Viðskipti innlent

Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Frá hægri: Kristinn Sölvi Sigurgeirsson, Albert Þór Magnússon og Markús Árni Vernharðsson.
Frá hægri: Kristinn Sölvi Sigurgeirsson, Albert Þór Magnússon og Markús Árni Vernharðsson.

Knattspyrnudeild Selfoss og umboðsaðilar Kappahl á Íslandi hafa undirritað samstarfssamning til fimm ára. Kappahl verður mikilvægur bakhjarl félagsins og knattspyrnuhöllin á Selfossi nefnd í höfuðið á tískumerkinu.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

Þar segir að samhliða þessu verði kynnt til sögunnar Kappahl-mótið, sem byggi á grunni sem spannar áratug. 

„Með þessu verður vörumerkið Kappahl sýnilegt í hjarta starfseminnar og hluti af daglegu lífi iðkenda, foreldra og stuðningsfólks. Þess ber að geta að styrkur vegna nafnsins á Kappahl-höllinni mun að auki renna til uppbyggingu frjálsíþróttadeildar Ungmennafélagsins til jafns við fótboltann,“ segir í tilkynningunni.

Samningar undirritaðir.

„Þetta er risastór dagur fyrir okkur. Við erum í raun að undirstrika með undirskrift í dag það samstarf sem spannar yfir áratug með UMF Selfoss. Þetta hefur vaxið og dafnað í gegnum tíðina. Við byrjuðum hérna fyrir 10 árum síðan með vonina, nú er trúin tekin við en við erum full tilhlökkunar fyrir framhaldinu hér á Selfossi,“ segir Albert Þór Magnússon.

Albert Þór og eiginkona hans, Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, eru umboðsaðilar Kappahl á Íslandi. Þau voru áður með umboðið fyrir Lindex og var knattspyrnuhöllin áður kölluð Lindex-höllin.

Unnið verður að uppsetningu Kappahl-merkja og sýnileika vörumerksins á vallarsvæðinu á næstu dögum.

Verslun Kappahl og Newbie opnar 21. mars á Selfossi, við hliðina á Bónus, þar sem Lindex er nú til húsa.

„Kappahl var stofnað í Svíþjóð 1953 og rekur fyrirtækið 345 verslanir í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Póllandi og Bretlandi. Fyrirtækið hefur fest sig í sessi sem eitt af leiðandi tískuvörumerkjum Skandinavíu, með ríka áherslu á sjálfbærni, sígildar grunnflíkur, undirfatnað og tískufatnað fyrir konur, karla og börn,“ að því er segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×