Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. febrúar 2026 14:59 Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu. Vísir/Vilhelm Afstaða-félag fanga segir að fjórþættar aðgerðir sem stjórnvöld hafi tilkynnt vegna Bakkakotsmálsins nái ekki til allra einstaklinga sem málið varði. Einn sem hafi orðið fyrir ofbeldi á vistheimilinu í æsku sitji nú í fangelsi á Spáni þar sem hann hafi hvorki fengið endurhæfingu né áfallastuðningi. Félagið segir engan mega vera skilinn eftir.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu frá félaginu. Líkt og komið hefur fram kynnti Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í vikunni fjórþættar aðgerðir sem gripið verður til vegna barna sem beitt voru ofbeldi í Bakkakoti. Þangað var fjöldi barna sendur í vistun á að minnsta kosti 27 ára tímabili. Í aðgerðunum felst að staða vistbarna á Bakkakoti verði rannsökuð, að þeim verði boðin sálfræðiaðstöð, að gerð verði úttekt á stöðu fósturbarna á Íslandi og að sanngirnisbótakerfið verði endurskoðað. Hafi engan stuðning fengið Í tilkynningu Afstöðu segir að félagið fagni því að ríkisstjórnin hafi boðað aðgerðir í kjölfar alvarlegra upplýsinga um ofbeldi og kerfisbresti í tengslum við Bakkakot. Sú ákvörðun að veita þolendum stuðning og ráðast í úttektir sé mikilvægt skref í átt að viðurkenningu ábyrgðar og réttarbóta. „Samtökin telja þó að aðgerðirnar nái ekki til allra þeirra einstaklinga sem málið varðar. Einn þeirra sem varð fyrir ofbeldi á Bakkakoti situr nú í fangelsi á Spáni þar sem hann hefur hvorki fengið endurhæfingu né áfallastuðning. Þrátt fyrir að vera hluti af sama hópi hefur hann verið skilinn eftir utan þeirra aðgerða sem nú eru boðaðar.“ Segist félagið hafa unnið að því í um þrjú ár að fá hann fluttan heim í afplánun. Öll nauðsynleg gögn liggi fyrir og samþykki veitt en málið tafist vegna yfirfulls fangelsiskerfis og skorts á úrræðum hér á landi. Fleiri íslenskir fangar bíði einnig eftir flutningi heim til Íslands við sambærilegar aðstæður. Hvetja stjórnvöld til að bæta við fimmtu aðgerðinni Þá sé mikilvægt að hafa í huga að langflestir sem sitji í íslenskum fangelsum eigi sér mikla áfallasögu. Ef ekki sé unnið markvisst með áföll og afleiðingar þeirra verði samfélagið áfram fast í hringrás refsinga, endurkomu og brota. Segir félagið að raunveruleg ábyrgð felist í að viðurkenna þessa staðreynd og bregðast við með úrræðum sem miði að bata og samfélagslegri þátttöku. „Afstaða hvetur stjórnvöld til að bæta við fimmtu aðgerðinni í Bakkakotsmálinu sem felur í sér að tryggja tafarlausan flutning þessa einstaklings heim í afplánun og jafnframt setja aukinn þrýsting á flutning annarra íslenskra fanga sem bíða erlendis. Jafnframt er kallað eftir endurskoðun á fullnustukerfinu með það að markmiði að fangelsi séu skilgreind sem endurhæfingar og menntastofnanir þar sem áfallastuðningur menntun og meðferð eru í forgangi. Ef stjórnvöld ætla að axla ábyrgð á kerfisbrestum fortíðarinnar verður sú ábyrgð að ná til allra þeirra sem enn búa við afleiðingar þeirra. Enginn má vera skilinn eftir.“
Ofbeldi gegn börnum Fangelsismál Mál fósturbarna á Bakkakoti Tengdar fréttir Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Forsætisráðherra kynnti í dag fjórþættar aðgerðir sem ríkisstjórnin hyggst grípa til vegna barna sem beitt voru ofbeldi um árabil í Bakkakoti. Formaður félags fósturforeldra segir bæði fósturforeldra og starfsfólk barnaverndar hafa upplifað algjört afskiptaleysi stjórnvalda í málinu. 6. febrúar 2026 20:31 „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Framkvæmdastýra Rótarinnar segir nauðsynlegt fyrir framtíð barnaverndar- og meðferðakerfisisins alls að allur starfstími Barnaverndarstofu, frá 1995 til 2021, verði gerður upp. Tilefnið er umfjöllun um ofbeldi á börnum á Bakkakoti á Rangárvöllum á árunum 1975 til 2002. 7. febrúar 2026 23:30 Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Sjá meira
Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Forsætisráðherra kynnti í dag fjórþættar aðgerðir sem ríkisstjórnin hyggst grípa til vegna barna sem beitt voru ofbeldi um árabil í Bakkakoti. Formaður félags fósturforeldra segir bæði fósturforeldra og starfsfólk barnaverndar hafa upplifað algjört afskiptaleysi stjórnvalda í málinu. 6. febrúar 2026 20:31
„Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Framkvæmdastýra Rótarinnar segir nauðsynlegt fyrir framtíð barnaverndar- og meðferðakerfisisins alls að allur starfstími Barnaverndarstofu, frá 1995 til 2021, verði gerður upp. Tilefnið er umfjöllun um ofbeldi á börnum á Bakkakoti á Rangárvöllum á árunum 1975 til 2002. 7. febrúar 2026 23:30