Ó Jafnréttisdagar háskólanna - án karlmanna - minnihluta nemenda - en meirihluta landsmanna Ingimundur Stefánsson skrifar 17. febrúar 2026 15:01 Það sló þriggja-kvenna-en-einskis-karlmanns-opnunarsamtal árlegra Jafnréttisdaga háskóla á Íslandi. Og stóðu yfir dagana 9-12. febrúar. Dagskrá þeirra virtist eftir því. Bara 1 viðfangsefni af 29 snýr sérlega að körlum, hvernig fjölgun þeirra við hjúkrun gengur. Eins og jafnrétti varði lítt karla að öðru leiti, nema á þann hátt að þeir bæti hegðun sína gagnvart öðrum. Þetta sló, því karlar eru 55% landsmanna. Sló því karlar eru mikill minnihluti nemenda í HÍ (33%) og HA (22%). Að meðaltali 35% nemenda í háskólunum, í 5% meirihluta í HR. Sló því ofbeldi gegn körlum virðist hvorki viðfangsefni Jafnréttisdaga eftir 17 ára tilvist daganna né nálægt jafnt títt viðfangsefni rannsókna á Íslandi og ofbeldi gegn konum Þó er ofbeldi gegn körlum tíðara en þó en gegn konum, álíka innan heimilis og milli maka af gagnstæðu kyni skv. írekaðri erlendri tölfræði og gagnaruni Landlæknis. Sló því karlar hafa frekar fengið refsidóma en konur fyrir sama brot, og lengri fangelsisdóma. Inngilding - í orði en ekki á borði? Eitt markmiða Jafnréttisdaga er inngilding. Inngilding var kosningaslagorð nýs rektors Háskóla Íslands, Silju Báru Ómarsdóttur. Inngilding er stefna amk 4 af 6 háskólum á Íslandi. Inngildingin er títt viðfangsefni þessa Jafnréttisdaga. Inngilding virðist þó ekki ná til minnihluta nemenda, karla. Ákvörðunaraðilar og akademían Stýrihóp Jafnréttisdaga skipa að best verður séð jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands. Þá fulltrúar frá Háskólanum í Reykjavík, Listaháskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri, Háskólanum á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskólanum á Hólum. Jafnréttisfulltrúi Stúdentaráðs ku þátttakandi, tryggi að raddir stúdenta heyrist í stýrihópnum. Jafnréttisdagar ku vera landshlutafélag og því komi fulltrúi Landsambands íslenskra stúdenta stundum að málum. Samt ekki aðkoma karla - hví? Þrátt fyrir ofangreint eru karlar ekki hluti opnunarsamtals Jafnréttisdaga. Né þeirra vandi og jafnréttishalli umfjöllunarefni daganna. Hví? Er það af því fulltrúar háskólanna hunsa inngildingaráherslur háskólanna? Er það af því kosningaslagorð rektors HÍ um inngildingu átti ekki við karla? Er það af því akademískir starfsmenn háskólanna eða nemar viðurkenna ekki jafnréttishalla gagnvart körlum, telja hann ekki verðugt rannsóknarefni, viðfangsefni, eða af því þeir fá ekki styrki til þeirra starfa og hafa ekkert fram að leggja? Er það af því fulltrúar stúdenta skynja ekki skort á aðkomu karla og skort á akademískri nálgun á vanda þeirra? Er það af því jafnréttisfulltrúi Stúdentaráðs telur karla og drengi fyrst og fremst gerendur ofbeldis, en ekki þolendur? Eða tókst þessum ofangreindum ekki að fá neinn karlmann til að koma í opnunar-umræður Jafnréttisdaga, og fáa karla að dagskrá? Reyndi þetta fólk að fá karla meir að borði? En tókst ekki? Svona eins og var með konur í fjölmiðlum einu sinni? Þar til þær fengu einkaviðtöl? Spyr nú. Karlar og góðar konur hugi að hag karla líka Karlar og karlkyns nemendur þurfa að gæta að hagsmunum sínum og síns kyns, kynbræðra sinna og karlkyns afkomenda. Samfélagsins vegna. Góðar konur auðvita líka, gagnrýna reyndar margar áralangar áherslur á hag kvenna en hunsun hags karla og skaðlega fæð karla í efstu embættum og stjórnum innan ríkis og borgar. Karlar og konur geta ekki gengið út frá að kvenkyns stjórnendur akti eins og stjórnendur gjarnan áður, hugi að hagsmunum allra þ.m.t. karla. Því sú virðist of oft ekki raunin. Konur sjálfar hafa sést segja að konur í stjórnum, nefndum, matsnefndum og styrkjanefndum hygli frekar konum, sýni konum samkennd umfram málefnalega og sanngjarna nálgun og samfélagslega þörf. Háskólar, rektorar, háskólaráð, fulltrúar nemenda, stjórnvöld en sérlega karlar þurfa því að taka sig á. Huga líka að hag 55% landsmanna, karla og drengja.Höfundur er samfélagsþennkjandi karlkyns landsmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jafnréttismál Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar