Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Samúel Karl Ólason skrifar 19. febrúar 2026 11:12 Hér má sjá flugmóðurskipið USS Abraham Lincoln og fylgiflota þess á siglingu á Arabíuhafi. Með flugmóðurskipinu eru tveir tundurspillar af gerðinni Arleigh Burke en þau skip eru hönnuð til að skjóta niður eldflaugar og flugvélar og bera einnig stýriflaugar. Fyrir framan flotann má svo sjá fjórar herþotur og eftirlitsflugvél. Sjóher Bandaríkjanna/Jesse Monford Bandaríkjamenn hafa ekki haft jafn mikinn viðbúnað í háloftunum og getu til loftárása í Mið-Austurlöndum frá árinu 2003, þegar innrás var gerð í Írak. Búið er að senda gífurlegan fjölda herþota og stuðningsflugvéla á svæðið, auk tveggja flugmóðurskipa og fjölda annarra herskipa.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ku ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hann ætli að láta gera árásir á Íran eða ákveðið hvurslags árásir það eigi að vera, samkvæmt Wall Street Journal. Slíkum árásum gæti verið beitt gegn kjarnorkuáætlun klerkastjórnar Íran, gegn eldflaugum Írana eða haft það markmið að velta klerkastjórninni úr sessi. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, lýsti því yfir í morgun að ef einhverjir Pólverjar væru í Íran ættu þeir að koma sér þaðan á næstu klukkustundum. Þeim gæti fljótlega orðið ómögulegt að komast þaðan. Fréttaveita íranska byltingarvarðarins sendi út þessa mynd af heræfingu í Íran í vikunni.AP/Sepahnews Fjöldi herskipa og tugir herþota Flugmóðurskipið USS Abraham Lincoln er á svæðinu en skipið sást undan ströndum Óman á gervihnattamyndum þann 15. febrúar. Til viðbótar við það eru Bandaríkjamenn með að minnsta kosti níu tundurspilla á svæðinu sem geta líklega flestir skotið stýriflaugum. Þá mun USS Gerald Ford einnig mæta á svæðið á næstu dögum og með því fylgja að minnsta kosti þrír tundurspillar til viðbótar. Samkvæmt New York Times hafa blaðamenn staðfest að ríkisstjórn Trumps hefur sent að minnsta kosti þrettán tundurspilla til Mið-Austurlanda Fjórum F/A-18E Super Hornet herþotum flogið yfir flugmóðurskipið USS Abraham Lincoln.Sjóher Bandaríkjanna/Hannah Tross Flugmóðurskipunum tveimur fylgir fjöldi herþota en auk þeirra er einnig búið að senda tugi herþota og stuðningsvéla til herstöðva sem Bandaríkjamenn hafa afnot af í Jórdaníu, Sádi-Arabíu, Katar og Óman. Þá eru einnig líklega kafbátar á svæðinu en það hefur ekki verið opinberað. Meðal annars er búið að senda F-22 herþotur á svæðið en þær eru háþróuðustu orrustuþotur heims og er mjög erfitt að sjá þær á ratsjám. Þær eru hannaðar til að tryggja yfirráð í háloftunum. Áhafnarmeðlimir USSAbraham Lincoln að störfum á Arabíuhafi. Á myndinni má sjá tvær EA-18G Growler, hertþotur en það eru sérstakar tveggja sæta útgáfur af F/A-18 F Super Hornet og eru meðal annars þróaðar til að trufla ratsjár óvina.Sjóher Bandaríkjanna/Zoe Simpson Bandaríkjamenn eru einnig búnir að senda fjölda þota sem hannaðar eru til árása á skotmörk á jörðu niðri, stuðningsvélar sem trufla ratsjár, dróna, eldsneytisvélar, eftirlits- og ratsjárvélar. Samkvæmt frétt The Warzone hafa Bandaríkjamenn sent meira en helming þeirra E-3 eftirlits- og ratsjárvéla sem þeir starfrækja til Mið-Austurlanda og Indlandshafs. Þessar flugvélar þykja nauðsynlegar til að halda utan um umfangsmiklar hernaðaraðgerðir, eins og sagðar eru koma til greina í Íran. Eldsneytis- og eftirlitsvélar hafa meðal annars verið sendar til Diego Garcia-herstöðvarinnar á Indlandshafi en þangað gætu Bandaríkjamenn sent hinar háleynilegu B-2 sprengjuvélar. Þær voru notaðar til árása á Íran síðasta sumar. Herþotur og eftirlitsflugvél af flugmóðurskipinu USS Abraham Lincoln.Sjóher Bandaríkjanna/Jesse Monford Tugir þúsunda hermanna á svæðinu Þá er einnig búið að senda loftvarnarkerfi af gerðinni Patriot og THAAD á svæðið, sem ætlað yrði að skjóta niður eldflaugar frá Íran, ef til átaka kemur, og verja um þrjátíu til fjörutíu þúsund bandaríska hermenn sem halda til í Mið-Austurlöndum. Hér að neðan má sjá tæplega tveggja vikna gamalt myndband frá Wall Street Journal um hinn aukna viðbúnað Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. Síðan myndbandið var birt hefur mjög mikið magn hergagna verið sent á svæðið til viðbótar. Með þeim viðbúnaði sem er á svæðinu gætu Bandaríkjamenn gert umfangsmiklar árásir á Íran um langt skeið en Axios sagði frá því í gær að Ísraelar myndu líklega taka þátt í árásunum. „Stjórinn er að fá nóg. Sumt fólk í kringum hann er að vara hann við því að fara í stríð við Íran en ég held að það séu níutíu prósent líkur á því að við munum sjá árásir á næstu vikum,“ sagði einn ráðgjafi Trumps við Axios. Klerkastjórnin í Íran stendur höllum fæti. Hernaðargeta hennar hefur verið veikt verulega af árásum Ísraela. Efnahagur landsins hefur beðið verulega hnekki, með mikilli verðbólgu og hækkandi kostnaði fyrir almenning. Það leiddi til mjög svo umfangsmikilla mótmæla á síðasta ári sem klerkastjórnin beitti mikilli hörku til að kveða niður. F-35C Lightning II, herþota á leið í flugtak.Sjóher Bandaríkjanna/Daniel Kimmelman F/A-18E Super Hornet þotu lent á USS Abraham Lincoln.Sjóher Bandaríkjanna/Hannah Tross E-2D Hawkeye eftirlitsflugvél flogið á loft frá USS Abraham Lincoln.Sjóher Bandaríkjanna/Daniel Kimmelman F/A-18E Super Hornet herþotu flogið á loft.Sjóher Bandaríkjanna/Zoe Simpson
Bandaríkin Íran Donald Trump Hernaður Mótmælaalda í Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Innlent Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann Innlent „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Innlent Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Innlent Er tilbúin að blása í herlúðra í haust Innlent Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Innlent Dúx í MH og talar fjögur tungumál Innlent Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða Innlent Fleiri fréttir Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG SAS fellir niður allt flug til Grænlands Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Sjá meira