Viljum við flókið kerfi milliliða eða einfaldari leið að grunnþjónustu? Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar 9. febrúar 2026 09:30 Það er jákvætt að ríkið setji meira fjármagn í almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og ætli sér að koma meira að rekstrinum með tilkomu nýs félags um almenningssamgöngur. Það sem hins vegar vekur áhyggjur er áherslan á aukna útvistun, sem vagnstjórar hafa ítrekað gagnrýnt í gegnum tíðina. Við þurfum að spyrja okkur hvort útvistun af hendi hins opinbera hafi sýnt fram á að þar sé vel farið með almannafé? Er þetta skynsöm leið fyrir þá sem reiða sig á þjónustuna og er útvistun góð fyrir það starfsfólk sem fengið er til að sinna útvistuðum verkefnum hins opinbera? Að lokum má ekki gleyma því að spyrja: Hver ber raunverulegan kostnað? Mætti líkja útvistun við hugmyndafræðilegt illgresi? Umræðan um útvistun er oft yfirborðskennd og orðið notað án þess að fólk átti sig á afleiðingum útvistunar. Í þeim skilningi má líkja útvistun við hugmyndafræðilegt illgresi: hugmynd sem festir rætur í kerfinu, dreifist hratt og sjaldan er spurt hvort það henti í raun þeim jarðvegi sem það vex í. Útvistun felur í sér að fyrirtæki eða stofnun kaupir þjónustu frá utanaðkomandi aðilum. Strætó bs. hefur til dæmis ekki ráðið alla vagnstjórana beint til sín, heldur greitt einkafyrirtækjum fyrir að útvega þá. Þetta er oft réttlætt með því að útvistun sé „hagkvæmari“, það er að segja ódýrari í krónum talið. Afleiðingin af þessu skipulagi er sú að kostnaðurinn er færður yfir á starfsfólk. Þessi svokallaða hagkvæmni byggir á því að starfsfólk fær lægri laun og verri kjör en ef það væri ráðið beint af sveitarfélaginu. Í gegnum tíðina hefur hið opinbera því miður notað útvistun sem leið til að lækka launakostnað. Það bitnar fyrst og fremst á starfsfólkinu en áhrifin ná lengra. Útvistun bitnar á vinnustaðnum sem heild Útvistun hefur ekki aðeins áhrif á einstaklinginn heldur líka vinnustaðamenningu, samstöðu og gæði þjónustunnar. Tökum sem dæmi ræstingarstarfsfólk sem þrífur opinberar stofnanir. Er það hluti af vinnustaðnum? Fær það að borða í mötuneytinu eða mæta á árshátíðina? Líklega ekki. Starfsfólk tilheyrir ekki heildinni heldur starfar fyrir einkafyrirtæki sem gerir kröfur um að þrífa sem flestar stofnanir á sem skemmstum tíma. Starfsmaður sem vinnur á sama vinnustað dag eftir dag þekkir húsnæðið, þarfirnar og ábyrgðina sem fylgir. Útvistun rífur þennan stöðugleika. Útvistun býr til óþarfa flækjustig Með útvistun þarf að skilgreina allt í þaula. Í ræstingum þýðir það að nákvæmlega þarf að tilgreina hvað er þrifið, hvenær og með hvaða hætti. Verk sem falla utan útboðsskilmála eru einfaldlega ekki unnin, jafnvel þótt þörfin sé öllum augljós. Afleiðingin er stíft kerfi sem bregst illa við óvæntum aðstæðum. Sveigjanleikinn tapast þegar starfsfólk tilheyrir ekki vinnustaðnum, heldur er bundið af samningum og tímaáætlunum sem miða að því að þjóna sem flestum á sem skemmstum tíma. Ýmislegt getur komið upp á sem ræstingarfólk gæti auðveldlega leyst ef þau væru ekki á hlaupum milli margra vinnustaða. Í þessu kerfi ber enginn beina ábyrgð og því erfitt að leysa smærri vandamál áður en þau vaxa. Flækjustigið hefur raunverulegan kostnað. Tími fer í samningsgerð, eftirlit og ágreining um túlkun einstakra atriða og peningar fara í millistjórn og umsýslu. Á meðan verður þjónustan ósveigjanlegri. Og að lokum eru það íbúarnir sem borga brúsann fyrir kerfi sem er óskilvirkt og mun flóknara og viðkvæmara en það þarf að vera. Stöldrum við Stöldrum aðeins við og spyrjum hvað við viljum fá fyrir þann pening sem hið opinbera leggur í grunnþjónustu á borð við almenningssamgöngur og þrif. Viljum við flókið kerfi milliliða, samninga og eftirlits? Eða viljum við að sem mest af peningnum nýtist beint í rekstur og þjónustu við íbúana? Þegar sveitarfélög og stofnanir bera sjálf ábyrgð á þjónustunni er eðlilegt að þau ráði starfsfólkið sem sinnir henni. Það einfaldar boðleiðir, eykur stöðugleika og styrkir fagmennsku. Starfsfólk sem vinnur beint fyrir stofnunina hefur betri forsendur til að bregðast við því sem ekki er alltaf fyrirséð í útboðsgögnum. Að lokum snýst þetta ekki aðeins um kjör eða skipulag. Þegar allur kostnaður er tekinn með í reikninginn er langt því frá að útvistun sé einfaldasta, ódýrasta eða traustasta leiðin. Fyrir opinbera grunnþjónustu er beinn rekstur oft skynsamlegri kosturinn. Höfundur er sósíalískur borgarfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sanna Magdalena Mörtudóttir Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vor til vinstri Mest lesið Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Skoðun Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ekki er allur afgangur eins Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar