Verður elsta skautakonan á Ólympíuleikunum í 98 ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2026 08:31 Deanna Stellato-Dudek og Maxime Deschamps keppa fyrir hönd Kanada á Vetrarólympíuleikunum. Getty/ Atsushi Tomura Kanadíska listskautakonan Deanna Stellato-Dudek er á leiðinni að keppa á sínum fyrstu Ólympíuleikum. Þótt það sé spennandi í sjálfu sér gerir sú staðreynd að hún er 42 ára það enn merkilegra.
Stellato-Dudek verður um leið elsta konan til að keppa í listskautahlaupi á Ólympíuleikum síðan í St. Moritz 1928, þar sem Ethel Muckelt, sem þá var einnig 42 ára, keppti fyrir hönd Bretlands. Hún verður elsta kanadíska konan til að keppa á vetrarólympíuleikum, fyrir utan krullu, síðan í Garmisch-Partenkirchen 1936. Stellato-Dudek mun skauta með paraskautafélaga sínum, Maxime Deschamps. Parið vann heimsmeistaramótið í listskautahlaupi 2024 og Fjögurra heimsálfa mótið 2024. Stellato-Dudek hefur unnið til sex verðlauna á ISU Grand Prix-mótaröðinni og er þrefaldur kanadískur meistari í listskautahlaupi. Hún er elsti listskautari til að vinna heimsmeistaratitil í nokkurri grein. Maxime Deschamps and Deanna Stellato-Dudek are off to #milanocortina2026 ⛸️ pic.twitter.com/iVnVulWArh— CBC Sports (@cbcsports) January 13, 2026 Þrátt fyrir að vera fædd í Park Ridge, Illinois og hafa keppt fyrir Bandaríkin í nokkur ár fékk Stellato-Dudek kanadískan ríkisborgararétt seint á árinu 2024 til að fá tækifæri til að skauta með Deschamps. Stellato-Dudek verður næstelsti Kanadamaðurinn sem tekur þátt í leikunum í ár. Eini eldri íþróttamaðurinn er krullukappinn Marc Kennedy, sem verður 44 ára daginn fyrir setningarathöfnina. Næstum áratug upp á dag síðan Deanna Stellato-Dudek dustaði rykið af gömlu listskautunum sínum í kjallara móður sinnar í Chicago til að hefja eina ótrúlegustu endurkomu íþróttasögunnar á síðari árum er kanadíska paraskautakonan nú á barmi þess að keppa á Ólympíuleikum í fyrsta sinn. The sacrifices many athletes know too well…After a 16-year break from figure skating, Deanna Stellato-Dudek opens up about the journey that brought her back to the ice.Watch the full documentary "Deanna's Dream" here 👉 https://t.co/5wJ6NU8ag4#MilanoCortina2026@ISU_Figure… pic.twitter.com/CUG88l6d6h— The Olympic Games (@Olympics) January 10, 2026 „Ég varð að hafa þennan kjark til að trúa því að ég gæti snúið aftur og látið þennan villta og galna draum rætast á hátt sem hafði aldrei verið gert áður,“ sagði Stellato-Dudek í nýjasta þætti hlaðvarpsins á heimasíðu Ólympíuleikanna. „Þessi saga er miklu stærri en ég,“ útskýrði Stellato-Dudek og rifjaði upp sextán ára hlé sitt eftir að hafa verið ein af fremstu skautakonum í unglingaflokki seint á tíunda áratugnum. „Hún snýst um allar konur á hvaða aldri sem er sem finnst þær vilja breyta einhverju og gera meira úr sjálfum sér en þær voru og að [ég gaf mér] leyfi til að gera það,“ sagði Stellato-Dudek. View this post on Instagram A post shared by Offside (@offside)
Skautaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Sjá meira