Að vera heil manneskja í brotakenndum heimi Inga Gunnlaugsdóttir skrifar 20. febrúar 2026 14:02 Í heimi þar sem egoisma virðist oft vera umbunað,þar sem völd og peningar fá meira vægi en mannleg reisn,og þar sem óheiðarleiki og spilling eru stundum orðin svo algeng að það virðist næstum eðlilegt, getur verið eðlilegt að spyrja sig:Skiptir það einhverju máli að vera góð manneskja? Kannski skiptir það meira máli en nokkru sinni fyrr. Að vera heil, heiðarleg og góð manneskja í slíkum heimi er ekki veikleiki.Það er styrkur.Kannski einn sá mesti. Heil manneskja er ekki fullkomin.Hún gerir mistök, missir jafnvægið,En hún er tilbúin að horfast í augu við sjálfa sig.Hún felur sig ekki á bak við afsakanir.Hún tekur ábyrgð. Heiðarleiki byrjar sjaldnast í því sem við segjum opinberlega.Hann byrjar í hinu hljóða samtali við okkur sjálf.Get ég viðurkennt þegar ég hef rangt fyrir mér?Get ég staðið með gildum mínum þó það kosti mig vinsældir eða þægindi?Get ég sagt skoðun mína og sett mörk, jafnvel þegar það væri auðveldara að þegja? Að vera góð manneskja í dag krefst kjarks.Ekki háværs kjarks sem leitar sviðsljóssins,heldur hins hljóða kjarks að vera samkvæmur sjálfum sér. Heil manneskja leitast ekki við að vera yfir aðra hafin.Hún leitast við að vera í samræmi við eigin gildi.Hún skilur að raunveruleg virðing fæst ekki með yfirburðum,heldur með nærveru, mildi og festu. Í heimi þar sem margir sækjast eftir völdum til að fylla tómarúm innra með sér,velur heil manneskja að vinna með sitt eigið innra líf.Hún veit að það sem ekki er unnið innan frá mun alltaf leita út á viðí stjórnsemi, í græðgi, í þörf fyrir viðurkenningu. Að vera góð manneskja þýðir ekki að vera mjúk á þann hátt að láta traðka á sér.Það þýðir að hafa hjartað opið en hryggsúluna beina.Að sýna samkennd án þess að fórna sjálfri sér.Að bregðast ekki við hörku með meiri hörku,en heldur ekki samþykkja það sem er rangt. Hún velur að svara af meðvitund frekar en út frá varnarviðbrögðum.Velur ábyrgð frekar en ótta.Hún velur að vera ljós í stað þess að auka myrkrið.Ekki af því hún er naív,heldur af því hún veit að allt byrjar innan frá. Í raun er stærsta byltingin kannski súað halda áfram í daglegum, litlum ákvörðunum að vera heiðarleg, góð og ábyrgþegar það virðist ekki vera það sem „borgar sig“. Því að þegar allt kemur til alls,eru það ekki völd eða auður sem skapa frið innra með okkur.Það eru heilindi. Kannski er það einmitt það sem heimurinn þarfnast mest, ekki fleiri háværrar raddir,heldur fleiri heil hjörtu, fleiri manneskjur sem eru heilar að innan. Heil manneskja breytir kannski ekki heiminum á einni nóttu.En hún breytir andrúmsloftinu í kringum sig,hún minnir aðra á að það sé hægt að velja aðra leið. Þannig, hægt og rólega mótast heimurinn af þeim sem þora að lifa af heilindum. Ekki í leit að fullkomnun, heldur í stöðugri viðleitni til að vera heiðarleg og meðvituð. Skref fyrir skref, frá egoisma til samkenndar, frá sérhagsmunum að því sem er best fyrir heildina. Það er þar sem raunveruleg breyting byrjar. Höfundur er nemi í skapandi skrifum við Háskólan í Malmö og CFT þerapisti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar