Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Eiður Þór Árnason skrifar 6. febrúar 2026 18:41 Farþegaþota SAS var nálægt því að lenda á eldsneytistönkum flugvallarins. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Getty/picture alliance/Steffen Trumpf Mikil hætta var á ferðum á Brussel-flugvelli í gær þegar flugstjóri ætlaði að hefja þotu SAS til lofts á akbraut í stað þess að fara inn á flugbraut. Flugvélin hafði náð yfir 200 kílómetra hraða á klukkustund þegar henni var nauðhemlað. Farþegar sluppu vel frá atvikinu en þotan nam staðar skammt frá fjölda eldfimra eldsneytistanka.
Þetta kemur fram í frétt belgíska miðilsins Nieuwsblad. Níu Íslendingar voru um borð í vélinni sem var á leið frá Brussel til Kaupmannahafnar. „Þetta hefði getað endað með hörmulegum afleiðingum,“ segir Luk De Wilde flugmálasérfræðingur í samtali við belgíska miðilinn. Atvikið sé mjög óvenjulegt og flugmennirnir hafi naumlega komið í veg fyrir að illa færi. Farþegi lýsti því í samtali við fréttastofu í dag hvernig farþegaþotan hafnaði á grasi eftir misheppnaða tilraun til flugtaks. Alls voru 165 farþegar um borð og átti atvikið sér stað um klukkan 22 á staðartíma í gær. „Eftir smá tíma byrjar hún að negla niður því hún er augljóslega að hætta við flugtakið. Það er látið reyna á allar bremsur vélarinnar þannig að hún hristist öll og skelfur, og færist aðeins til,“ sagði Finnur Geir Beck, framkvæmdastjóri Samorku, sem var nokkuð brugðið. Flugstjórinn hafi svo greint farþegum frá því að ástæðan fyrir nauðhemluninni hafi verið að vélin hafi verið á rangri flugbraut. Ariane Goossens, talskona Brussel-flugvallar, segir að flugvélin hafi byrjað flugtak sitt á akbraut í stað flugbrautar. „Akbrautin er eingöngu notuð til að færa flugvélar á milli flugstöðvarinnar og flugbrautarinnar.“ Þotan átti upphaflega að leggja af stað til Kaupmannahafnar klukkan 20:30 en var seinkað um níutíu mínútur. Klukkan 22:04 að staðartíma í Brussel fór þotan loks frá flugstöðinni með áðurnefndum afleiðingum. Alvarleg mistök „Það hefði tekið flugvélina í mesta lagi þrjár eða fjórar sekúndur í viðbót til að ná þeim hraða sem hefði þurft til að taka á loft,“ segir Luk De Wilde í samtali við Nieuwsblad. Hann telji að akbrautin sé of stutt til að ná flugtaki og atvikið getað endað með ósköpum. De Wilde segir allt benda til þess að flugstjóri og aðstoðarflugmaður hafi þarna gert alvarleg mistök. „Í hverri flugferð fljúga flugmennirnir tveir „hver fyrir sig“. „Það er ákveðið fyrir fram hver flýgur og hver hefur eftirlit,“ segir De Wilde. „Annar flýgur í raun og veru og stjórnar stjórntækjum en hinn heldur sambandi við flugumferðarstjórn og fylgist með kortum og flugleiðum. Að hvorugur þeirra hafi tekið eftir því að þeir voru á akbrautinni, en ekki flugbrautinni, er sannarlega merkilegt og einstakt.“ Ekki leyft að fara í flugstjórnarklefa á næstunni Í frétt Nieuwsblad er greint frá því að út frá samskiptum flugmannanna við flugumferðarstjórn virðist þeir hafa áttað sig á mistökunum rétt í tæka tíð. De Wilde fullyrðir að umrædd flugbraut sé ekki reglulega notuð á flugvellinum en hafi verið oftar fyrir valinu síðustu vikur vegna vindáttar. „Þekktu flugmennirnir ekki þessa flugbraut og gerðu því mistök? Spilaði tímapressa einnig þátt þar sem búið var að seinka flugtaki? Rannsókn þarf nú að leiða það í ljós. Ég geri ráð fyrir að báðir flugmennirnir verði sendir í leyfi á meðan rannsókn stendur yfir. Hvorugum þeirra verður leyft að fara aftur í stjórnklefann á morgun eða í næstu viku. Þetta er alvarlegt atvik.“ Atvikið er nú til rannsóknar hjá belgískum samgönguyfirvöldum.
Belgía Fréttir af flugi Samgönguslys Tengdar fréttir Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Níu manna hópur frá Íslandi var um borð í flugvél SAS sem hafnaði í grasi utan brautarinnar eftir tilraun til flugtaks. Finnur Geir Beck, framkvæmdastjóri Samorku, var meðal farþega. 6. febrúar 2026 12:15 Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Flugvél SAS, sem átti að leggja af stað frá Brussel í Belgíu til Kaupmannahafnar í Danmerkur í gærkvöldi, fór aldrei í loftið eftir að vélin hafnaði í grasi utan brautar eftir tilraun til flugtaks af akbraut en ekki flugbraut. Farþegar voru um borð í vélinni sem var rýmd laust fyrir miðnætti í gærkvöldi og var farþegum útvegað pláss með öðru áætlunarflugi félagsins síðar. 6. febrúar 2026 08:56 Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Fleiri fréttir Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Sjá meira
Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Níu manna hópur frá Íslandi var um borð í flugvél SAS sem hafnaði í grasi utan brautarinnar eftir tilraun til flugtaks. Finnur Geir Beck, framkvæmdastjóri Samorku, var meðal farþega. 6. febrúar 2026 12:15
Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Flugvél SAS, sem átti að leggja af stað frá Brussel í Belgíu til Kaupmannahafnar í Danmerkur í gærkvöldi, fór aldrei í loftið eftir að vélin hafnaði í grasi utan brautar eftir tilraun til flugtaks af akbraut en ekki flugbraut. Farþegar voru um borð í vélinni sem var rýmd laust fyrir miðnætti í gærkvöldi og var farþegum útvegað pláss með öðru áætlunarflugi félagsins síðar. 6. febrúar 2026 08:56