Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. febrúar 2026 13:30 Sævar Helgi ergir sig á fölsuðum myndum og myndefni sem er í dreifingu af sólmyrkva yfir Suðurskautslandinu. Falsmyndirnar kaffæri raunverulegum myndum og blekki. Stjörnu-Sævar segir gervigreindina plágu sem kaffæri réttum upplýsingum með bulli og ljótleika. Máli sínu til stuðnings deilir hann aragrúa skjáskota af fölsuðum myndum af sólmyrkva á Suðurskautslandinu. Óttast hann að Íslendingar muni verða fyrir barðinu á svipuðu falsi vegna almyrkva á Íslandi í ágúst.
Jarðfræðingurinn Sævar Helgi Bragason deildi fyrr í dag færslu á Facebook frá stjörnufræðingnum Damian Peach. Sá hafði tekið saman fjölda gervigreindarsmíðaðra mynda af sólmyrka sem átti sér stað í gær yfir Suðurskautslandinu. Sævar viðrar áhyggjur sínar á málinu. „Gervigreindin er plága sem er (búin?) að skemma internetið. Samfélagsmiðlar eru stútfullir af ljótum myndum og stórkostlega ýktum eða röngum upplýsingum sem fá því miður vængi í gölluðum reikniritum samfélagsmiðlanna. Dæmi um það eru þessar hræðilegu myndir af sólmyrkva sem engar myndir náðust af enda varð hann á afskekktasta stað heims, Suðurskautslandinu,“ skrifar Sævar. Almyrkvi á sólu verður 12. ágúst næstkomandi, sá fyrsti sýnilegur á Íslandi síðan 1954. Almyrkvaslóðin mun liggja yfir Vestfirði, Snæfellsnes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga og er þegar orðið víða uppbókað. „Á næstu vikum og mánuðum mun þetta bara aukast þegar nær dregur myrkvanum okkar. Bullið og ljótleikinn sem vellur upp úr gervigreindinni mun því miður kaffæra réttar upplýsingar og fallegar myndir af raunveruleikanum sem er svo miklu, miklu stórkostlegri en nokkur tölvugerð mynd,“ skrifar hann jafnframt. „Mér finnst gervigreindin, spunagreind eins og ChatGPT og allt það drasl, langversta „tæknibylting“ sem ég hef upplifað. Sem betur fer virðast þjófóttu fyrirtækin sem eiga sök á þessu ekki geta grætt peninga á þessu. Megi svo vera áfram,“ skrifar Sævar. „Það er stundum eins og forsvarsmenn þeirra haldi að dystópíska framtíðarsýnin sem birtist í vísindaskáldskap sé leiðarvísir en ekki varnaðarorð. Svo mikið óskaplega vona ég að þetta rusl springi í tætlur.“
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Gervigreind Geimurinn Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ „Blómaútsaumur bætir við snert af duttlungum við þessa denimvesti. Knappalokunin að framan gerir ráð fyrir fjölhæfum stíl.“ Þetta er meðal þeirra mjög svo furðulegu þýðinga sem kaupendur vefverslunarinnar Boozt mega búast við þegar þeir lesa sér til um vörurnar sem þar eru til sölu. 17. febrúar 2026 20:00 Gervigreindarsvikarar reyna að hagnast á íslenskum stjörnum Svikahrappar hlaða nú upp gervigreindarlögum í nafni vinsælla íslenskra hljómsveita í von um að geta grætt á þeim. Markaðsstjóri Öldu Music segir aðgangarugling ekki nýjan af nálinni á Spotify en nú sé greinilega um markviss svik að ræða. Spotify hafi nýverið fjarlægt tugi milljóna gervigreindarlaga af veitunni. 22. október 2025 16:29 Sora-tæknin gerir myndbönd af öllu mögulegu möguleg Myndband sem sýnir Hollywood-stjörnuna Will Smith borða spaghettí vakti athygli heimsbyggðarinnar í febrúar á síðasta ári. Myndbandið, sem var búið til af gervigreind, þótti bæði fyndið og óhugnanlegt. 25. febrúar 2024 10:30 Mest lesið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Unnur Borg og Gugga saman í paradís Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira
Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ „Blómaútsaumur bætir við snert af duttlungum við þessa denimvesti. Knappalokunin að framan gerir ráð fyrir fjölhæfum stíl.“ Þetta er meðal þeirra mjög svo furðulegu þýðinga sem kaupendur vefverslunarinnar Boozt mega búast við þegar þeir lesa sér til um vörurnar sem þar eru til sölu. 17. febrúar 2026 20:00
Gervigreindarsvikarar reyna að hagnast á íslenskum stjörnum Svikahrappar hlaða nú upp gervigreindarlögum í nafni vinsælla íslenskra hljómsveita í von um að geta grætt á þeim. Markaðsstjóri Öldu Music segir aðgangarugling ekki nýjan af nálinni á Spotify en nú sé greinilega um markviss svik að ræða. Spotify hafi nýverið fjarlægt tugi milljóna gervigreindarlaga af veitunni. 22. október 2025 16:29
Sora-tæknin gerir myndbönd af öllu mögulegu möguleg Myndband sem sýnir Hollywood-stjörnuna Will Smith borða spaghettí vakti athygli heimsbyggðarinnar í febrúar á síðasta ári. Myndbandið, sem var búið til af gervigreind, þótti bæði fyndið og óhugnanlegt. 25. febrúar 2024 10:30