Samfélagið virkar þegar við erum tengd Brynja Ragnarsdóttir skrifar 14. febrúar 2026 08:02 Daglegt líf byggir á tengingum sem við hugsum sjaldan um. Heimilin eru hlý, ljósin kveikt og hreint vatn í krananum. Við áttum okkur ekki á að þessi lífsgæði eru ekki sjálfgefin fyrr en eitthvað fer úrskeiðis. Þau byggja nefnilega á innviðum sem þarf að viðhalda, stækka og passa upp á. Hlutverk Veitna er að tengja samfélagið við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu. Við þurfum að tryggja að þessar tengingar virki á hverjum degi og séu til staðar fyrir næstu kynslóðir. Samfélagið vex – hitaveitan þarf að fylgja Samfélagið er að stækka hratt. Ný hverfi rísa, byggðin þéttist og atvinnulíf þróast. Samkvæmt nýjustu mannfjöldaspá Hagstofu Íslands gæti íbúafjöldi landsins orðið yfir hálf milljón eftir aðeins 16 ár. Þessi þróun hefur bein áhrif á veitukerfin okkar og enginn vill búa í köldu húsi. Áætlað er að hámarks eftirspurn eftir heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu aukist að jafnaði um 120 lítra á sekúndu á hverju ári. Það jafngildir allri eftirspurn Fossvogsins á köldum vetrardegi – ár eftir ár.Fram undan eru umfangsmiklar fjárfestingar í hitaveitunni, en fjárfestingaáætlun gerir ráð fyrir allt að 9 milljörðum króna árið 2026 og rúmlega 50 milljörðum króna til ársins 2030. Þær þurfa að standa undir þessari miklu fólksfjölgun, endurnýjun eldri dreifi- og stofnkerfa, uppbyggingu nýrra svæða og öflugri jarðhitaleit. Jarðhitinn nýtist ekki af sjálfu sér Fólksfjölgun kallar á aukinn forða og fram undan eru mörg stór verkefni tengd iðnaði sem munu nýta heitt vatn. Veitur áætla að verja tæpum 10 milljörðum króna á næstu fimm árum í jarðhitaleit og endurbætur á borholubúnaði til að auka afköst. Borað verður á mörgum stöðum, meðal annars á núverandi lághitasvæðum í Laugarnesi og á Reykjum og einnig verður leitað að nýjum lághitasvæðum hvort tveggja á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Frá borholu til krana Heita vatnið sem notað er á höfuðborgarsvæðinu kemur annars vegar frá lághitasvæðum á Reykjum í Mosfellsbæ og Reykjavík (Laugarnesinu og Elliðaárdal) og hins vegar frá virkjunum á háhitasvæðum á Nesjavöllum og á Hellisheiði. Á Reynisvatnsheiði eru fjórir hitaveitutankar þar sem Veitur safna því heita vatni sem kemur frá báðum virkjunum. Því meira magn sem hægt er að geyma í tönkunum því tryggara er afhendingaröryggið yfir kaldasta tíma ársins, og á næstu árum munu Veitur bæta við fimmta hitaveitutankinum sem er fjárfesting upp á rúman milljarð. Stærra samfélag krefst stærra flutningskerfis Aukið framboð af heitu vatni kallar jafnframt á öflugra flutningskerfi. Það dugar ekki að framleiða meira vatn ef ekki er hægt að koma því örugglega til heimila og fyrirtækja. Til að efla flutning á heitu vatni til höfuðborgarsvæðisins ætla Veitur að ráðast í umfangsmiklar framkvæmdir, meðal annars með því að tvöfalda mikilvægar stofnlagnir eins og Nesjavallaæð og Suðuræð. Þá verða lagnir einstakra sveitarfélaga stækkaðar til að mæta vexti þeirra til framtíðar og bæta þrýsting og afhendingaröryggi, svo sem Hafnarfjarðaræð í Hafnarfirði og Kársnesæð í Kópavogi, auk fjölmargra verkefna á Suður- og Vesturlandi. Á næstu fimm árum er áætlað að um 20 milljörðum króna verði varið í verkefni sem auka flutningsgetu heits vatns til að mæta aukinni eftirspurn. Fyrirbyggjandi viðhald eða dýrari bilanir Samhliða uppbyggingu skiptir fyrirbyggjandi viðhald lykilmáli. Kerfi sem eru hönnuð til áratuga notkunar láta óhjákvæmilega á sjá með tímanum. Ef viðhald byggir fyrst og fremst á viðbrögðum við bilunum eykst bæði kostnaður og hætta á þjónusturofi. Veitur munu á næstu árum endurnýja stjórnbúnað og dælur, sinna viðhaldi hitaveitutanka og skipta út stórum flutningslögnum sem eru komnar til ára sinna. Áætlað er að um 20 milljörðum króna verði varið í fyrirbyggjandi viðhald á næstu fimm árum, sem mun skila hagkvæmni til lengri tíma litið. Allt þetta leiðir óhjákvæmilega að umræðu um gjaldskrár. Þar er raunveruleikinn sá að veitukerfi kosta peninga í uppbyggingu og rekstri, og auknar fjárfestingar kalla á aðlaganir í gjaldskrá. Ábyrgð gagnvart framtíðinni - hitaveituvæðing þrjú Hitaveitan er einn grundvöllurinn að lífsgæðum Íslendinga. Hún er afrakstur framsýni og langtímahugsunar fyrri kynslóða. Nú stöndum við frammi fyrir svipaðri ábyrgð gagnvart næstu kynslóðum. Jarðvarmi var fyrst nýttur til húshitunar í Reykjavík árið 1930 þegar heitu vatni var veitt frá Þvottalaugunum í Laugardal upp á Skólavörðuholt. Þetta markaði upphaf fyrstuhitaveituvæðingarinnar sem stóð fram yfir síðari heimsstyrjöld og þá þurfti að sækja meira vatn í Mosfellssveitina. Árið 1961 var ákveðið að hitaveitan ætti að ná í hvert hús í þéttbýli borgarinnar. Það var upphaf annarrar hitaveituvæðingarinnar. Hún framlengdist hressilega þegar samið var um lagningu hitaveitu um allt höfuðborgarsvæðið á árunum upp úr 1970. Með henni þurfti að fara í háhitann á Hengilssvæðinu til að sækja meira vatn. Fólksfjölgunin á höfuðborgarsvæðinu kallar nú á þriðju hitaveituvæðinguna. Hún felst ekki bara í afla aukins vatns og leggja lagnir í ný hverfi eins og áður. Byggðin hefur víða verið að þéttast og nauðsynlegt er að endurnýja og svera eldri lagnir á sama tíma og hefðbundnari stækkun hitaveitukerfisins er sinnt. Með því að halda áfram að fjárfesta í nauðsynlegri uppbyggingu í hitaveitunni tryggjum við að hún verði áfram ein af undirstöðum íslensks samfélags til langrar framtíðar. Spurningin er ekki hvort fjárfesta eigi í innviðum heldur hvernig, með yfirsýn, ábyrgð og langtímahagsmuni samfélagsins að leiðarljósi. Það er einfaldlega komið að okkur að sýna sömu framsýni og fyrri kynslóðir gerðu til að tryggja heitt vatn til allra í dag og fyrir næstu kynslóðir.Því þegar við erum tengd virkar samfélagið. Höfundur er forstöðukona Vatnsmiðla hjá Veitum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rafmagn Vatn Orkumál Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun