hvenær á að skipta á milli en fólk eins og Trin, þú veist, þú gast heyrt það á móttökunum sem hún fékk þegar hún kom inn á. Hún færir gleði, ekki bara í leik okkar, heldur líka fyrir stuðningsmenn okkar, og hún er einstakur fótboltamaður, en hún er líka frábær manneskja,“ sagði Hayes. Fyrir báða leikina í janúar komst Rodman í fréttirnar eftir að hafa gert samning við Washington Spirit í síðustu viku sem gerir hana að launahæsta leikmanni NWSL í sögunni. View this post on Instagram A post shared by National Women's Soccer League (@nwsl)
Fótbolti Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Sjá meira