Að loka á foreldri er ekki einfaldasta leiðin Sahara Rós Blandon skrifar 31. janúar 2026 07:30 Að rjúfa samskipti við foreldri er ekki auðveldasta leiðin. Það er ekki auðvelt að syrgja foreldra sem eru enn á lífi. Það er ekki auðvelt að missa stöðu sína innan fjölskyldunnar. Það er ekki auðvelt að vera dæmdur, misskilinn eða útskúfaður fyrir að reyna að vernda sig — og börnin sín. Það er ekki auðvelt að lifa við sektarkennd, efasemdir og stöðugan ótta um að maður sé sjálfur vandamálið. Og samt velja sumir þessa leið. Uppkomin börn velja hana ekki af því hún er einföld, heldur vegna þess að það kostar enn meira að vera áfram í skaðlegum samskiptum. Áður en fullorðið barn slítur samskiptum við foreldri sitt eru margar hugsanir sem fara í gegnum hugann: Verður mér boðið í brúðkaup systur minnar? Get ég mætt í jarðarför án þess að allt fari úr böndunum? Missi ég sambandið við systkini mín og systkinabörn? Verð ég kærð fyrir umgengnistálmun þótt foreldrar mínir eigi ekki tilkall til barnabarna sinna? Hvað ef mig vantar aukinn stuðning þegar ég sjálf verð foreldri? Hvað ef ég missi alla — ekki bara þau? Hvað ef ég er bara að vera dramatísk? Þetta eru ekki hugsanir einhvers sem velur einföldustu leiðina“. Þetta eru hugsanir einhvers sem vegur og metur fórnarkostnaðinn — og tekur samt skrefið stóra, oft eftir að hafa eytt stórum hluta ævinnar í að reyna allar aðrar leiðir. Að loka á foreldri er sjaldnast fyrsta val. Fyrir langflesta er það síðasta úrræðið — eina leiðin sem eftir er til að finna frið og lifa lífi án áframhaldandi skaða. Það gleymist einnig oft að þessari ákvörðun fylgir mikill kostnaður — ekki aðeins tilfinningalegur heldur einnig fjárhagslegur. Að vinna úr áfallinu sem slík sambönd skilja eftir sig krefst gjarnan faglegrar aðstoðar. Sálfræðimeðferð tekur tíma, er andlega krefjandi og kostar mikið. Margir þurfa að greiða úr eigin vasa til að laga skaða sem þeir ollu ekki sjálfir. Ef einhver keyrir á þig ber sá aðili ábyrgð á tjóninu. Þegar kemur að ofbeldi innan fjölskyldna er þessu öfugt farið. Þessi veruleiki margra sem ég vil koma á framæri virðist ekki hafa verið tekinn með í reikninginn í nýlegri umfjöllun í kjölfar viðtals við Theodór Francis á Bylgjunni. Þar er að mínu mati dregin upp einföld og skökk mynd af því hvers vegna samskipti milli barna og foreldra rofna. Gefið er í skyn að uppkomin börn sem neyðast til að loka á foreldra sína séu aðeins að leita auðveldustu leiðarinnar. Að þau vilji hefna sín eða flýja vandamálin, og að sátt væri möguleg ef þau væru einfaldlega skilningsríkari og tilbúin að fyrirgefa. Það kemur hins vegar hvergi fram í umræðunni að foreldrar hafi oft haft áratugi til að axla ábyrgð, biðjast einlægrar afsökunar eða leita sér aðstoðar — og hafnað því ítrekað, jafnvel eftir grátbeiðnir barna sinna. Mikilvægt er að nefna að ofbeldi er ekki „ágreiningur“ sem hægt er að „leysa“. Sá sem beitir ofbeldi verður að vera tilbúinn að vinna í sjálfum sér og bæta ráð sitt. En yfirleitt eru það einmitt þau sem verða fyrir ofbeldinu sem leita sér hjálpar. Í flestum tilfellum slíta fullorðin börn ekki samskiptum af því þau vilja það. Þau gera það vegna þess að foreldrar þeirra sýna lítinn vilja til sjálfsskoðunar eða breytinga. Einlægar afsökunarbeiðnir eru sjaldgæfar. Í besta falli er boðið upp á það sem mætti kalla „ef-sökunarbeiðni“: „Fyrirgefðu ef ég gerði eitthvað sem særði þig“ eða „Mér þykir leitt að þér líði svona“. Slíkar efsökunarbeiðnir gera lítið úr skaðanum sem barnið hefur orðið fyrir, réttlæta hann og varpa ábyrgðinni lúmskt aftur yfir á barnið. Oft kjósa slíkir foreldrar frekar að viðhalda fjarlægðinni en að horfast í augu við eigin hegðun. Þetta er því miður súr sannleikur margra uppkominna barna. Að kalla útilokun „flótta“ gerir ráð fyrir að enn sé eitthvað uppbyggilegt að sækja í sambandinu. Fyrir marga er það einfaldlega ekki raunin. Samtöl fara í hringi. Mörk eru hunsuð eða börnunum refsað fyrir að setja þau. Engin ábyrgð er tekin. Fjarlægð verður þá eina leiðin til að öðlast frið, öryggi og stöðugleika. Það sem einnig vantar í þessa umræðu er félagslegi kostnaðurinn sem fellur á herðar uppkominna barnanna. Barn sem slítur samskiptum missir oft ekki aðeins foreldri, heldur einnig stöðu sína í fjölskyldunni. Tengsl við systkini, ættingja og fólk sem hefur verið því nærri alla ævi geta rofnað. Þrýst er á fólk að „sættast“, sem þýðir í raun oft að sópa öllu undir teppið. Þeir sem setja mörk eru gerðir að vandamálinu. Allt þetta ferli hefur einangrandi áhrif á barnið. Andstætt því sem haldið hefur verið fram um þetta viðkvæma málefni er útilokun ekki „smitandi“ innan vinahópa. Þetta er ekki tískubóla. Það er ekki öfundsvert við það að lifa í fjarlægð frá foreldrum sínum. Raunveruleiki þeirra sem gera það er mjög einmanalegur. Það er ekkert töff við það að missa fjölskyldu sína. Í kjölfar umræddra sambandsslita fylgir oft sorg, höfnun, áfallastreita og flókið sorgarferli. Ef önnur leið væri fær, myndu flestir velja hana. Viljum við skilja þessi mál betur verðum við að hlusta á sögur þeirra sem hafa þurft að taka þessa erfiðu ákvörðun að slíta samskiptum. Oftast er athyglinni beint að foreldrum og álitsgjöfum, á meðan reynsla barnanna sem urðu fyrir skaða er dregin í efa eða hunsuð. Samt eru það einmitt þau sem eru raunverulegir sérfræðingar í þessum málum. Samfélagið spyr sjaldnast: „Hvað kom fyrir þetta barn?“ Mun oftar er spurt: „Hvernig getur barn gert foreldrum sínum þetta?“ Hvers vegna spyr enginn: „Hvað hefur foreldrið gert — eða neitað að gera — sem veldur því að barnið sér engan annan kost en að halda fjarlægð?“ Að lokum ber að nefna hve erfitt það er, eðli málsins samkvæmt, fyrir þá sem þetta varðar að stíga fram opinberlega með sína sögu. Að segja frá felur oft í sér hættu á frekari höfnun, vantrú eða áframhaldandi ofbeldi. Mörg uppkomin börn þegja í mörg ár af þessum sökum. Í mörgum tilfellum eru það einmitt foreldrarnir sem fyrst bera ágreininginn á torg, móta frásögnina sér í hag á kostnað barnanna og setja sig í hlutverk fórnarlambsins. Foreldrarnir gæta þess að börnin séu auðþekkjanleg í frásögninni. Það er því kaldhæðnislegt þegar krafist er að börn haldi þessum málum fyrir sig. Foreldrar fá endalausan skilning: „Þau gerðu sitt besta.“ „Þau eru bara mannleg, enginn er fullkominn.“ Fullorðin börn fá hins vegar ekki að njóta vafans. Miðað við þá mynd sem dregin er upp af þeim eru þau grimm, óstöðug eða hefnigjörn fyrir að velja fjarlægð sem úrræði til að vernda sig og börn sín. Það er ekki fyrr en að fullorðið barn slítur samskiptum við foreldra sína að fólk fer að spá í hag litlu barnanna. Litlu barnabarnanna. En það gleymist að fullorðnu börnin voru einu sinni lítil börn sem enginn spáði í. Að slíta samskiptum við foreldra er ekki auðveldasta leiðin. Fyrir langflest börn er hún sú erfiðasta — en jafnframt sú eina sem færir þeim frið og gerir þeim kleift að skapa betra líf fyrir sig og börnin sín. Ég sendi öllum sem vilja brjóta keðjuna, standa með sjálfum sér og taka afstöðu gegn ofbeldi hlýjar baráttukveðjur. Þetta er ekki einfalt. Höfundur skrifar út frá eigin reynslu af þessu málefni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Aðlögun Íslands að ESB: Þrír ólíkir farvegir Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Sanngjörn þjónusta fyrir alla Kópavogsbúa - líka í efri byggðum Örn Arnarson skrifar Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar Skoðun Á leiksviði lífsins Hörður Torfason skrifar Skoðun Ekki nóg að ráða – við þurfum að rækta Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason skrifar Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson skrifar Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson skrifar Skoðun Vaxtarmörk eða valdsmörk sveitarstjórna Orri Björnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa og leiðin til Siglufjarðar Pétur Heimisson skrifar Skoðun Sterkur skólabær – vinnum þetta saman Jóhannes Már Pétursson skrifar Skoðun Það sem skiptir raunverulega máli Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eru sum hús full af lífi en önnur tóm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Tónlistarborgin eflist! Skúli Helgason skrifar Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar
Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar
Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar
Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar
Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar
Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar