„Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 6. febrúar 2026 12:17 Guðlaugi hafa borist símtöl og skilaboð frá hátt í fjörutíu manneskjum sem búa yfir sárri reynslu vegna dvalar á fósturheimilinu Bakkakoti. Vísir/Vilhelm Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið. Þetta segir formaður Félags fósturforeldra. Lausnin sé ekki endilega að teikna upp nýtt kerfi utan um fósturbörn heldur miklu frekar að stjórnvöld tryggi að verkefnum sveitarfélaga gagnvart fósturbörnum sé sinnt. Hann hefur fengið skilaboð og símtöl frá hátt í fjörutíu manns sem sé með brotna æsku eftir dvölina á Bakkakoti.
Kveiksþátturinn um menn sem voru sem börn sendir í fóstur á sveitabæinn Bakkakot og lýsa grófu ofbeldi hefur vakið upp umræðu í samfélaginu. Þrír þeirra áttu fund með forsætisráðherra í gær. Guðlaugur Kristmundssson, formaður Félags fósturforeldra, segist ekki binda neinar vonir við að málaflokkur fósturbarna batni með frumvarpi sem er í farvatninu þrátt fyrir samtöl félagsins við ráðuneytið. „Það má bara sjá í athugasemd að það standi nú ekki til að endurskoða fósturkaflann og þá standi til að gera það síðar. Þetta eigi að bíða betri tíma.“ Guðlaugur segir kaflann um fósturbörn og foreldra alltaf mæta afgangi og stjórnvöld beri fyrir sig skort á upplýsingum. „En sama þó að það liggi fyrir, þá hefur aldrei verið farið í þá vinnu að bregðast við því og fara í gagnasöfnun þar sem, og ástæðan er hreinlega að málaflokkurinn liggur hjá öllum sveitarfélögunum og eftirlitið hjá sveitarfélögunum er brotið.“ Svarið sé ekki að kollvarpa kerfinu heldur að menn fari að lögum. „Og sveitarstjórnir, sveitarstjórar, þurfa núna bara aðeins að horfa inn á við og skoða bara, er búið að heimsækja bornin sem mitt sveitarfélag sendi í fóstur?“ Þá vill hann að allt sveitarstjórnarfólk íhugi og komist að raun um stöðu barnanna: „Sendi mitt sveitarfélag börn í Bakkakot? Eru börn frá mínu sveitarfélagi í dag á einhverju Bakkakoti í dag um landið?“ Hátt í fjörutíu manns hafa sett sig í samband við Guðlaug frá því Bakkakotsmálið kom upp. „Ég gat ekki ímyndað mér að það hefðu ljótari hlutir átt sér stað í Bakkakoti en höfðu þegar komið fram í fjölmiðlum nú þegar. Og ég skil það miðað við þessar lýsingarnar. Þetta er svo ógeðslegt,” sagði Guðlaugur sem var augljóslega mikið sleginn vegna frásagnanna. „Það er svo mikill sársauki hjá þessu fólki og ég finn svo til með því. Og þetta er fólk sem bara lifir sinn dag og getur ekki sagt maka sínum eða fjölskyldunni sinni frá því að það var þarna. En það hefur hringt inn í mig og sagt mér frá því. Og ég er bara þakklátur fyrir það og mig langar, mig langar að vera til staðar fyrir þetta fólk. Þetta var ekki í lagi,“ segir Guðlaugur.
Fósturbörn Fósturfjölskyldur Fjölskyldumál Guðlaugur Kristmundsson Mál fósturbarna á Bakkakoti Tengdar fréttir Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Formaður Félags fósturforeldra fer hörðum orðum um kerfi sem passa eigi upp á fósturbörn og -foreldra en framkvæmi ekki lögboðið eftirlit. Hann gefur lítið fyrir orð bæði forsætisráðherra og forstjóra Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) um málefni fósturfjölskyldna. Könnun félagsins sýni fram á að ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturforeldra. 6. febrúar 2026 11:33 Nei forsætisráðherra, þessi ríkisstjórn eins og allar hinar, ætluðu að skila auðu í málefnum fósturbarna Ég vil fara aðeins yfir það með þér í þessari grein hvers vegna svo er. 6. febrúar 2026 08:17 „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Þrír menn sem vistaðir voru á sveitabænum Bakkakoti í barnæsku og beittir grófu ofbeldi yfir langt skeið hittu forsætisráðherra í stjórnarráðinu í dag. Þeir vilja að fósturkerfið verði tekið til alvarlegrar skoðunar og hvetja fleiri til að stíga fram. 5. febrúar 2026 19:02 Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira
Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Formaður Félags fósturforeldra fer hörðum orðum um kerfi sem passa eigi upp á fósturbörn og -foreldra en framkvæmi ekki lögboðið eftirlit. Hann gefur lítið fyrir orð bæði forsætisráðherra og forstjóra Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) um málefni fósturfjölskyldna. Könnun félagsins sýni fram á að ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturforeldra. 6. febrúar 2026 11:33
Nei forsætisráðherra, þessi ríkisstjórn eins og allar hinar, ætluðu að skila auðu í málefnum fósturbarna Ég vil fara aðeins yfir það með þér í þessari grein hvers vegna svo er. 6. febrúar 2026 08:17
„Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Þrír menn sem vistaðir voru á sveitabænum Bakkakoti í barnæsku og beittir grófu ofbeldi yfir langt skeið hittu forsætisráðherra í stjórnarráðinu í dag. Þeir vilja að fósturkerfið verði tekið til alvarlegrar skoðunar og hvetja fleiri til að stíga fram. 5. febrúar 2026 19:02