WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 14. febrúar 2026 08:02 Dómur í málinu féll í Hæstarétti í Lundúnum í seinasta mánuði. Getty Íslenski fjárfestirinn Auðunn Már Guðmundsson hefur unnið dómsmál í Bretlandi þar sem fyrrverandi eiginkona hans, breska listakonan Hsiao-Mei Lin, reyndi að halda eftir fasteign þeirra hjóna. Dómari við efra dómstig (e. High Court of Justice) í Lundúnum komst að þeirri niðurstöðu að WhatsApp-skilaboð frá Auðuni Má væru ekki löglega bindandi og gætu því ekki talist framsal á hans hluta í eigninni.
Vísir fjallaði um þetta óvenjulega skilnaðarmál í janúar síðastliðnum en deilan snerist um einbýlishús í Tufnell Park í norður-London sem metið er á um 1,5 milljón punda, jafnvirði rúmlega 260 milljóna króna. Kjarninn í deilunni snerist um það hvort WhatsApp-skilaboð sem Auðunn Már sendi Hsiao Mei-Lin á sínum tíma hafi sjálfkrafa veitt henni fullt eignarhald á sameiginlegu heimili þeirra við skilnaðinn en um er að ræða eign í Tufnell Park í norður London sem metin er á 1,5 milljónir punda. Hsiao Mei-Lin, hélt því fram að skilaboðin hefðu verið skýr yfirlýsing um að Auðunn Már væri að gefa frá sér sinn hlut í húsinu. Samskiptin jafngildu skriflegum samningi og ættu því að vera löglega bindandi. Dómari við efra dómstig féllst ekki á þau rök. Í niðurstöðunni er meðal annars vísað til þess að nafn sendanda sem birtist efst í spjallinu, í svokölluðum „haus“ (e.header) sé fyrst og fremst auðkenningarkerfi sem skilaboðaforritið býr til, en teljist ekki hluti af skilaboðunum sjálfum á þann hátt að það uppfylli formlegar kröfur um undirritun. Gjaldþrot breytti stöðunni Árið 2020 var skilnaðarmálið tekið fyrir hjá fjölskyldudómstól sem úrskurðaði að Hsiao Mei fengi fullt eignarhald á húsinu. Þá kom hins vegar í ljós að Auðunn Már hafði verið úrskurðaður gjaldþrota einungis viku áður, sem þýddi að Hsiao Mei gat ekki gert tilkall til hans hlutar. Eignarhlutur Auðuns Más féll því inn í gjaldþrotabúið. Í kjölfarið fékk Hsiao Mei helmingshlut í eigninni en hinn helmingurinn féll til kröfuhafa Auðuns Más, sem eiga inni meira en 2,5 milljónir punda. Hsiao Mei var gert að selja eignina til að standa straum af skuldum, þó með frestun til ársins 2032 þegar börn hennar og Auðuns verða fullorðin. Hsiao Mei hélt því þó fram að hún ætti fullan eignarétt að húsinu og vísaði til samskipta sem hún og Auðunn Már áttu í gegnum WhatsApp-forritið, áður en Auðunn Már var úrskurðaður gjaldþrota. Í skilaboðunum afsalar Auðunn Már henni sínum hluta í eigninni. Árið 2024 komst undirréttur að þeirri niðurstöðu að WhatsApp-skilaboðin uppfylltu ekki lagaleg skilyrði til framsals fasteignar og að hlutur Auðuns Más skyldi áfram teljast eign gjaldþrotabúsins. Í kjölfarið vísaði Hsiao Mei málinu til efra dómstigs (e. High Court of Justice). Þarf að rýma fyrr en áður stóð til Í umfjöllun breskra miðla kemur fram að dómur efra dómstigs, sem féll í seinasta mánuði, hafi einnig áhrif á það hvenær Hsiao Mei þarf að rýma eignina, þar sem markmiðið er að unnt sé að ganga að hluta eignarinnar til að standa skil á kröfum lánardrottna. Þar er talað um að fyrri frestur, sem hafði miðað við að hún gæti dvalið lengur í húsinu, hafi verið styttur og að rýma þurfi fyrr en upphaflega stóð til. Málið hefur vakið athygli í Bretlandi vegna þess að það snýr að því hvar mörkin liggja þegar kemur að samningum og loforðum sem sett eru fram í skilaboðaforritum, sérstaklega þegar um er að ræða fasteignir þar sem formkröfur eru strangar. Í umfjöllun The Independent og Evening Standard er málið jafnframt kallað „prófmál“ (test case) þar sem niðurstaðan geti haft fordæmisgildi um sambærileg ágreiningsmál, enda fari sífellt fleiri samskipti, samningar og „samkomulög“ fram í skilaboðum fremur en á pappír.
Íslendingar erlendis Bretland Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira