Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 4. febrúar 2026 20:30 Skipið þegar áhöfn TF-GRO kom að því í dag. Skipverji á erlendu fiskiskipi var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík eftir að vír slitnaði um borð og hafnaði á brjóstkassa hans. Slysið varð á úthafi vestur af Íslandi.
Landhelgisgæslan greinir frá því í tilkynningu að skipstjóri skipsins hafi í gær haft samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskað eftir aðstoð. Skipið var þá statt um 450 sjómílur vestur af Reykjavík, töluvert fyrir utan íslenska efnahagslögsögu. Haft var samband við björgunarmiðstöðin í Nuuk á Grænlandi en engin björgunarþyrla reyndist tiltæk á austurströnd landsins. SKipstjórinn var beðinn um að sigla í átt að Íslandi og inn í íslenska efnahagslögsögu svo unnt yrði að senda þyrlu til móts við skipið. Þyrlusveitin var kölluð út sem og áhöfnin á TF-SIF eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar eins og venja er þegar útköll berast svo langt á hafi úti. Á fimmta tímanum í dag kom áhöfn flugvélarinnar að skipinu og fór yfir móttöku þyrlu með skipstjóra og gaf leiðbeiningar fyrir flutning þess slasaða um borð í þyrluna. Laust fyrir klukkan fimm kom áhöfnin á TF-GRO þyrlu Landhelgisgæslunnar á staðinn og hóf hífingar um 170 sjómílum vestur af Garðskaga sem gengu vel. TF-SIF flýgur yfir skipiðLandhelgisgæslan Að því búnu var flogið með þann slasaða til Reykjavíkur en þyrlusveitin lenti á Reykjavíkurflugvelli á sjöunda tímanum. Þar beið sjúkrabíll og flutti þann slasaða á Landspítalann.
Landhelgisgæslan Sjávarútvegur Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira