Viðskipti innlent

Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III

Árni Sæberg skrifar
Sigurður Arnljótsson, Kolbeinn Björnsson, Soffía T. Tryggvadóttir, Óskar F. Vilmundarson og Árni Blöndal mynda starfslið Brunns.
Sigurður Arnljótsson, Kolbeinn Björnsson, Soffía T. Tryggvadóttir, Óskar F. Vilmundarson og Árni Blöndal mynda starfslið Brunns. Brunnur

Stofnaður hefur verið 7,2 milljarða króna vísisjóður, Brunnur III, með þátttöku ellefu íslenskra lífeyrissjóða, Nýsköpunarsjóðsins Kríu og Silfurbergs ehf. Sjóðurinn hefur lokið áskriftarsöfnun en hefur heimild til stækkunar upp í tíu milljarða króna með þátttöku fagfjárfesta fyrir lok febrúar.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Brunnur III fjárfesti í sprota- og vaxtarfyrirtækjum, með það markmið að styðja við öflug teymi sem byggja upp alþjóðleg fyrirtæki frá Íslandi. Brunnur Ventures GP reki einnig vísisjóðina Brunn I og Brunn II sem ábyrgðaraðili, í samvinnu við Landsbréf hf. sem rekstraraðili, sem séu hvor um sig fimm milljarða króna og 8,3 milljarða króna að stærð. 

Hafa fjárfest í 27 fyrirtækjum

Fyrsti vísisjóðurinn, Brunnur I hafi verið stofnaður árið 2015 og hafi frá upphafi fjárfest í ellefu fyrirtækjum. Brunnur II hafi verið stofnaður 2021 og hafi frá upphafi fjárfest í sextán fyrirtækjum. Báðir sjóðirnir hafi lokið fjárfestingatímabili og séu fullfjárfestir.

„Eins og fyrri sjóðir mun Brunnur III fjárfesta í sprota- og vaxtarfyrirtækjum á hugmynda-, klak- og vísistigi. Áhersla er lögð á félög á Íslandi, leidd af framúrskarandi frumkvöðlum, eru gjaldeyrisskapandi með skalanlegan rekstur, sem byggja á hugviti á sviði gervigreindar, líftækni, leikjaiðnaðar, fjártækni, hátækni, djúptækni, hugbúnaðarlausnir á fyrirtækja- og neytendamarkaði (e. B2B / B2C) ásamt orku- og matvælatækni. Sjóðurinn byggir á faglegri umgjörð og nýtir áratuga reynslu, sambönd og þekkingu fjárfestingastjóra.“

Mikilvægt að nýir vísissjóðir verði reglulega stofnaðir

Haft er eftir Árna Blöndal, meðstofnanda og fjárfestingastjóra hjá Brunni, að stofnun Brunns III séu góð tíðindi fyrir íslenska nýsköpun.

„Það er mikilvægt að hér á landi verði reglulega til nýir vísisjóðir. Frá 2015 hafa nú verið stofnaðir 11 vísisjóðir með aðkomu íslenskra lífeyrissjóða, nýsköpunarsjóðsins Kríu og annarra fagfjárfesta. Þessi eignaflokkur hefur sannað gildi sitt út frá ávöxtun en um leið býr þessi starfsemi til verðmæt þekkingarstörf og ýtir undir hugverkadrifinn hagvöxt.“

„Við fögnum aðkomu Nýsköpunarsjóðsins Kríu í sjóðinn. Kría er vitnisburður um hvernig aðkoma stjórnvalda gagnast við að skapa samfellu í rekstri vísisjóða á Íslandi. Það eru einstök tækifæri til að fjárfesta núna, því gervigreindin er að umbreyta atvinnugreinum, skapa nýja markaði og móta næstu kynslóð leiðandi fyrirtækja,“ er haft eftir Sigurði Arnljótssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra hjá Brunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×