Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Samúel Karl Ólason skrifar 28. janúar 2026 23:13 Vetrarbrautin MoM-z14 er í meira en þrettán milljarða ljósára fjarlægð. Það þýðir að ljósgeislarnir sem lentu á linsu James Webb geimsjónaukans þegar myndirnar voru teknar lögðu af stað þegar alheimurinn var einungis um 280 milljón ára gamall. NASA, ESA, CSA, STScI, R. Naidu (MIT), Geimvísindamenn hafa fundið fjarlægustu vetrarbraut sem vitað er um. Hún er í um 13,5 milljarða ljósára fjarlægð frá jörðinni en það þýðir að ljósið sem berst nú til jarðarinnar sýnir hvernig vetrarbrautin leit út þegar alheimurinn var einungis um 280 milljón ára gamall.
Alheimurinn er talinn um 13,8 milljarða ára gamall. Vetrarbrautin ber nafnið MoM-z14 og var hún fundin með James Webb-geimsjónaukanum (JWST). Á vef Geimvísindastofnunar Evrópu (ESA) segir að birtan frá vetrarbrautinni komi vísindamönnum á óvart. Það sama eigi við aðrar sem fundist hafa með JWST. Þær séu allar bjartari, þéttari og virðist virkari en talið var að þær gætu verið svo fljótt eftir stórahvell. Rohan Naidu, vísindamaðurinn sem leiddi hópinn sem fann MoM-z14, segir að JWST hafi gert mönnum kleift að sjá mun lengra en áður var hægt og að það sem þeir sjái líkist ekkert því sem búið var að spá fyrir um. Það sé krefjandi en í senn gífurlega spennandi. Naidu leiddi einnig hóp vísindamanna sem fann fyrir nokkrum árum vetrarbrautina GLASS-z13 en hún var þá sú vetrarbraut sem fundist hefur lengst frá okkar vetrarbraut en MoM-z14 er „einungis“ tuttugu milljón ljósárum lengra í burtu. Sjá einnig: Uppgötvuðu elstu stjörnuþoku sem hefur sést Hægt er að áætla fjarlægð vetrarbrauta út frá ljósinu frá þeim. Pascal Oesch, sem kom einnig að rannsókninni, segir að framkvæma þurfi frekari rannsóknir á vetrarbrautinni til að ganga úr skugga um að vitað sé nákvæmlega hvað þeir séu að horfa á og hvenær. Sjá einnig: Fimmtíu þúsund vetrarbrautir á einni mynd Vísindamennirnir segja að JWST hafi varpað ljósi á sífellt stækkandi hóp vetrarbrauta sem séu bjartari en spár gerðu ráð fyrir. Þær séu þegar orðnar hundrað sinnum fleiri en rannsóknir bentu til áður en JWST var skotið á loft. Mikið köfnunarefni virðist vera í MoM-z14 en þegar alheimurinn var einungis 280 milljóna ára gamall eiga ekki að hafa verið til stjörnur sem gætu framleitt svo mikið af því frumefni. Ein kenning sem vísindamennirnir eru að skoða snýst um að í hinum unga alheimi hafi myndast gríðarlega stórar stjörnur sem gætu hafa framleitt mun meira köfnunarefni en hingað til hefur þekkst. Áhugasamir geta séð fjölda mynda sem teknar hafa verið með JWST í myndbandi ESA hér að neðan.
James Webb-geimsjónaukinn Geimurinn Tækni Vísindi Tengdar fréttir Webb smellti af nýburamyndum Nýjar myndir öflugasta geimsjónauka í heimi sem birtar voru í dag sýna þúsundir nýfæddra stjarna í risavaxinni stjörnumyndunarþoku í þúsunda ljósára fjarlægð frá jörðinni. 5. september 2025 15:56 Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu Áður óþekkt tungl fannst á braut um reikistjörnuna Úranus með James Webb-geimsjónaukanum, öflugasta sjónauka í heimi. Tunglið er eitt nokkurra smárra fylginhatta sem ganga um reikistjörnuna fyrir innan braut stærstu tunglanna. 20. ágúst 2025 13:45 Klóra sér í kollinum yfir stórri reikistjörnu á braut um litla stjörnu Stjörnufræðingar gætu þurft að endurskoða hugmyndir sínar um hvernig reikistjörnur myndast eftir að þeir uppgötvuðu stóra reikistjörnu á braut um litla stjörnu. Stjarnan er sú minnsta sem vitað er til að hýsi svo stóra reikistjörnu. 6. júní 2025 10:49 Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Fjarreikistjarna sem er að gufa upp og skilur eftir sig hala utan um móðurstjörnu sína er sögð gefa vísindamönnum einstakt tækifæri til þess að rannsaka efnasamsetningu bergreikistjarna. Aðeins örfáar deyjandi reikistjörnur af þessu tagi hafa fundist til þessa. 23. apríl 2025 14:27 Myndaði segulljós Neptúnusar í fyrsta skipti Óvenjuleg segulljós Neptúnusar hafa verið mynduð í fyrsta skipti með James Webb-geimsjónaukanum. Athuganirnar leiddu einnig í ljós að efsti hluti lofthjúps reikistjörnunnar hefur kólnað um hundruð gráða. 27. mars 2025 14:15 Webb sér alheiminn einnig þenjast út á vaxandi hraða Athuganir öflugasta geimsjónauka sögunnar staðfesta enn á ný að alheimurinn þens út hraðar en staðallíkan eðlisfræðinnar getur útskýrt. Eftir sitja stjarneðlisfræðingar í súpunni, engu nær um hvers vegna herðir á útþenslunni. 12. desember 2024 13:43 Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Sjá meira
Webb smellti af nýburamyndum Nýjar myndir öflugasta geimsjónauka í heimi sem birtar voru í dag sýna þúsundir nýfæddra stjarna í risavaxinni stjörnumyndunarþoku í þúsunda ljósára fjarlægð frá jörðinni. 5. september 2025 15:56
Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu Áður óþekkt tungl fannst á braut um reikistjörnuna Úranus með James Webb-geimsjónaukanum, öflugasta sjónauka í heimi. Tunglið er eitt nokkurra smárra fylginhatta sem ganga um reikistjörnuna fyrir innan braut stærstu tunglanna. 20. ágúst 2025 13:45
Klóra sér í kollinum yfir stórri reikistjörnu á braut um litla stjörnu Stjörnufræðingar gætu þurft að endurskoða hugmyndir sínar um hvernig reikistjörnur myndast eftir að þeir uppgötvuðu stóra reikistjörnu á braut um litla stjörnu. Stjarnan er sú minnsta sem vitað er til að hýsi svo stóra reikistjörnu. 6. júní 2025 10:49
Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Fjarreikistjarna sem er að gufa upp og skilur eftir sig hala utan um móðurstjörnu sína er sögð gefa vísindamönnum einstakt tækifæri til þess að rannsaka efnasamsetningu bergreikistjarna. Aðeins örfáar deyjandi reikistjörnur af þessu tagi hafa fundist til þessa. 23. apríl 2025 14:27
Myndaði segulljós Neptúnusar í fyrsta skipti Óvenjuleg segulljós Neptúnusar hafa verið mynduð í fyrsta skipti með James Webb-geimsjónaukanum. Athuganirnar leiddu einnig í ljós að efsti hluti lofthjúps reikistjörnunnar hefur kólnað um hundruð gráða. 27. mars 2025 14:15
Webb sér alheiminn einnig þenjast út á vaxandi hraða Athuganir öflugasta geimsjónauka sögunnar staðfesta enn á ný að alheimurinn þens út hraðar en staðallíkan eðlisfræðinnar getur útskýrt. Eftir sitja stjarneðlisfræðingar í súpunni, engu nær um hvers vegna herðir á útþenslunni. 12. desember 2024 13:43
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán