Breiðholt Got Talent Sigrún Ósk Arnardóttir og Valgeir Þór Jakobsson skrifa 17. febrúar 2026 11:00 Breiðholt Got Talent er hæfileikakeppni barna og unglinga í Breiðholti og sameiginlegt verkefni frístundaheimilanna og félgasmiðstöðvanna í hverfinu. Keppnin fór fram síðasta föstudag og þar fengum við að sjá allt frá söng, dansi, sirkusatriðum yfir í trommuslátt og uppistand. Okkur langar aðeins að fjalla um afhverju svona viðburður er mikilvægur fyrir krakkana en fyrir því eru nokkrar ástæður: Þessir flottu strákar sungu lög eftir Magga heitinn Eiríks. Fyrst og fremst snýst þetta um að gefa krökkunum rými til að láta ljós sitt skína. Að stíga á svið krefst hugrekkis, hvort sem það er að syngja, sýna töfrabrögð, spila á hljóðfæri eða segja brandara. Það eflir sjálfstraustið að yfirstíga fiðringinn í maganum og uppskera lófaklapp frá jafningjum sínum. Sú reynsla fylgir þessum börnum langt út fyrir sviðið og fyrir mörg þeirra er þetta augnablikið þar sem þau segja í fyrsta sinn “hér er ég og þetta get ég”. Breiðholtið er litríkt samfélag og keppnin endurspeglar þann fjölbreytileika sem hér er að finna. Á einum degi mátti sjá ólíka menningarheima og hæfileika mætast, allt frá ballet til hip hop dansa og dægurlagasöngs til þjóðlagasöngs. Viðburðurinn minnir okkur á að fjölbreytileikinn er okkar mesti styrkur. Það er öllum mikilvægt að fá að tilheyra hvort sem um er að ræða í íþróttaliðinu, félagsmiðstöðinni, frístundaheimilinu og lengi væri hægt að telja. Breiðholt Got Talent er einn af þeim viðburðum sem gefa þessum börnum þá upplifun að þau tilheyri samfélaginu okkar í Breiðholti og þeirra jafningjum. Sigurvegarar í Breiðholt got talent. Fagfólk í frítímanum brennur fyrir því að hlú að börnum og unglingum og hjálpa þeim á þeirri vegferð að finna sitt innra sjálf og byggja upp sjálfstraust. Þessi viðburður hefur átt sinn stað í dagskrá félagsmiðstöðva og frístundaheimila Breiðholts frá árinu 2009. Á þessum 17 árum hefur viðburðurinn farið í gegn um ótal breytingar, starfsmannaveltu, heimsfaraldur og fjöldan allan af börnum og ungmennum. Ástæðan fyrir því að hann lifir enn er það sem hann gerir fyrir börnin í hverfinu. Skapar tækifæri og gefur þeim reynslu sem erfitt er að finna annarstaðar. Jafnvel þó að þú vinnir ekki þá lærir þú svo margt á því að taka þátt, það er hæfni sem enginn dómari getur tekið frá þér. Að vera séð og viðurkennt af jafningjum skiptir meira máli en margir gera sér grein fyrir. Fyrir mörg þessara barna gæti þetta verið fyrsta skrefið í átt að einhverju meira, listnámi, leiklistarnámi eða jafnvel tónlistarferli. Sigrún Ósk Arnardóttir er aðstoðarforstöðukona í frístundaheimiliValgeir Þór Jakobsson er forstöðumaður í félagsmiðstöð og formaður SAMFÉS Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Grunnskólar Frístund barna Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar