Fluttu kjarnakljúf með flugvél í fyrsta sinn Samúel Karl Ólason skrifar 16. febrúar 2026 16:18 Ward 250 kjarnakljúfurinn á að geta knúið um fimm þúsund bandarísk heimili. Varnamálaráðuneyti Bandaríkjanna Bandarískir hermenn fluttu um helgina smáan kjarnakljúf með flugvélum milli herstöðva í Kaliforníu og Utah. Var það í fyrsta sinn sem kjarnakljúfar sem þessi er fluttur með flugvélum en ríkisstjórn Donalds Trump hefur lagt mikla áherslu á þróun og notkun kjarnakljúfa.
Með þessum orkuverum vilja Bandaríkjamenn knýja herstöðvar og jafnvel bækistöðvar í geimnum, auk þess sem talið er að hægt verði að nýta þau í neyðartilfellum í Bandaríkjunum og annars staðar. Sjá einnig: Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Umræddur kjarnakljúfur kallast Ward 250 og getur framleitt fimm megavött. Í tilkynningu frá varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, segir að hægt væri að nota hann til að knýja um fimm þúsund bandarísk heimili. Forsvarsmenn hersins telja að í framtíðinni verði hægt að nýta tæknina til að knýja herstöðvar, svo Bandaríkjamenn þurfi ekki að reiða sig á orkukerfi þar sem herstöðvar eru. Þá er haft eftir háttsettum manni í ráðuneytinu að framtíðarhernaður kalli á mikla orku. Er meðal annars vísað til gagnavera fyrir gervigreind, leysigeislavopn og annað sem nútímadreifikerfi í heiminum séu ekki búin undir. Einnig væri hægt að nota kjarnakljúfana í neyðartilfellum í Bandaríkjunum. Today, the Department of War transported a next-generation nuclear reactor.This historic flight took place on a C-17 from California to Utah.We are executing President Trump’s energy dominance agenda. pic.twitter.com/I3tqUtUF6A— Department of War 🇺🇸 (@DeptofWar) February 16, 2026 Í frétt Wall Street Journal segir að kjarnakljúfurinn sem fluttur var til Utah um helgina hafi verið framleiddur af fyrirtæki sem kallast Valar Atomics. Samkvæmt miðlinum hefur Trump heitið því að búið verði að ræsa þrjá kljúfa fyrirtækisins fyrir fjórða júlí. Ríkisstjórnin hefur þó verið gagnrýnd fyrir að fara of geyst með tiltölulega nýja og óreynda tækni. Kjarnakljúfarnir nota svokallað TRISCO-kjarnorkueldsneyti, sem eru í einföldu máli sagt úraníumkjarnar umvafðir keramíki. Þá er helíum notað til kælingar í stað vatns. Þegar kjarnakljúfurinn var fluttur um borð í þrjár C17-flutningsvélar í Kaliforníu dreifðu starfsmenn Valar derhúfum sem á stóð: Make Nuclear Great Again eða MNGA. Til stendur að prófa þennan tiltekna kjarnakljúf á næstunni í Utah. Fyrst á að keyra hann upp í 250 kílóvött en eins og áður segir á hann að geta framleitt um fimm megavött. On May 23, 2025, President Donald Trump signed an executive order to deploy advanced nuclear reactor technologies for national security purposes.Yesterday, we took the next step toward achieving this historic mission. pic.twitter.com/hIEd1nlnmf— Department of War 🇺🇸 (@DeptofWar) February 16, 2026
Bandaríkin Donald Trump Kjarnorka Hernaður Mest lesið Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Fleiri fréttir Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Sjá meira