Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Agnar Már Másson skrifar 5. febrúar 2026 23:29 Bíll hefur hafnað ofan á vegriði eftir umferðarslys á Miklubraut. Vísir/Örvar Fjöldi viðbragðsaðila var ræstur út vegna alvarlegs bílslyss á Miklubraut í Reykjavík í gærkvöldi, þar sem einn bíll virtist hafa hafnað ofan á vegriði. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu nú í morgunsárið var einn fluttur á sjúkrahús og ein bifreið tjónuð.
Lítið er annars vitað um slysið en útkallið barst slökkviliði og lögreglu á tólfta tímanum í og eftir klukkan eitt voru viðbraðgsaðilar enn á vettvangi. Steinþór Darri Þorsteinsson, varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við Vísi rétt fyrir miðnætti að um alvarlegt slys væri að ræða en að öðru leyti kvaðst hann ekki vita meira um slysið. Vettvangur slyssins á Miklubraut er fyrir neðan Rauðagerði og skammt vestur af umferðarslaufunni sem tengir Miklubraut og Sæbraut/Reykjanesbraut. Lögregla lokaði fyrir nokkurra hundruða metra vegkafla á Miklubraut. Svo virðist sem bifreið hafi hafnað með afturdekkin ofan á vegriði og framan á staur á umferðareyju sem skilur akreinarnar að. Mikið tjón varð á ökutækinu. Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Á annan tug slökkviliðs-, lögreglu- og sjúkrafluttningabíla voru á vettvangi en Steinþór varðstjóri sagði að tveir dælubílar hefðu verið kallaðir út og fjöldi sjúkraflutningabíla úr nágrenninu. Þegar blaðamaður mætti á vettvang upp úr miðnætti hafði einhver fjöldi fólks, aðallega unglingar, safnast við slysstað til að fylgjast með aðgerðum úr fjarlægð. Lögreglumenn sáu til þess að vegfarendur kæmust ekki nálægt aðgerðasvæðinu og mótmæltu öllum myndatökum harðlega. Á vettvangi mátti sjá staka hálkubletti glitra á malbikinu. Laganna verðir voru einnig staðsettir víða um hverfið til að beina umferð fram hjá slysinu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Slökkvilið Reykjavík Samgönguslys Banaslys á Miklubraut 2026 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira