„Það var eins og við værum á heimavelli“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 23:29 Jóhann Þór Ólafsson var sáttur með drengina sína í kvöld Vísir/Anton Öflugur annar leikhluti reyndist lykillinn að 99-105 sigri Grindavíkur gegn Keflavík í kvöld. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var ánægður með stuðninginn úr stúkunni enda ljóst að meðbyr væri með liðinu. „
Það voru án efa sveiflur í þessu en við áttum mjög góðan annan leikhluta. Við búum þar í raun til ákveðið forskot og vorum yfir í hálfleik. Við stöndum af okkur fyrsta áhlaup Keflavíkinga og þá var þetta langt komið,“ sagði eftir sigur liðsins í kvöld. „Þeir eru auðvitað með mjög gott lið og við vissum að þeir myndu bíta frá sér og þeir gerðu það. Hrós á okkar drengi, það er ekkert launungarmál að við erum laskaðir. Það er búið að vera ströggl að ná saman tíu manna hóp og spila fimm á fimm á æfingum. Ég er því mjög ánægður að við skulum hafa náð að kreista þetta út.“ Í fyrri hálfleik sást að báðir þjálfarar liðanna voru bersýnilega óánægðir með margar ákvarðanir dómaraþríeykisins. Jóhann vildi þó hvorki gagngrýna dómgæsluna né hrósa henni sérstaklega. „Nei, er ekki alltaf svo erfitt að dæma? Mér skilst það sé þannig. Nei, nei, pass. Það er líka mjög erfitt að spila og allt það. Það eru allir að reyna að gera sitt besta og ég hef fulla trú á að það eigi við dómarana líka. Auðvitað einhver atriði sem maður er hundfúll með, en það er bara eins og það er.“ Stuðningsmenn Grindavíkur settu sterkan svip á stemninguna í höllinni. Þeir stóðu nánast allan leikinn og sungu af krafti, á meðan stuðningsmenn Keflavíkur voru talsvert rólegri. „Stuðningsmennirnir gefa okkur helling og þetta var alveg geggjað í kvöld. Það var eins og við værum á heimavelli. Það býr auðvitað hellingur af fólki hérna í Reykjanesbæ en það þarf samt að mæta. Það er meðbyr með liðinu, það er meira gaman að vinna heldur en að tapa. Þetta var bara geggjað í kvöld og vonandi það sem koma skal.“
Bónus-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sjá meira