Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Eiður Þór Árnason skrifar 16. febrúar 2026 23:20 Fíkniefnin voru meðal annars falin í morgunkornspökkum. Ljósmyndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/vilhelm Fjórir menn hafa verið ákærðir fyrir að hafa staðið í innflutningi á fíkniefnum sem falin voru í sófa og umbúðum af morgunkorni sem komu með póstsendingu frá Bandaríkjunum.
Fyrirhugað er að aðalmeðferð málsins hefjist í apríl fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og ganga mennirnir lausir. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða einn Íslending og þrjá sem eru af erlendu bergi brotnir. Ákæra héraðssaksóknara er í nokkrum ákæruliðum en einn mannanna er ákærður fyrir stórfellt fíkniefna- og vopnalagabrot fyrir að hafa í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni, að því er fram kemur í ákæru, tæplega 1,3 lítra af kannabisblönduðum vökva, um 9,4 kílógrömm af kannabisblönduðu efni og 7,62 grömm af maríjúana í íbúð og bifreið sinni í Reykjavík. Auk þess hafi hann haft útdraganlega kylfu og tvö rafvopn í vörslum sínum. Samkvæmt heimildum fréttastofu varðar ákæran meðal annars kannabisblandað nammihlaup. Dæmi um Rolex Explorer úr. Ljósmynd kemur úr safni.Getty/Robert Kirk Hafi keypt lúxusúr fyrir ágóða af fíkniefnasölu Samkvæmt ákæru er sami maður ákærður fyrir peningaþvætti fyrir að hafa aflað sér ávinnings með sölu og dreifingu á óþekktu magni ávana- og fíkniefna. Hann á að hafa geymt og nýtt fjármunina í eigin þágu og meðal annars keypt úr af gerðinni Orient Bambino, Seiko Prospex, Omega og Rolex Explorer fyrir 2,2 milljónir króna. Lagði lögregla hald á úrin, reiðufé og óútskýrðar tekjur á bankareikningum fyrir samtals um rúmar 22 milljónir króna. Maðurinn er sömuleiðis ákærður ásamt tveimur öðrum fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa reynt að sækja sendingu í júlí 2025 sem innihélt 8,9 kílógrömm af maríjúana ætluðu til sölu- og dreifingar á Íslandi í ágóðaskyni, að sögn saksóknara. Fíkniefnin voru falin í umbúðum af morgunkorni sem komu til landsins með póstsendingu frá Bandaríkjunum en lögregla lagði hald á efnin og fjarlægði þau. Tveir hinna ákærðu sóttu sendinguna og geymdu í sendibifreið sem lagt var við Bátavog í Reykjavík áður en henni var komið fyrir í geymslu að Steinhellu í Hafnarfirði. Einn mannanna er sömuleiðis ákærður fyrir að hafa í vörslu sinni tvær axir sem fundust við húsleit lögreglu. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.Vísir/Vilhelm Liður í starfsemi skipulagðra brotasamtaka Fjórði einstaklingurinn, sem er úthlutað stafnum Þ í ákæruskjali, er ákærður ásamt tveimur fyrrnefndum mönnum fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa á tímabilinu 18. júní til 4. júlí 2025 haft í vörslum sínum og staðið að innflutningi á 11,2 kílógrömmum af maríjúana ætluð til sölu- og dreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Samkvæmt ákæru voru efnin falin í sófa sem kom til Íslands með póstsendingu frá Bandaríkjunum þann 18. júní 2025. Þ er sagður hafa tekið við sendingunni og geymt efnin þar til hinir tveir fóru með sófann og fíkniefnin í geymslu að Selhellu þar sem lögregla lagði síðar hald á efnin. Allir fjórir mennirnir eru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi með því að hafa í félagi við óþekktan aðila sammælst um að fremja refsiverðan verknað um nokkurt skeið til og með 4. júlí 2025. Framkvæmd brotanna er sögð hafa verið liður í starfsemi skipulagðra brotasamtaka.
Dómsmál Fíkniefnabrot Lögreglumál Smygl Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Fleiri fréttir Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Sjá meira