Ólík úrslit hjá Hafnafjarðarliðunum: Dagur tryggði ÍBV sigur á Ásvöllum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. febrúar 2026 17:41 Dagur Arnarsson var hetjan dagsins hjá Eyjamönnum með því að skora sigurmarkið undir blálokin. Vísir/Hulda Margrét FH sótti sigur á Akureyri í Olísdeild karla í handbolta í kvöld en Haukarnir töpuðu á móti ÍBV á heimavelli sínum á sama tíma.
Dagur Arnarsson tryggði ÍBV 29-28 sigur á Haukum á Ásvöllum með marki á lokasekúndum leiksins. Dagur var markahæstur hjá ÍBV með sjö mörk en Hákon Daði Styrmisson skoraði einnig sjö mörk. Sveinn José Rivera var síðan með sex mörk og Andri Erlingsson var með sjö stoðsendingar og tvö mörk. Skarphéðinn Ívar Einarsson var markahæstur hjá Haukum með sjö mörk en þeir Össur Haraldsson og Freyr Aronsson skoruðu fimm mörk hvor. Petar Jokanovic átti stórleik í Eyjamarkinu, var lengi vel með yfir fimmtíu prósent markvörslu og endaði með nítján skot varin. Þetta var þriðji deildarsigur Eyjamanna í röð og þeir nálgast efstu liðin. Haukarnir misstu aftur á móti Valsmenn upp fyrir sig og eru því í öðru sæti. Garðar Ingi Sindrason, verðandi leikmaður Gummersbach í Þýskalandi, átti mjög flottan leik fyrir norðan þegar FH-ingar unnu fimm marka sigur á Þór Akureyri. FH vann leikinn 26-21 eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik, 13-12. Þetta var fjórði deildarsigur FH-liðsins í röð en þriðja heimatap Þórsliðsins í röð. Garðar Ingi skoraði tíu mörk fyrir FH og var langmarkahæstur á vellinum. Jakob Martin Ásgeirsson var með fjögur mörk og þeir Birkir Benediktsson, Birgir Már Birgisson og Ómar Darri Sigurgeirsson voru allir með þrjú mörk. Þórður Tandri Ágústsson skoraði mest fyrir Þór eða fjögur mörk.
Olís-deild karla Haukar FH ÍBV Þór Akureyri Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Íslenski boltinn Þór - Stjarnan | Heimamenn í mikilli fallbaráttu Íslenski boltinn Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Fótbolti Fleiri fréttir Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Sjá meira