Hvernig verður Akureyri svæðisborg? Sindri S. Kristjánsson skrifar 4. febrúar 2026 07:02 Hvernig verður bær borg?Síðasta haust ályktaði Alþingi að fela ríkisstjórninni framkvæmd sérstakrar borgarstefnu fyrir árin 2025–2040. Með samþykkt borgarstefnu hefur Alþingi viðurkennt mikilvægi þess að efla Akureyri sem formlega svæðisborg. Þetta er ekki einungis táknræn yfirlýsing heldur felur hún í sér viðurkenningu á því að Akureyri sé drifkraftur þjónustu, menningar og efnahagslífs fyrir miklu stærra svæði en sem nemur sveitarfélagsmörkum Akureyrar. Framtíðarsýnin er metnaðarfull. Akureyri á að vera miðpunktur svæðisins þar sem íbúar njóta fjölbreyttrar menntunar, hágæða heilbrigðisþjónustu og greiðra samgangna, jafnt innanlands sem og til útlanda. Markmiðið er að skapa enn öflugra svæði atvinnu og þjónustu sem virkar sem ein heild þegar kemur að búsetu og þjónustu. En þessi markmið munu hvorki nást og né mun þessi sýn verða að veruleika ef engar eru aðgerðirnar, ef ekkert er framkvæmt. Án beinna aðgerða og samþættingar við aðra opinbera áætlanagerð, s.s. samgöngu- og innviðaáætlanir, mun stefnan ekki verða að veruleika. Það er nauðsynlegt að bæjarstjórn, borgarstjórn og ríkisstjórn snúi bökum saman, setji á fót og nýti þann formlega samstarfsvettvang sem stefnan kveður á um til að hrinda í framkvæmd hinum svokölluðu lykilviðfangsefnum stefnunnar. Kröftug uppbygging innviða sem styður við vöxt Akureyrar sem svæðisborgar eru nauðsynleg til að ná fram þeim efnahagslega og menningarlega drifkrafti sem að er stefnt. Borgarstefna er 2025-2040 er gott nauðsynlegt fyrsta skref, en hún er aðeins fyrsta skrefið. Ef Íslendingum er alvara með því að hlúa að og styðja við byggð utan svæðisins sem afmarkast af Hvítá og Hvítá, og tryggja raunverulega valkosti í búsetu á Íslandi, verðum við að hefjast handa sem allra fyrst. Höfundur er Akureyringur og varaþingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Akureyri Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sindri S. Kristjánsson Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Hvernig verður bær borg?Síðasta haust ályktaði Alþingi að fela ríkisstjórninni framkvæmd sérstakrar borgarstefnu fyrir árin 2025–2040. Með samþykkt borgarstefnu hefur Alþingi viðurkennt mikilvægi þess að efla Akureyri sem formlega svæðisborg. Þetta er ekki einungis táknræn yfirlýsing heldur felur hún í sér viðurkenningu á því að Akureyri sé drifkraftur þjónustu, menningar og efnahagslífs fyrir miklu stærra svæði en sem nemur sveitarfélagsmörkum Akureyrar. Framtíðarsýnin er metnaðarfull. Akureyri á að vera miðpunktur svæðisins þar sem íbúar njóta fjölbreyttrar menntunar, hágæða heilbrigðisþjónustu og greiðra samgangna, jafnt innanlands sem og til útlanda. Markmiðið er að skapa enn öflugra svæði atvinnu og þjónustu sem virkar sem ein heild þegar kemur að búsetu og þjónustu. En þessi markmið munu hvorki nást og né mun þessi sýn verða að veruleika ef engar eru aðgerðirnar, ef ekkert er framkvæmt. Án beinna aðgerða og samþættingar við aðra opinbera áætlanagerð, s.s. samgöngu- og innviðaáætlanir, mun stefnan ekki verða að veruleika. Það er nauðsynlegt að bæjarstjórn, borgarstjórn og ríkisstjórn snúi bökum saman, setji á fót og nýti þann formlega samstarfsvettvang sem stefnan kveður á um til að hrinda í framkvæmd hinum svokölluðu lykilviðfangsefnum stefnunnar. Kröftug uppbygging innviða sem styður við vöxt Akureyrar sem svæðisborgar eru nauðsynleg til að ná fram þeim efnahagslega og menningarlega drifkrafti sem að er stefnt. Borgarstefna er 2025-2040 er gott nauðsynlegt fyrsta skref, en hún er aðeins fyrsta skrefið. Ef Íslendingum er alvara með því að hlúa að og styðja við byggð utan svæðisins sem afmarkast af Hvítá og Hvítá, og tryggja raunverulega valkosti í búsetu á Íslandi, verðum við að hefjast handa sem allra fyrst. Höfundur er Akureyringur og varaþingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun