Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 22:58 Anya Taylor-Joy og Malcom McRae. EPA Vopnaður ræningi sem reyndu að komast inn í svefnherbergi bandarísku leikkonunnar Anya Taylor-Joy og eiginmanns hennar Malcom McRae hefur verið úrskurðaður í fangelsi.
Atvikið átti sér stað 12. febrúar 2023 þegar hjónin dvöldu í glæsihýsi í Lundúnum í Bretlandi. Þau heyrðu gler brotna þegar Kirk Holdrick og félagi hans brutu rúðu til að komast inn í húsið. McRae mætti þjófunum tveimur en hjónin fóru síðan bæði inn í svefnherbergi og lokuðu dyrunum kyrfilega. Þjófarnir tveir reyndu að brjóta upp dyrnar með kúbeini. McRae náði hins vegar að sannfæra þá um að lampi sem hann hélt á væri í raun byssa. Þjófarnir flúðu vettvang tómhentir samkvæmt umfjöllun BBC. Málið var tekið fyrir í Bretlandi og hefur Holdrick, sem er 43 ára, verið úrskurðaður í fangelsi. Þar sem þjófarnir tóku ekkert með sér færðu saksóknararnir rök fyrir því að þeir hefðu brotist inn til að nálgast Taylor-Joy og McRae. Holdrick var handtekinn í apríl 2023 í Liverpool. Erfðaefni hans fannst á vettvangi en sagðist hann hafa verið gestur í teiti sem haldið hafði verið í húsinu. Hann játaði síðar sök í málinu. Anya Taylor-Joy er helst þekkt fyrir leik sinn í þáttaröðinni The Queens Gambit og hlutverk sitt í Dune-kvikmyndunum. Hjónin hittust fyrst árið 2021 og giftu sig í leyni í apríl 2022. Þau héldu annað brúðkaup í Feneyjum árið 2023. Hótaði ofbeldi Níu dögum eftir að Holdrick braust inn til hjónanna tók hann þátt í öðru ráni. Holdrick og Ashley Fulton, félagi hans, þóttust vera lögreglumenn og brutust inn á heimili Mark Aitchison, auðugs kaupsýslumanns. Kerry, eiginkona Marks, var ein heima og sagðist óttast að hún yrði myrt ef hún myndi ekki opna peningaskáp á heimili þeirra. Emily, dóttir hjónanna, kom síðan heim og voru mæðgurnar bundnar niður og þeim hótað ofbeldi. Holdrick og Fulton komust á brott með þýfi að andvirði rúmra 33 milljóna íslenskra króna. Þeir skildu hins vegar eftir erfðaefni á vettvangi og var Holdrick dæmdur í tólf ára fangelsi.
Hollywood Erlend sakamál Bretland England Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira