Byrjum á rótinni – ekki verðmiðanum Elísabet Reynisdóttir skrifar 20. febrúar 2026 10:17 Svargrein við ummælum heilbrigðisráðherra Í kjölfar ummæla heilbrigðisráðherra, Ölmu Möller, um mögulega skattlagningu óhollra matvæla er mikilvægt að staldra við og spyrja: Erum við að horfa á orsökina – eða aðeins afleiðingarnar? Skattlagning getur haft áhrif á neyslu. En hún breytir ekki þeim innviðum sem móta daglegt líf barna og fullorðinna. Hún snertir yfirborðið. Rót vandans liggur dýpra. Ef stjórnvöld vilja raunverulega bæta lýðheilsu þarf að byrja á því sem þau sjálf hafa beina stjórn á. Opinbert kerfi styðst við opinberar stefnur! Skólamatur er ekki einkamál. Hann er opinber stefnumótun. Þúsundir barna borða daglega máltíð í skólum landsins. Sú máltíð er mótuð af opinberri innkaupastefnu, ráðleggingum og regluverki. Þegar mötuneyti eru spurð út í val á hráefnum vísa þau oft til þess að þau fylgi leiðbeiningum Embættis landlæknis. Það er eðlilegt – opinber kerfi eiga að styðjast við opinbera stefnu. En þá vaknar spurningin: Ef niðurstaðan í framkvæmd er sú að áhersla liggi fyrst og fremst á hitaeiningar, fituprósentur og kostnað, fremur en gæði og uppruna hráefna, er þá stefnan nægilega skýr? Eða nægilega uppfærð? Í mínu starfi hef ég séð hvernig unnar jurtaolíur og iðnaðarframleidd hráefni verða sjálfgefin lausn í mötuneytum – ekki vegna illvilja, heldur vegna kerfislegra viðmiða. Repjuolía er í dag ein mest notaða olía í matvælaiðnaði. Hún er hagkvæm og aðgengileg en fyrst og fremst eru hún gjörunninn. En spurningin sem við þurfum að spyrja er ekki aðeins hvort hún uppfylli lágmarksviðmið – heldur hvort opinbert kerfi eigi að byggja daglega næringu barna fyrst og fremst á unnum og iðnvæddum hráefnum. Foreldrar barna sem sitja í skólamötuneytum landsins treysta því að það sem er sett á diskinn sé valið með heilsu barnanna að leiðarljósi. Ekki eingöngu út frá töflum eða kostnaðarlíkönum. Vilji stjórnvöld raunverulega snúa þróuninni við þarf að: Endurskoða og samræma matseðla allra skóla landsins út frá skýrum kröfum um gæði hráefna. Gera ferskt og sem minnst unnið hráefni að meginreglu í opinberum mötuneytum. Setja skýrar kröfur um samsetningu sterkju, notkun olía og takmörkun aukaefna. Stýra innkaupastefnu skólamötuneyta miðlægt með lýðheilsu – ekki eingöngu kostnað – að leiðarljósi. Tryggja forgang íslenskri framleiðslu þar sem það er raunhæft, sem fjárfestingu í bæði heilsu og hagkerfi. Skólamatur og matur á opinberum stofnunum á ekki að vera hagsmunadrifið útboð þar sem lægsta verð ræður ferðinni. Þegar heilsu barna er annars vegar eiga næringargæði að vera ófrávíkjanleg krafa. Heiðarleg endurskoðun! Það er einnig óhjákvæmilegt að nefna að heilbrigðisráðherra gegndi áður Embætti landlæknis. Embætti landlæknis hefur haft lykilhlutverk í mótun opinberrar næringarstefnu um árabil. Ef sú stefna hefur ekki skilað sér í sýnilegum árangri fyrir heilsu þjóðarinnar – og sérstaklega barna – er eðlilegt að kalla eftir heiðarlegri endurskoðun. Hafa ráðleggingarnar verið nægilega skýrar?Hafa þær verið uppfærðar í takt við nýjustu þekkingu á efnaskiptaheilsu?Eða hefur áherslan í framkvæmd orðið of tæknileg og fjarlæg raunverulegum mat? Ef kerfið framleiðir óheilsu þarf að laga kerfi! Í alþjóðlegri umræðu hefur Robert F. Kennedy Jr. Heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna bent á að langvinnir sjúkdómar tengist kerfislegum ákvörðunum – í matvælaframleiðslu, regluverki og opinberum leiðbeiningum – ekki eingöngu vali einstaklinga. Hvort sem menn eru sammála öllum hans áherslum eða ekki er kjarni málsins skýr: ef kerfið framleiðir óheilsu þarf að laga kerfið. Þurfum að byrja að laga kerfið á réttum enda! Það er orðið tímabært að stjórnvöld stundi heiðarlega naflaskoðun. Þegar vandinn er orðinn samfélagslegur dugar ekki að beina sjónum að neysluhegðun almennings eða verðmiðum í verslunum. Þá þarf að skoða hvaða ábyrgð liggur hjá þeim sem móta umhverfið. Ef grunnurinn er skakkur dugar ekki að hækka verð. Þá þarf að rétta grunninn. Það skiptir máli að byrja á réttum enda. Stjórnvöld geta ekki krafist ábyrgðar af almenningi án þess að horfa fyrst á eigin ákvarðanir. Að gera annað er að kasta steini úr glerhúsi. Raunveruleg lýðheilsa byrjar á ábyrgð þeirra sem stýra kerfinu — og hugrekkinu til að endurmeta eigin stefnu þegar árangurinn lætur á sér standa. Höfundur er næringarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilsa Elísabet Reynisdóttir Mest lesið Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun „Raflítri“ Hvað kostar bensínlítraígildi? Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir skrifar Skoðun Tóbaksfyrirtækin eiga ekki að skrifa lögin Vala Smáradóttir,Jóhanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Er ríkið að styrkja sveitarstjórnarstigið – en veikja undirstöður þess? Sigríður Hjaltadóttir skrifar
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar