Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Samúel Karl Ólason skrifar 11. febrúar 2026 11:13 ICE rekur nokkrar fangabúðir í Bandaríkjunum og hefur stofnunin verið gagnrýnd fyrir aðstæður þar. Hér má sjá Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, skoða einar búðir ICE í Flórída. AP/Evan Vucci Hinn írski Seamus Culleton hefur setið í fangageymslu Innflytjenda- og tollastofnunar Bandaríkjanna (ICE) í nærri því fimm mánuði og segist óttast um líf sitt. Hann var handtekinn fyrir að vera lengur í Bandaríkjunum en níutíu daga vegabréfsáritun sem hann fékk árið 2009 heimilaði honum en hann er giftur bandarískri konu, með vinnuleyfi í Bandaríkjunum og rekur verktakafyrirtæki í Boston.
Culleton, sem er ekki með sakaskrá í Bandaríkjunum, var í byggingavöruverslun í Boston í september þegar hann var handtekinn af útsendurum ICE. Fyrst var hann fluttur í varðhald í New York og síðan til El Pasao í Texas, þar sem hann hefur verið síðan. Hann hefur lýst búðunum þar sem honum og öðrum er haldið sem „nútíma útrýmingarbúðum“ og segir aðstæður þar hræðilegar. Hann segist búa í tjaldi með um sjötíu öðrum mönnum. ICE heldur, samkvæmt opinberum gögnum sem Sky News vísa til, um sjötíu þúsund manns og hafa 74 prósent þeirra aldrei verið dæmdir fyrir glæp. Culleton hefur farið fram á aðstoð yfirvalda í Írlandi en Micheál Martin, forsætisráðherra eða Taoiseach Írlands, mun hitta Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í næsta mánuði. Ríkisútvarp Írlands hefur eftir ráðherranum að fimm til sex Írar séu í haldi ICE. Mátti bara vera í Bandaríkjunum í níutíu daga Í frétt Irish Times segir að Culleton hafi upprunalega ferðast til Bandaríkjanna sem ferðamaður árið 2009. Þá hafi hann fengið vegabréfsáritun sem heimilaði honum að vera í Bandaríkjunum í níutíu daga. Hann var lengur í Bandaríkjunum en það og er þar enn. Bandarískur dómari segir að þess vegna hafi Culleton brotið gegn lögum og geti hvorki sótt um hæli né komið í veg fyrir að honum verði vísað úr landi. Þá skipti ekki máli að hann sé giftur bandarískri konu, með vinnuleyfi og að sækja um dvalarleyfi en það ferli var mjög langt komið. Culleton giftist Tiffany Smyth í apríl í fyrra. Í samtali við Sky News segir hún að Culleton hafi hringt í hana eftir að hann var handtekinn og sagt að hann hefði ekki hugmynd um hvað myndi verða um hann. Útsendarar ICE segðu honum ekkert og sagðist hann ætla að heyra í henni aftur um leið og hann gæti. Hún segist ekki hafa heyrt í honum aftur í fjóra eða fimm daga. Hún sagðist eiga erfitt með að trúa því að þau hjónin væru í þeirri stöðu sem þau eru í. Segir hann hafa valið varðhald Tricia McLaughlin, aðstoðarheimavarnaráðherra, tjáði sig um mál Culleton á samfélagsmiðlum í gær. Hún sagði mál Írans hafa farið hefðbundið ferli og að hann hefði klárlega brotið lög. „Honum var boðið tækifæri á því að vera sendur til Írlands en valdi að vera áfram í haldi ICE. Það sem meira er þá tók hann ákveðin skref til að tryggja áframhaldandi varðhald,“ sagði hún. Hún sagði það að vera í haldi vera val sem innflytjendur sem væru í Bandaríkjunum ólöglega tækju. Þeim stæði til boða að vera sendir úr landi og fá 2.600 dali. Seamus Culleton received full due process and was issued a final deportation order from a federal judge.On September 9, 2025, ICE arrested Seamus Culleton, an illegal alien from Ireland. He entered the United States in 2009 under the visa waiver program, which allows you to… https://t.co/EebjCaRBDK— Tricia McLaughlin (@TriciaOhio) February 10, 2026 Í frétt Sky segir að Culleton hafi ekki gefist upp á því að búa áfram í Bandaríkjunum. Hann vilji hitta eiginkonu sína aftur sem fyrst.
Bandaríkin Donald Trump Írland Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hinum fimm ára Liam Conejo Ramos og föður hans hefur verið sleppt úr haldi. Þeir feðgar voru teknir fastir af ICE-liðum í Minneapolis og látnir dvelja í sérstökum „fjölskyldufangageymslum“ í Texas. 1. febrúar 2026 21:38 Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis Alríkissaksóknarar í Minneapolis í Bandaríkjunum hafa hótað því að hætta í massavís. Er það vegna þess hvernig haldið hefur verið á spöðunum varðandi rannsóknir á dauða þeirra Renée Good og Alex Pretti, sem skotin voru til bana af útsendurum heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna. 29. janúar 2026 18:29 Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Mennirnir tveir sem skutu Alex Pretti til bana í Minneapolis í Bandaríkjunum á dögum hafa verið sendir í leyfi, eins og iðulega er gert þegar löggæsluaðilar skjóta fólk. Einn nánasti og áhrifamesti ráðgjafi Donalds Trump segir að mennirnir og aðrir útsendarar heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna hafi mögulega ekki fylgt starfsreglum. 28. janúar 2026 20:14 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Sjá meira
Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hinum fimm ára Liam Conejo Ramos og föður hans hefur verið sleppt úr haldi. Þeir feðgar voru teknir fastir af ICE-liðum í Minneapolis og látnir dvelja í sérstökum „fjölskyldufangageymslum“ í Texas. 1. febrúar 2026 21:38
Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis Alríkissaksóknarar í Minneapolis í Bandaríkjunum hafa hótað því að hætta í massavís. Er það vegna þess hvernig haldið hefur verið á spöðunum varðandi rannsóknir á dauða þeirra Renée Good og Alex Pretti, sem skotin voru til bana af útsendurum heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna. 29. janúar 2026 18:29
Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Mennirnir tveir sem skutu Alex Pretti til bana í Minneapolis í Bandaríkjunum á dögum hafa verið sendir í leyfi, eins og iðulega er gert þegar löggæsluaðilar skjóta fólk. Einn nánasti og áhrifamesti ráðgjafi Donalds Trump segir að mennirnir og aðrir útsendarar heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna hafi mögulega ekki fylgt starfsreglum. 28. janúar 2026 20:14