Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 14:48 Á einni viku var tvisvar sinnum brotist inn í verslun Húrra Reykjavíkur á Hverfisgötu. Samsett Á rúmri viku hefur tvisvar sinnum verið brotist inn í verslun Húrra Reykjavík við Hverfisgötu, síðast í nótt. Þýfið er virði hundraða þúsunda króna. Eigandinn segir málið hræðilegt og telur það vera dæmi um fjölgun innbrota.
Aðfaranótt 11. febrúar, rétt fyrir klukkan fimm, brutust þrír menn inn í verslun Húrra Reykjavík við Hverfisgötu. Á myndböndum af innbrotinu má þrjá svartklædda menn inni í versluninni eftir að hafa brotið rúðuna í útidyrahurð verslunarinnar. Þeir eru með bláa ferðatösku meðferðis og grípa heilu bunkana af fatnaði sem er til sýnis í versluninni. Einn þeirra hleypur út með fangið fullt af fatnaði og annar með ferðatöskuna. Sá þriðji er eftir um stund, skoðar stuttermabol en ákveður að skilja hann eftir og fer út í gegnum brotna glerið. Sindri Snær Jensson, annar stofnanda Húrra Reykjavík, segir þýfið upp á aðra milljón króna. Mennirnir hafa verið handteknir af lögreglu og verða þeir kærðir fyrir þjófnaðinn. „Við fáum tilkynningu strax um nóttina. Við erum með öryggiskerfi þannig maður veit af þessu. Þetta var hræðileg aðkoma og ömurlegt. Ef þú horfir á upptökuna virðast þetta vera menn sem eru ekki í sínu besta ástandi,“ segir Sindri. Þýfinu hafi verið skilað en eitthvað þó skemmt. Málið er til skoðunar hjá tryggingafélaginu. Fann sérstaka skóstærð Nú í nótt, rétt fyrir klukkan þrjú aðfaranótt 19. febrúar, var aftur brotist inn í verslunina. Einn maður í appelsínugulri úlpu og með grímu spennir upp hurðina. Hann gengur heldur rólega um verslunina, grípur bunka af peysum og gefur sér nokkrar sekúndur í að finna ákveðna skóstærð í bunka af skókössum. Eftir að hafa gengið stuttan hring um verslunina gengur maðurinn út um dyrnar. Hann hefur ekki verið handtekinn. Þýfið hleypur á nokkrum hundruðum þúsunda. Sindri segir engan hafa verið handtekinn enn. Þó telji lögreglan sig mögulega vera með einhvern grunaðan svo Sindri leiðir líkur að því að um sé að ræða góðkunningja lögreglunnar. Þjófnaður að aukast Sindri telur tilviljun hafa ráðið för að brotist var tvívegis inn í Húrra Reykjavík, jafnvel þótt fyrri hópurinn hafi verið með ferðatösku meðferðis. Í báðum tilvikum voru þjófarnir innan við mínútu í versluninni. „Þetta snýst ekkert um Húrra þótt mér finnist þetta hræðilegt. Þetta snýst ekki heldur um Ísland heldur virðist þetta vera að aukast um allan heim. Misskiptingin og fólk í erfiðri stöðu verður sífellt bíræfnara. Við höfum einhvern veginn misst trúna á réttarríkinu og refsikerfinu,“ segir Sindri. Hans tilfinning er að þjófnaður sé að aukast og segir umtalið einnig á þá leið hjá öðrum verslunareigendum. Ekki náðist í fulltrúa lögreglunnar við vinnslu fréttarinnar.
Lögreglumál Reykjavík Verslun Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í vestur vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira