Af hverju var snjóflóðið á Flateyri ekki rannsakað? Sóley Eiríksdóttir skrifar 15. febrúar 2026 23:31 Árið 1995 féllu tvö mannskæð snjóflóð á Íslandi, í Súðavík í janúar og á Flateyri í október sama ár. Bæði leiddu til manntjóns og víðtækra samfélagslegra afleiðinga. Atburðirnir áttu sér stað innan sama stjórnsýslulega ramma og á tímabili þar sem hættumat og viðbúnaður voru í mótun. Alþingi hefur nú ákveðið að láta fara fram heildstæða og sjálfstæða rannsókn á snjóflóðinu í Súðavík. Með þeirri ákvörðun er viðurkennt að slíkir atburðir réttlæti opinbera rýni, ekki síst með tilliti til lærdóms og trausts til stjórnkerfisins. Snjóflóðið á Flateyri átti sér stað innan sama árs, við sambærilegar aðstæður og með sambærilegum afleiðingum. Tuttugu manns létust í flóðinu og áhrifin á samfélagið voru djúpstæð. Þrátt fyrir það hefur ekki verið skipuð sjálfstæð rannsóknarnefnd um þann atburð. Helstu rök sem nefnd hafa verið eru þau að aðstandendur hafi ekki kallað formlega eftir rannsókn. Rannsókn á náttúruhamförum er ekki einkamál aðstandenda. Hún er hluti af ábyrgð ríkisins gagnvart borgurum sínum. Hún snýst um hvernig hættumat var unnið, hvernig ákvarðanir voru teknar og hvort fyrirliggjandi þekking var nýtt. Slík rýni á að byggjast á eðli atburðarins og afleiðingum hans, ekki á því hvort þolendur hafi burði eða þrek til að halda málinu lifandi í áratugi. Ef rannsókn er réttlætanleg í Súðavík vegna manntjóns og samfélagslegra afleiðinga, hlýtur sami mælikvarði að gilda um Flateyri. Annað kallar á skýran og rökstuddan mun. Ég hef lagt fram formlegt erindi til Alþingis þar sem óskað er eftir sjálfstæðri og heildstæðri rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri. Sú beiðni er nú til meðferðar hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ég var grafin upp úr snjóflóðinu á Flateyri. Systir mín lifði það ekki af. Sú reynsla veitir mér ekki sérstakan rétt umfram aðra, en hún undirstrikar hvers vegna ábyrgð ríkisins má ekki ráðast af því hvort þolendur knýi á um rannsókn eða ekki. Ríkið ber ábyrgð á að rannsaka atburði sem kostuðu mannslíf. Sú ábyrgð má ekki vera valkvæð. Þegar mannslíf tapast er rannsókn ekki valkostur heldur skylda. Ef sami mælikvarði á að gilda um alla verður hann að gilda um Flateyri líka. Höfundur er aðstandandi og eftirlifandi snjóflóðsins á Flateyri 1995. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Snjóflóðin á Flateyri 1995 Snjóflóð á Íslandi Snjóflóðin í Súðavík 1995 Alþingi Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar