Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 2. febrúar 2026 06:45 Trump var viðstaddur frumsýningu heimildarmyndarinnar Melania í Kennedy-miðstöðinni um helgina. Myndin um eiginkonu forsetans verður líklega eitt af síðustu verkunum til að verða sýnt í miðstöðinni í bili. Getty/Dimitrios Kambouris Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því á Truth Social í gær að Kennedy-menningarmiðstöðinni yrði lokað í tvö ár og ráðist í endurbætur á húsnæði hennar.
Forsetinn sagði í færslu sinni að eftir vandlega íhugun hefði hann komist að þeirri niðurstöðu að húsnæðið væri í niðurníðslu og að hreinlegasta leiðin til að færa miðstöðina aftur til vegs og virðingar væri að loka henni og ráðast í umfangsmiklar endurbætur. Hún yrði mikilfenglegasta miðstöð sinnar tegundar að þeim loknum. Hvað sem forsetinn segir má leiða líkur að því að ákvörðunin hafi verið tekin í kjölfar þess að fjöldi heimsþekktra listamanna hefur fallið frá viðburðum í miðstöðinni eftir að Trump endurskipaði stjórn hennar, sem útnefndi hann stjórnarformann og ákvað að breyta heiti menningarmiðstöðvarinnar með því að skjóta nafni forsetans fyrir framan Kennedy. Miðstöðin heitir þannig The Donald Trump and the John F. Kennedy Memorial Center for the Performing Arts í dag. Það er að minnsta kosti það sem stendur utan á húsnæðinu en stofnunin var sett á með lögum, til minningar um John F. Kennedy og lögspekingar segja þingið þurfa að samþykkja nafnabreytinguna til að hún hafi formlegt gildi. Samkvæmt Washington Post dróst miðasala á viðburði miðstöðvarinnar saman um 43 prósent í fyrra. Þá ákvað þjóðaróperan í Washington að færa uppfærslur sínar annað, eftir 40 ár í miðstöðinni.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Fleiri fréttir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Sjá meira