Menning

Mogensen, Edwald og Jón Múli á mál­verka­sýningu

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Mogensen, Edwald og Jón Múli mættu á sýningu, það er Thelma Mogensen, Páll Edwald og Jón Múli Egilsson Pruner.
Mogensen, Edwald og Jón Múli mættu á sýningu, það er Thelma Mogensen, Páll Edwald og Jón Múli Egilsson Pruner. Ragnheiður Björk

Listamennirnir Sindri Dýrason, Anna Jansdóttir, Jón Múli, Jón Sæmundur og Narfi Þorsteinsson héldu málverkasýningu í gamla Landsbankahúsinu í samstarfi við Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar föstudaginn 5. febrúar. Um fimm hundruð gestir mættu til að dást að listinni.

Landsbankinn flutti höfuðstöðvar sínar í Austurhöfn og seldi hús sitt við Austurstræti 11 í fyrra. Þróunarfélagið Landsbyggð keypti húsnæðið auk þriggja húsa bankans við Hafnarstræti með það markmiði að gera þau að lifandi hluta af borginni á ný.

Sjá einnig: Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið

Myndlistarmaðurinn Sigurður Sævar Magnússon fyllti gamla Landsbankahúsið í desember síðastliðnum þegar hann hélt sýningu þar og varð sýningin Sindra Dýrasyni innblástur að samsýningu fimm listamanna. Úr varð málverkasýning með fjórum öðrum listamönnum.

Jón Múli, Narfi Þorsteinsson, Anna Ólöf Jansdóttir, Sindri Dýrason og Jón Sæmundur voru öll með verk á sýningunni. Ragnheiður Björk

Anna Ólöf Jansdóttir vinnur með olíumálverk sem sýna heim hulduvera og líf ungra elskhuga í íslenskri sveit; Jón Múli hefur verið virkur í tónlistarsenunni frá 2017 og býr til dularfulla og draumkennda myndlist; Jón Sæmundur vinnur innsetningar þar sem tvinnast saman málverk, skúlptúr, myndbandsverk og tónlist; Narfi Þorsteinsson vinnur mikið með fundna hluti og tæknilegar aðferðir við teikningu og list Sindra Dýrasonar snýst fyrst og fremst um að mála, hvort sem það er á striga eða úti.

Á sýningunni mátti sjá málverk þeirra fimm og mætti fjöldi góðra gesta eins og sjá má hér að neðan:

Magnús Thorkelsson, Andrea Alda, Páll Edwald og Rannveig Kristjánsdóttir.

Thelma Mogensen og Anna Ólöf Jansdóttir.

Oliver Devaney og Juan Melero.

Þórir Már Davíðsson og Arnar Ingi í Digital ísland.

Björgúlfur Jes og Haffi úr Spacestation tóku lagið.

Sindri Dýrason og Anna Jansdóttir.

Jón Múli og Gunnur Martinsdóttir Schlüter sælleg saman.

Einar Skuggi og Sigríður Ásta.

Birna Björnsdóttir dönnuð.Ragnheiður Björk

Narfi Þorsteinsson og Atli Bollason flissa yfir einhverju skemmtilegu.Ragnheiður Björk

Sviðslistar- og myndlistarmaðurinn Árni Vilhjálmsson lét sig ekki vanta.Ragnheiður Björk

Anna Margrét Björnsson og Jón Sæmundur ræða málin. Ragnheiður Björk





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.